Morgunblaðið - 01.09.2008, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2008 31
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
SÝND HÁSKÓLABÍÓI
Steve Carell fer hamförum í frábærri gamanmynd sem
fór beint á toppinn í USA.
Ekki missa af skemmtilegustu gamanmynd sumarsins - Get Smart.
-TOMMI - KVIKMYNDIR.IS -GUÐRÚN HELGA - RÚV
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15
eeee
- Ó.H.T, Rás 2
eee
- L.I.B, Topp5.is/FBL
Stærsta mynd ársins 2008 - 87.000 manns.
Sýnd kl. 6 og 9
-Kvikmyndir.is
“Fínasta skemmtun. Myndin
er skemmtileg og notaleg.”
- Mannlíf
ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
-bara lúxus
Sími 553 2075
Sýnd kl. 5:40, 8 og 10:15
VINSÆLASTA MYNDIN Í
BANDARÍKJUNUM Í DAG
- 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS!VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG - 2 VIKUR Á TOPPNUM
FRÁ BEN STILLER KEMUR EIN KLIKKAÐASTA GRÍNMYND ÁRSINS!
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV
SÝND SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Þú færð 5 %
endurgreitt
í SmárabíóSími 564 0000
Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Tropic Thunder kl. 5:30 - 8 - 10:30 LÚXUS
Make it Happen kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
Rocker kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára
Mamma Mia kl. 5:30 D - 8 D - 10:30 D LEYFÐ
-S.V., MBL
SÝND SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
Geggjuð gamanmynd frá leikstjóra Full Monty
-Empire
-L.I.B.TOPP5.IS/FBL -DV
-S.V., MBL
www.laugarasbio.is
Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
ÞAÐ var árið 2001 að fréttavef-
urinn beinskeytti Baggalútur birt-
ist í vefheimum. Síðan þá hefur
hin dularfulla ritstjórn flutt lands-
mönnum nýjustu fréttir af pólitísk-
um hneykslismálum, geimverum
og tímavélum, svo aðeins séu
nefnd nokkur vinsæl fréttaefni síð-
unnar.
Verðskuldað sumarfrí afkasta-
mikilla og fjölhæfra blaðamanna
Baggalúts er á enda í dag, 1. sept-
ember, og bíða tryggir aðdáendur
spenntir eftir bráðskemmtilegum
fréttunum. „Ég reikna með að
fréttaskrif verði áfram burðar-
ásinn, ætli þjóðbloggið verði ekki
á sínum stað og kannski bætast
einhverjir góðir við í blogghóp-
inn,“ segir Bragi Valdimar Skúla-
son, hæfilega kærulaus og dulur
þegar blaðamaður Morgunblaðsins
nær af honum tali. „Við erum allt-
af að gæla við að vera með meira
myndefni, og ætlum a.m.k. að vera
með styttri útvarps- og sjónvarps-
djóka.“
Nú þegar 7. árgangur Baggalúts
er að fara af stað stendur til að
bæta aðgengi að gömlu efni: „Við
þurfum eiginlega að fara að koma
þessu drasli inn á einhvern hress-
an þjóðskjalavörð,“ segir Bragi
sem kveðst vera byrjaður að sýsla
í safninu. „Ýmsir myndrænir djók-
ar hafa týnst, og við höfum verið
með útvarpsþætti frá 2004 sem
ekki eru aðgengilegir lengur. Það
þarf að reyna að opna katakomb-
urnar aðeins.“
Fjölmiðlaveldi
Að baki Baggalútsvefnum stend-
ur sex manna kjarni hugsjóna-
manna. Upphafið að Baggalúts-
veldinu, sem jafnast á við stærstu
fjölmiðlasamsteypur að umfangi
og efnistökum, er bríarí ungra
pilta sem þá voru nemendur í MH
og héldu úti litlum einkabrand-
aravef sem síðar fangaði athygli
umheimsins.
Þrír af ritstjórnarmeðlimunum
hafa ómælda tónlistarhæfileika og
fengu til liðs við sig aðra flinka
tónlistarmenn til að mynda hljóm-
sveitina Baggalút sem sent hefur
frá sér fjölda eftirminnilegra
smella.
Net, útvarp, sjónvarp, tónlist og
útgáfa: „Þetta er allt hluti af stóra
planinu. Núna erum við búnir að
senda þrjá út í nám - allt að sjálf-
sögðu kostað af samsteypunni - og
við reiknum með að þeir nái ítök-
um í þjóðfélaginu innan tíðar,“
ljóstrar Bragi upp og bætir við að
Baggalútur stýri nú þegar öllum
fréttaflutningi á landinu.
Tímamótasamkvæmisplata
Á því leikur enginn vafi að
Baggalútsmenn eru hæfileikarík-
ari og afkastameiri en gengur og
gerist. Í haust senda þeir frá sér
nýja plötu sem er fjórða hrein-
ræktaða Baggalútsplatan á þrem-
ur árum. „Við höfum notað sum-
arfríið til að berja saman tíma-
mótasamkvæmisplötu sem heita
mun Nýjasta nýtt,“ segir Bragi.
Bossanóva, diskó og pínu rokk
er það sem einkennir nýju plötuna,
„og svolítið Monkeys, að sjálf-
sögðu“, bætir Bragi við og lýsir
hinni væntanlegu plötu sem „frá-
bærlega skemmtilegri“.
Von er á góðum gestalistamönn-
um á plötunni nýju, en Bragi getur
ekki ljóstrað upp nöfnum að svo
stöddu enda standa samninga-
viðræður yfir. „Það eru margir
góðir menn þarna, sem spila á syn-
þísesera og svona trommur sem
gera svona dúúú …“ segir hann en
blærinn á plötunni minnir einkum
á gleðistefnur rokksögunnar milli
1970 og 1981. „Þetta er svona
kokkteil-stuð,“ segir Bragi.
Baggalútur snýr aftur!
Fréttavefurinn Baggalútur kemur úr sumarfríi í dag Ný plata, Nýjasta nýtt, kemur út í haust
Morgunblaðið/Kristinn
Baggar Bragi Valdimar Skúlason, Guðmundur Pálsson, Garðar Þorsteinn Guðgeirsson og Karl Sigurðsson.
Orðið „baggalútur“ er notað yf-
ir steintegund sem einnig er
kölluð hreðjasteinn eða blóða-
stemmusteinn. Um er að ræða
litla kúlulaga steina sem oft eru
samvaxnir í litla klasa. Hver
kúla er um 0,5 til 20 cm í þver-
mál en steintegundin verður til
þar sem gasbóla myndar hol-
rúm í hrauni og kvars safnast í
rýminu. Þegar síðan hraunið
veðrast sitja kúlurnar eftir enda
harðari.
Baggalútur er líka einn af
þeim jólasveinum sem „komust
ekki í topp 13 úrtakið“ eins og
Baggalútsmenn orða það. Einn-
ig þekkist að orðið sé notað í
merkingunni „smástrákur“.
Rauðar kúlur