Morgunblaðið - 01.09.2008, Page 35
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
EKKI liggur alltaf í augum uppi
hvað býr að baki nöfnum hljóm-
sveita og tónlistarmanna. Stundum
er merkingin og uppruninn allt ann-
ar en mætti halda í fyrstu og jafnvel
löng saga og djúp merking á bak við
nöfnin, – nú eða algjör vitleysa.
ABBA
Um er að ræða skammstöfun á
skírnarnöfnum hljómsveitarmeðlim-
ana: Agnetha Fältskog, Björn Ulva-
eus, Benny Anderson og Anni-Frid
Lyngstad.
AC/DC
Merking á saumavél fyrir Alter-
nating Current / Direct Current
(riðstraumur / jafnstraumur) sem
meðlimur hljómsveitarinnar rak
augun í eitt sinn. Hljómsveit-
armeðlimir voru grunlausir um að
AC/DC væri einnig slanguryrði fyrir
tvíkynhneigð og olli það ýmsum
flækjum í upphafi ferilsins.
Alice Cooper
Að sögn hljómsveitarmeðlima
stafaði vera annars heims þessi orð
þegar gengið fór í andaglas.
The Beatles
Guttarnir voru miklir aðdáendur
Buddy Holly & The Crickets (þ.e.
Krybbanna) og kenndu sig því við
annað skordýr, bjölluna (beetle).
Lennon á svo að hafa fundið upp á að
bræða saman beat (taktur) og beet-
les.
Bee Gees
Nafnið er ekki dregið af „Brot-
hers Gibb“ eins og margir halda
heldur nefndu Gibb-bræðurnir
bandið eftir tveimur vinum sem
hjálpuðu þeim að koma ferlinum af
stað, Bill Goode og Bill Gates að
nafni.
Bob Dylan
Róbert litli Zimmerman var mikill
aðdáandi skáldsins Dylans Thomas
og tók sér þess vegna nafn hans.
Bono
Paul Hewson átti leið um heyrn-
artækjaverslun í Dyflinni og fékk
innblástur að listamannsnafninu frá
einu tækinu sem merkt var „Bono
Vox“.
Chubby Checker
Sagan segir að á meðan á upp-
tökum stóð hafi eiginkona plötu-
framleiðandans spurt Ernest Evans
til nafns rétt eftir að hann hafði
hermt eftir Fats Domino. „Vinir
mínir kalla mig Chubby“ (búttaður)
sagði hann, og hún grínaðist á móti:
„Eins og Checker?“ (þ.e. dammtafl).
Þótti orðaleikurinn einstaklega
fyndinn og festist við listamanninn.
David Bowie
David Jones vildi ekki að fólk
ruglaðist á sér og Davy Jones úr
Monkees og ákvað því að kenna sig
við bowie-hníf sem er stór og ægileg
hnífategund.
The Eagles
Rokkararnir sígildu voru undir
miklum áhrifum frá The Byrds og
fundu sér því nafn í svipuðum dúr
sem þar að auki hljómaði mjög am-
erískt. Blessunarlega lögðu þeir
nöfnunum Teen Kings og The
Emergencies sem þeir höfðu áður
tekið sér.
Elton John
Bresku tónlistarmennirnir Elton
Dean og Long John Baldry urðu
grunnurinn að listamannsnafni
Pearl Jam
Að sögn forsprakka hljómsveit-
arinnar á nafnið bæði að vísa til
fagurra eiginleika perlunnar og
þess hvernig hún verður til úr úr-
gangi.
Pink Floyd
Áður höfðu þeir kallað sig „The
Megadeaths“ og „Screaming Ab-
dabs“ en breyttu svo yfir í „The
Pink Floyd Sound“ sem myndað
var úr nöfnum blústónlist-
armannanna Pink Anderson og
Floyd Council. Nafnið var svo stytt
í Pink Floyd.
Queen
Freddie Mercury á að hafa líkað
bæði tengingin við glysið í dragg-
drottningum og svo glæsileikann
sem fylgir kóngafólki.
Ramones
Paul McCartney mun hafa kall-
að sig Paul Ramone í upphafi fer-
ilsins. Það var til að heiðra Paul
gamla að meðlimir hljómsveit-
arinnar öpuðu eftir honum vitleys-
una.
REM
Um er að ræða skammstöfun
fyrir hraðar augnhreyfingar (Ra-
pid eye movement) sem einkennir
ákveðið svefnstig.
Sex Pistols
Umbinn á að hafa fengið hug-
myndina að nafninu og fengið inn-
blástur frá fataverslun fyrir pönk-
ara sem kölluð var Sex,
jafndónalegt og það er nú.
Spandau Ballet
Bandið, sem áður kallaði sig The
Makers, skipti um nafn eftir heim-
sókn til Berlínar. Þar á einn af rót-
urunum að hafa rekið augun í
veggjakrot sem fjallaði um Span-
dau-fangelsið þar sem fjöldi manns
mun hafa verið hengdur og engst
um og skoppað í reipinu. Voru
þessir kippir kallaðir að dansa
„Spandau-ballettinn“.
U2
Samkvæmt heimildum vill Bono
meina að hljómsveitin hafi ekki
fengið nafnið lánað frá U2-
njósnaflugvélinni heldur sé ein-
faldlega verið að vísa í samskiptin
við áheyrendurna, „you too“, þ.e.
„líka þið“.
UB40
Eyðublaðið sem fylla þarf út til
að komast á atvinnuleysisbætur í
Bretlandi er merkt UB40.
Wham!
George Michael og Andrew
Ridgeley, sem kynntust í hljóm-
sveitinni „Executive“, vildu taka
tónlistarbransann með hvelli, og
völdu sér því upphrópun við hæfi.
The Who
Segir sagan að þegar verið var
að fara yfir möguleg hljómsveit-
arnöfn hafi hljómsveitarmeðlimir
þegar verið orðnir svo slæmir til
heyrnarinnar að þeir hafi spurt
hver annan í sífellu „hvað?“ (e. „the
who?“).
10CC
Sú saga mun hafa lifað góðu lífi
að nafnið væri til komið af því að
meðalsáðlát hjá karlmanni væri
9cc (þ.e. rúmsentimetrar) að rúm-
máli, og 10cc væri þá enn betra.
Sannleikurinn á að vera sá að um-
boðsmanninn Jonathan King hafi
einfaldlega dreymt að hann myndi
stýra bandi með þessu undarlega
nafni og ná á toppinn. Meðalsáðlát
á svo að vera frá 1,5 til 5 rúmsenti-
metrar, ef út í það er farið.
Nöfn með sögu
Torskilin nöfn
nokkurra hljóm-
sveita og tónlistar-
manna útskýrð
ABBA
Bob DylanQueen
Sex Pistols
popparans skrautlega sem
skírður var því drepleiðnlega
nafni Reginald Dwight.
Engelbert Humperdinck
Nafnið er eignað umboðs-
manninum Gordon Mills sem
sagði söngvaranum Gerry Dor-
sey að með þessu nýja nafni gæti
fólk auðveldlega munað eftir
honum, og aldrei gleymt honum.
Iron Maiden
Hljómsveitin tók sér nafn sem
notað var yfir ægilegt pyntingatæki,
n.k. box alsett göddum að innan sem
fórnarlömbin voru lokuð inni í.
KISS
Nafnið stendur ekki fyrir Knights
in Satan’s Service (Riddarar í þjón-
ustu kölska), heldur var meiningin
sú að orðið kiss (koss) hljómaði í
senn hættulegt og æsandi.
Meatloaf
Söngvarinn Marvin Lee Aday hefur
gefið ýmsar útskýringar á listamanns-
nafninu. Sú algengasta er að hann hafi
eitt sinn stigið á tær fótboltaþjálfara
síns í menntaskóla, en hann hafði van-
ið sig af að bölva og hrópaði í staðinn
upp yfir sig: „Meat Loaf!“
Heimildir
www.classicbands.com
www.nwitimes.com
Alice Cooper Elton John
U2
David Bowie
AC/DC
10CC
Bítlarnir
Wham! Iron Maiden
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 1. SEPTEMBER 2008 35