Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 25
» „Í raun mætti gagnrýnamig fyrir að hafa rík- isvætt. Enginn heilbrigð- isráðherra hefur komið tann- réttingum fyrir með þeim hætti sem ég gerði á Land- spítalanum. Ég hef eflt Heyrnar- og talmeinastöðina og samdi við spítalann á Ak- ureyri um bæklunaraðgerðir. Þetta mætti kalla ríkisvæð- ingu. Er markmið mitt að rík- isvæða heilbrigðisþjón- ustuna? Nei! Markmið mitt er að sjá til þess að fá eins mikla þjónustu og gæði og mögulegt er fyrir það fé sem ég hef. Ég nota þær aðferðir sem þarf til að láta það gerast.“ er eilífðarverkefni. Það mun aldrei koma sá dagur að nokkur heilbrigðisráðherra segist hróðugur hafa leyst öll vandamál og ekki geta gert betur. Það skiptir máli að skoða það sem aðrir hafa gert, læra af þeim og forðast kreddur, eins og til dæmis kreddur um rekstrarform. Okkur veitir ekkert af að vera opin fyrir fjöl- breyttum úrræðum og fjölbreyttum rekstr- arformum ef við ætlum að vera með heilbrigð- isþjónustu á heimsmælikvarða fyrir alla Íslendinga. Það er alveg ljóst að það verður aukin eftirspurn eftir heilbrigðisþjónustu vegna þess að þjóðin er að eldast. Það er verk- efni og tækifæri en ekki vandamál. Þú spyrð ekki um rekstrarform – þú spyrð um það hvernig þú getur þjónað fólkinu best.“ Á fólk að geta keypt sig fram hjá biðröðum í heilbrigðiskerfinu? „Ef við stöndum okkur í því að vera með nægt framboð af heilbrigðisþjónustu, ef við vinnum vel, þarf ekki að koma til þess að menn séu að velta slíkum hlutum fyrir sér. En ef við höfum ekki nægt framboð og fólk þarf að bíða mjög lengi eftir þjónustu reynir fólk að bjarga málunum með einhverjum öðrum hætti. Fólk getur nú þegar farið til útlanda og það verður ekki bannað en ef okkur tekst það sem við ætlum okkur, að vera með nægt fram- boð, verðum við með þjónustu sem allir Ís- lendingar nýta sér vegna þess að það væri frá- leitt fyrir þá að gera eitthvað annað.“ Ekki í Truman Show Laxveiðiferð sem þú fórst í hefur verið nokkuð í umræðunni. Voru ekki mistök að þiggja boð í laxveiði í nafni stórfyrirtækis eins og Baugs? „Ef ég hefði þegið boð frá stórfyrirtæki þá hefðu það verið mistök. En það gerði ég ekki. Ég setti mér það viðmið fyrir tuttugu árum, þegar ég byrjaði í stjórnmálum, að þiggja ekki boðsferðir frá fyrirtækjum, hvorki stórum né smáum, og hef staðið við það. Í þessu tilviki bauð vinur minn mér í veiði og greiddi fyrir veiðileyfið. Ég endurgreiddi honum síðan og sagði við hann að ég vildi hafa þá reglu að borga alltaf fyrir mínar veiðiferðir sjálfur.“ Þú vilt ekki sýna kvittun um að þú hafir borgað ferðina. Af hverju? „Ég hugsa þetta í prinsippum. Ég ætla ekki að halda því fram að ég hafi aldrei þegið neitt af vinum mínum. Ég þigg matarboð og þvíum- líkt og svo sannarlega veiti ég vinum mínum sambærilega hluti. Ég vona að slíkt verði ekki gert tortryggilegt, þá erum við komin í svolít- ið sérkennilega stöðu. Ég braut ekki reglur á neinn hátt en svo eru einhverjir að fara fram á að ég opni heimabankann minn. Hvað verður þá farið fram á næst? Einhvers staðar verður maður að draga mörkin. Ég er stjórn- málamaður og opinber persóna en ég er ekki tilbúinn að verða einhver Jim Carrey í Trum- an Show.“ Var í þessari ferð talað um orkumál og hugsanlega sameiningu REI og Geysir Green, eins og látið hefur verið liggja að? „Í þessari ferð voru gamlir veiðifélagar, karlar og konur, sem voru að veiða saman og hafa veitt saman í áratugi. Þarna heyrði ég alls kyns veiðisögur. Þarna var ekki talað um viðskipti. Annars er kaldhæðnin í þessu sú að ég hef eiginlega engan áhuga á laxveiði. Þetta er held ég eina laxveiðiferðin sem ég hef farið í fyrir utan eina í Elliðaárnar sem borg- arfulltrúi.“ Ögmundur Jónasson setti mynd af þér með Gaddafi Líbíuforseta á heimasíðu sína til að leggja áherslu á þá skoðun sína að þú sért á rangri braut með Sjúkratryggingalögin. Tek- urðu gagnrýni nærri þér? „Málefnaleg gagnrýni er eðlilegasti hlutur í heimi. Stjórnmálamenn sem kveinka sér und- an gagnrýni andstæðinga sinna eiga að hasla sér völl á öðrum vettvangi. Þessi framsetning Ögmundar dæmir sig hins vegar sjálf. Ef Ög- mundur Jónasson vill líkja samferðamönnum sínum við fjöldamorðingja þá er það hans mál.“ Góður andi í ríkisstjórninni Hvernig er ríkisstjórnarsamstarfið, er ekki smá pirringur milli ríkisstjórnarflokkanna? „Það er mjög gott að vinna í ríkisstjórninni. Að stærstum hluta hefur samstarfið gengið mjög vel en það liggur ljóst fyrir að það hefur annað yfirbragð en í síðustu ríkisstjórn.“ Finnst þér Samfylkingin stundum of yf- irlýsingaglöð? „Ég held að almenna reglan sé sú að betra er að segja minna og gera meira. Ef menn eru ósáttir við eitthvað er betra að setjast yfir málið fremur en ræða það í fjölmiðlum. Menn eru misjafnlega fljótir að átta sig þessu, jafn- vel þótt þeir hafi verið lengi á vettvangi stjórnmálanna, en gamanlaust – traust bygg- ist á því að finna lausnir og við gerum það í þessu samstarfi. Það ríkir góður andi í þessari ríkisstjórn.“ Kjaradeila ljósmæðra er í hnút. Hvað finnst þér sem heilbrigðisráðherra um málið? „Ég hef miklar áhyggjur af þessari kjara- deilu og mögulegum afleiðingum hennar. Ég geri þá kröfu til samningsaðila að þeir nái nið- urstöðu áður en til allsherjarverkfalls kemur. Það er of mikið í húfi.“ Finnst þér rétt að fjármálaráðherra stefni Ljósmæðrafélaginu? „Báðir aðilar, kannski sérstaklega fjár- málaráðherra, eru í mjög erfiðri stöðu núna. Á okkur hinum hvílir líka mikil ábyrgð, sér- staklega í þessari viðkvæmu stöðu og það er mjög mikilvægt að við segjum ekkert sem get- ur gert viðsemjendum erfiðara fyrir. Þessi kjaradeila verður leyst við samningaborðið en ekki í fjölmiðlum.“ Hefurðu samúð með málstað ljósmæðra? „Það er erfitt fyrir mig að gera upp á milli stétta í heilbrigðisþjónustunni og ég mun ekki gera það. Svo sannarlega vitum við öll að ljós- mæður vinna ákaflega mikilvæg störf. Ég vonast til að farsæl lausn náist í þeirra kjara- mál sem fyrst. En ég er algjörlega meðvitaður um það að lausnin fæst við samningaborðið og ummæli mín og annarra ráðherra skipta litlu máli þar um.“ Þrífst á krefjandi verkefnum Menn velta því fyrir sér hver verði næsti formaður Sjálfstæðisflokksins. Þú hlýtur að hafa áhuga á starfinu? „Ég er ekkert að hugsa um það. Við erum með mjög góðan og öflugan formann og for- sætisráðherra í Geir Haarde og hann verður formaður í mjög langan tíma. Það sýnir sig best núna þegar gefur á að það skiptir máli að hafa traustan og öflugan forystumann sem fer ekki á taugum af minnsta tilefni. Það er ágætt að bera saman yfirlýsingar ýmissa stjórn- málaleiðtoga núna og meta hvað þeir hefðu gert í þeirri stöðu sem komin er upp. Það er augljóst að þeir hefðu allir farið á taugum fyr- ir löngu með skelfilegum afleiðingum fyrir þjóðina.“ Konan þín Ágústa Johnson er fram- kvæmdastjóri. Þið eruð því bæði í annasömum störfum. Er einhver tími eftir fyrir börnin ykkar fjögur? „Þetta er ekkert öðruvísi hjá okkur en öðr- um, alls ekki auðvelt. Tíminn líður gríðarlega hratt og maður hefur bara ákveðinn tíma með börnunum og það er mikilvægt að nýta hann vel. Pabbi segir að maður hafi börnin að láni til fimmtán ára aldurs og svo verði maður bara að vona það besta. Ég held að það sé nokkuð til í því. Maður verður að ala börn upp í að verða sjálfstæðir einstaklingar og getur ekki kvartað þegar kemur að því að þau stigi slík skref. Mér sýnist hafa gengið ágætlega hjá okkur að samræna fjölskyldulíf og starf en það hefst ekki án fyrirhafnar.“ Ráðherrastarf er örugglega annasamt og slítandi, hvað gerirðu til að halda hugarorku og einbeitingu? „Ég hef óskaplega gaman af að vinna. Þetta ráðherrastarf hefur verið gríðarleg vinna og það er kúnst að kúpla sig frá því. En ef maður nær ekki að hvíla sig er hætt við að maður verði eins og kerti sem brennur í báða enda. Ég reyni að hreyfa mig og fer í reglulega í lík- amsræktarstöð og það skiptir máli. Svo fer ég oft í sund með tvíburunum og það er mjög góð leið til að hafa áhyggjur af einhverju öðru en rekstri heilbrigðisstofnana. Við Ágústa gæt- um þess að eiga stundir þar sem við erum bara tvö í helgarferðum innanlands eða utan- lands. En vinnan tekur mestan hluta tíma míns. Og þá skiptir samstarfsfólkið ekki litlu máli. Í heilbrigðisráðuneytinu er ég um- kringdur góðu og öflugu fagfólki og það er ekki verra að þessi hópur er mjög skemmti- legur. Starf mitt nú er án vafa mest krefjandi verkefni sem ég hef tekið að mér. Og ég er svo heppinn að þrífast á krefjandi verk- efnum.“ Morgunblaðið/Golli » „Ég held að allir Íslend-ingar séu þeirrar skoð- unar að hér eigi að vera heil- brigðisþjónusta á heimsmælikvarða fyrir alla Íslendinga. Samkvæmt því vinn ég og minn flokkur. Þetta er eilífðarverkefni. Það mun aldrei koma sá dagur að nokkur heilbrigðisráðherra segist hróðugur hafa leyst öll vandamál og ekki geta gert betur.“ MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 25 Ég braut ekki reglur á neinn hátt en svo eru einhverjir að fara fram á að ég opni heimabankann minn. Hvað verður þá farið fram á næst? Ein- hvers staðar verður maður að draga mörkin. Ég er stjórnmálamaður og op- inber persóna en ég er ekki tilbúinn að verða einhver Jim Carrey í Truman Show.“ ›› » „Ég hef miklar áhyggj-ur af þessari kjaradeilu og mögulegum afleiðingum hennar. Ég geri þá kröfu til samningsaðila að þeir nái nið- urstöðu áður en til allsherj- arverkfalls kemur. Það er of mikið í húfi.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.