Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 41
✝ Sigurlaug Jóns-dóttir fæddist á
Sauðárkróki 10.
janúar 1929. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnuninni Sauðár-
króki 1. september
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Anna Friðriks-
dóttir, f. 22. desem-
ber 1909, d. 2. jan-
úar 1993, og Jón
Sigvaldi Nikóde-
musson, f. 7. apríl
1905, d. 9. október
1983. Sigurlaug átti 4 bræður,
Friðrik, f. 1930, látinn, Valgarð,
f. 1932, Kjartan, f. 1940, látinn,
og Bjarni, f. 1945.
17. júní 1956 giftist Sigurlaug
Gunnari G. Helgasyni, f. 21. sept-
ember 1929, d. 7. janúar 2007.
Foreldrar hans voru Guðbjörg
María Guðmundsdóttir, f. 17.
apríl 1892, d. 14. september
1976, og Helgi Ísfjörð Gunnars-
son, f. 19. apríl 1908, d. 14. des-
ember 1935. Sonur Sigurlaugar
og Júlíusar Gestssonar er Jón, f.
30. maí 1950, synir hans og
Anne-Britt Stigsdotter eru Ingv-
ar Bjarni og Ivar Friðrik.
Börn Sigurlaugar og Gunnars
eru: 1) Helgi Dagur, f. 21. októ-
ber 1956, kvæntur Kristínu
Jóhannesdóttur, f. 18. desember
1953, börn þeirra Heiða Kristín
og Ragnar. 2) Gunnar, f. 1. febr-
úar 1960, d. 3. febrúar 1960. 3)
Gunnar, f. 25. mars
1961, kvæntur S.
Helgu Sigurðar-
dóttur, f. 17. maí
1961, börn þeirra
Sigurður Gunnar
og Arnar Snær. 4)
Þorgeir, f. 18. mars
1964, sambýliskona
Elín Steingríms-
dóttir, f. 22. októ-
ber 1959. Sonur
Þorgeirs og Ingi-
gerðar Stefáns-
dóttur er Sigurður
Helgi, dóttir Elínar
er Arnheiður Almarsdóttir. 5)
Anna María, f. 21. júní 1967, gift
Þorleifi Konráðssyni, f. 15. jan-
úar 1963, börn þeirra Konráð,
Sigurlaug Helga og Gunnar. 6)
Elísabet Jóna, f. 31. maí 1970,
gift Agli Steinari Kristjánssyni,
f. 11. desember 1969. Börn
þeirra Gunnar Steinn og Ólöf
Ósk.
Veturinn 1948-1949 stundaði
Sigurlaug nám við Húsmæðra-
skóla Reykjavíkur. Hún starfaði
m.a. hjá Mjólkursamlagi Kaup-
félag Skagfirðinga, Bæjarskrif-
stofu Sauðárkróks, Skrifstofu
Kaupfélags Skagfirðinga og
Sláturhúsi Kaupfélags Skagfirð-
inga. Síðustu árin dvaldist Sigur-
laug á Heilbrigðisstofnuninni
Sauðárkróki.
Útför Sigurlaugar fer fram frá
Sauðárkrókskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 11.
Elsku mamma. Það er ekki nema
rétt rúmt ár síðan ég sat og skrifaði
kveðjuorð til pabba, ekki grunaði
mig þá að svona stuttu seinna væri
ég að skrifa kveðjuorð til þín.
Þegar ég sat hjá þér síðustu dag-
ana komu svo margar minningar upp
hjá mér. Þar sem ég er yngst af mín-
um systkinum hafði ég góðan tíma
með ykkur pabba þegar hinir ung-
arnir voru flognir úr hreiðrinu. En
auðvitað ekki bara þá heldur líka áð-
ur, t.d. þegar ég var um 5 ára og átti
erfitt með að segja „R“. Þú varst
staðráðin í því að kenna mér það og á
hverjum morgni þegar við vorum
orðnar einar heima skreið ég upp í til
þín og byrjaði að æfa mig. Þolinmæði
þín var ótrúleg og er ekki leið á löngu
þangað til að hið fullkomna „R“ var
komið. Við ferðuðumst mikið sama,
og þá vanalega með pabba, en þó fór-
um við saman einar í 2 frábærar 5
vikna ferðir til Bandaríkjanna. Valli
frændi var þá búinn að skipuleggja
ferðalag og keyrðum við um og gist-
um í tjaldi eða á mótelum. Og ég man
hvað þú hafðir gaman af þessum
ferðum, sem og öllum ferðunum ykk-
ar, en þú elskaðir að ferðast og þið
pabbi fóruð til margra spennandi
staða. Síðan var þér skyndilega
kippt út úr svo til öllu þegar þú veikt-
ist 2001 og lamaðist öðrum megin.
Ég man ennþá þegar hringt var í mig
frá sjúkrahúsinu og sagt að mamma
mín hefði fengið, eins og læknirinn
orðaði það sem hringdi, „stroke“, en
með ákveðni og þrjósku náðir þú að
styrkjast mikið, þó að þú næðir þér
aldrei að fullu. Eftir að pabbi dó
þráðir þú ekkert heitara en að fá að
fara til hans. Hann hefur örugglega
tekið á móti þér með fangið fullt af
rósum. Þú sagðir mér að það væru 3
lönd sem þig langaði að fara til; Nor-
egur, Ástralía og Hawaii. Við fórum
til Noregs, og vonandi náið þið pabbi
að fara til hinna tveggja saman núna.
Elsku mamma, takk fyrir allt sem
þú gerðir fyrir mig, Egil og tvíbbana
og allar yndislegu stundirnar sem
við áttum saman. Þú varst einstök
kona og þín verður sárt saknað.
Elísabet.
Tengdamóðir mín, Sigurlaug
Jónsdóttir eða Lilla eins og hún var
alltaf kölluð, lést hinn 1 sept. sl. Ég
kynntist Lillu þegar ég hóf samband
við Dugga son hennar fyrir 33 árum.
Lilla var afskapleg fróð, skemmtileg
og vel lesin kona og afburða minn-
isgóð. Hún var mikið fyrir að ferðast,
innanlands sem utan. Fórum við
saman í útilegur og sumarbústaði
innanlands, fórum til Glasgow í
nokkur skipti og var hún hrókur alls
fagnaðar í þeim ferðum, en á meðan
heilsa leyfði fór Lilla á hverju ári til
Glasgow.
Hennar mesta skemmtun var að
fara með honum Gunna sínum í utan-
landsferðir og fóru þau m.a. til Bras-
ilíu og Kína auk fjölda ferða um Evr-
ópu. Lilla fór einnig í nokkrar ferðir
til Bandaríkjanna og ferðaðist þar
með Valgarði bróður sínum sem er
búsettur þar. Árið 2001 fór Lilla í
bakuppskurð og fékk blóðtappa í
heila eftir þá aðgerð og var það mikið
áfall að uppgötva að uppskurðurinn
sem átti að skila svo miklu betri
heilsu tókst ekki og þurfti hún að
vera á sjúkrahúsi eftir það. En hún
átt góðan mann sem að studdi hana
og létti henni lífið. Á meðan Gunni
var heima tók hann hana heim allar
helgar og gaf henni kaffi og gat hún
verið heima hjá honum með aðstoð
nokkrar klukkustundir í senn. Gunn-
ar lést 7. janúar 2007 og var missir
hennar mikill og má segja að hún
hafi aldrei náð sér að fullu eftir það.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem.)
Ég þakka Lillu með þessum örfáu
orðum ánægjulega samfylgd í gegn-
um tíðina.
Helga.
Elsku amma, það er erfitt að
hugsa til þess að ég muni aldrei sjá
eða tala við þig aftur.
Ég man vel eftir því þegar við
Sindri heimsóttum þig á sjúkrahúsið
í sumar. Við sátum hjá þér í rúmlega
klukkutíma og spjölluðum um allt
milli himins og jarðar. Minningarnar
frá því að ég var yngri eru líka mjög
margar. T.d. þegar við spiluðum ól-
sen ólsen og notuðum alltaf litlu spil-
in. Og alltaf þegar ég vann bankaðir
þú í borðið. Svo þegar ég kom í heim-
sókn til ykkar afa í Raftahlíðina
leyfðir þú mér að fara inn í herbergi
og velja mér nokkra skartgripi. Eftir
nokkrar heimsóknir var ég næstum
því búin að velja mér alla skartgrip-
ina og á endanum gafstu mér bara
allt og kassa fyrir þá líka. Svo kall-
aðir þú mig draumadísina þína, mér
fannst það nafn alltaf svo flott. Já,
minningarnar eru margar og þeim
mun ég ekki gleyma. Ég veit hvað þú
saknaðir afa mikið. Núna ertu hjá
honum og ég veit að ykkur líður vel
saman. Í seinasta skiptið sem ég sá
þig varstu orðin mjög veik og sagðir
eiginlega ekki neitt. Nema þegar ég
var að fara. Þá tók ég í höndina á þér
og sagði að það hefði verið gaman að
hitta þig, og að við myndum hittast
aftur og þú svaraðir „já“. Og það
munum við líka gera einn daginn, á
öðrum stað. Þangað til veit ég að þú
fylgist með mér.
Ég vil bara þakka þér fyrir þau 18
ár sem ég fékk að vera með þér, ég
mun aldrei gleyma þér.
Þín draumadís,
Sigurlaug Helga.
Sigurlaug Jónsdóttir
Elsku amma, ég sakna þín.
Það væri gaman ef þú værir
hjá mér núna. Ég man þegar
þú komst til okkar að borða
jólamatinn og svo varst þú
alltaf svo góð að gefa mér
nammi. Núna ertu hjá Gunna
afa og þér líður vel hjá hon-
um, ég elska ykkur bæði.
Gunnar.
HINSTA KVEÐJA
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir,
amma, langamma og langalangamma,
SIGRÍÐUR HELGA STEFÁNSDÓTTIR,
Kópavogsbraut 83,
Kópavogi,
lést á líknardeild Landakotsspítala miðvikudaginn
10. september.
Árni Jóhannesson,
Svava Aðalsteinsdóttir,
Lovísa Aðalsteinsdóttir, Einar L. Benediktsson,
Guðlaug Jónína Aðalsteinsdóttir, Sigurður Geirsson,
Vernharður Aðalsteinsson, Anna R. Jónatansdóttir,
Alda Aðalsteinsdóttir, Ólafur Gunnar Þórólfsson,
Aðalbjörg Lúthersdóttir, Einar Jón Ólafsson,
Halldóra Lúthersdóttir, Valþór Söring Jónsson,
Kristín S. Lúthersdóttir Bekkevold, Alf Bekkevold,
Þorleif Lúthersdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og hluttekningu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og
afa,
BJÖRGVINS INGIMARS FRIÐRIKSSONAR,
Stapasíðu 2,
Akureyri.
Aðalbjörg Baldvinsdóttir,
Elvar Ingimarsson, Aldís Ósk Óladóttir,
Eva Ingimarsdóttir, Andrés Þór Björnsson,
Ómar Ingimarsson,
Natan Þór Elvarsson, Sigurður Orri Sigurðarson,
Andrea Marín Andrésdóttir, Ingimar Andri Ómarsson,
Benoný Breki Andrésson, Nökkvi Elvarsson,
Björgvin Brimi Andrésson.
✝
Þökkum auðsýnda samúð við andlát og útför
elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
ÁMUNDA REYNIS GÍSLASONAR,
Lækjasmára 8,
Kópavogi.
sem lést miðvikudaginn 20. ágúst.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Holtsbúðar í
Garðabæ sem annaðist hann síðastliðið ár.
Inga Lovísa Guðmundsdóttir,
Guðlaug Anna Ámundadóttir, Snorri Böðvarsson,
Gunnar Þorsteinsson,
Ásdís Ámundadóttir, Kjartan H. Bjarnason,
Guðmundur Ámundason, Elísabet Siemsen,
Ámundi Ingi Ámundason, Hanna G. Daníelsdóttir,
Reynir Ámundason, Guðrún H. Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kæru sveitungar og vinir nær og fjær,
fyrir hönd fjölskyldu eiginmanns míns heitins,
EGILS GUNNLAUGSSONAR
fv. héraðsdýralæknis,
vil ég þakka af alhug alla samúð og hlýhug sem við
höfum notið við andlát hans og útför. Það hefur
komið glöggt fram, hve mikinn sess Egill hefur
skipað í lífi okkar allra. Útfarardagur hans var í senn
virðulegur og hátíðlegur en einnig hlaðinn hlýhug
og einlægum söknuði yfir fráfalli hans. Hafið kæra
þökk fyrir allt.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir hönd barna og fósturbarna Egils og
fjölskyldna þeirra, systkina hans, bræðra minna,
móður minnar og allra annarra aðstandenda,
Elínborg Sigurgeirsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra er sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
BRYNJÓLFS SÆMUNDSSONAR
frá Borðeyri,
Dalbraut 27.
Guð blessi ykkur öll.
Aðstandendur.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir og afi,
GUÐBRANDUR ÁSMUNDSSON,
Lyngbrekku 21,
Kópavogi,
lést laugardaginn 6. september.
Jarðarförin fór fram frá Mosfellskirkju, föstudaginn
12. september.
Aðstandendur þakka veittan hlýhug og stuðning.
Magnea Gestrún Gestsdóttir,
Eygerður Guðbrandsdóttir, Jóhannes Sturlaugsson,
Gestur Guðbrandsson, Þórdís Sæmundsdóttir,
Katrín Ásmundsdóttir,
Oddný Ásmundsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
ÞÓRDÍSAR LOFTSDÓTTUR,
Odda.
Aðstandendur.