Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.09.2008, Blaðsíða 29
Hráskinkan er frá Parma og er ekki flokkuð sem slík nema hún sé þaðan og Parmiagno-osturinn sömuleiðis. Hvert hérað hefur sínar hefðir og ítölsk matargerð breytist úr héraði til héraðs en landinn er fremur íhalds- samur þegar kemur að matarborð- inu. Þrátt fyrir að hægt sé að fá flest matvæli, eins og grænmeti og ávexti, allan ársins hring með alþjóðavæð- ingunni, þá kjósa þeir fremur að borða þær á sínum náttúrulega upp- skerutíma og þá eru uppskriftirnar eftir því. Sjálf býr Halla Margrét stundum til salöt undir íslenskum áhrifum fyr- ir viðskiptavini barsins sem Ítölunum finnast óvenjuleg þar sem hráefnin eru ekki alltaf samkvæmt bókinni. „Það er ákveðnar reglur sem Ítalinn brýtur ekki. Þeir myndu t.d. aldrei setja ananas á pitsu eins og við. Í þeirra huga er ananas ávöxtur og ávextir fara ekki á mat. Ég kemst samt upp með að setja appelsínur í salatið,“ segir hún hlæjandi og viður- kennir að hinar íslensk-ítölsku sal- atuppskriftir hennar njóti nokkurra vinsælda. Kaffihúsið eins og leikhús Nafn barsins, Lundakaffi, á rætur sínar að rekja til Íslands. „Paolo heill- aðist af lundanum þegar hann kom til Vestmannaeyja. Það skírskotar einn- ig til leikhústrúðsins Pulcinella frá Napólí, þess í hvíta búningnum með svarta stóra nefið og hvítu hettunna. Ítölum finnst lundinn minna á trúð- inn og kalla hann La Pulcinella di mare eða trúðinn við sjóinn.“ Halla Margrét segir Lundakaffi vera dæmigerðan ítalskan hverfisbar og slík kaffihús eru oft eins og leik- hús. „Þeir eru mjög merkilegt fyrir- bæri í ítalskri menningu, þar sem all- ir þekkja alla. Bareigandi, eins og Paolo, er oft allt í senn prestur og sálusorgari, sálfræðingur og skemmtikraftur. Paolo er óhræddur við að segja sínar skoðanir við við- skiptavinina, skamma þá jafnvel og taka í gegn. Fyrir mér er þetta alveg ný tegund af þjónustu,“ segir hún hlæjandi. „ Það er mikið rifist um pólitík, en Paulo er hægrisinnaður í þessu vinstra hverfi og var í framboði fyrir hægri flokk í síðustu borgarstjórn- arkosningum. Hann er því ekki alltaf sammála viðskiptavinunum. Ég er stundum dauðhrædd um að enginn komi daginn eftir en alltaf er húsið fullt,“ segir óperusöngkonan fjölhæfa sem er vanari að syngja fyrir fullu húsi en að rökræða. ,,Nei, ég tek nú ekki lagið fyrir við- skiptavini á barnum en þeir fylgjast vel með mér og eru afskaplega stoltir af mér. Ég fæ stundum skeyti eða blóm þegar ég syng langt í burtu eins og núna í október, þegar ég syng í konunglega óperuhúsinu Teatro Re- gio í Torino. Eftir það kem ég heim og held tónleika bæði í Reykjavík og úti á landi, eflaust með góðum gest- um en allir tengjast þeir líknarfélag- inu Bergmáli sem mér finnst svo vert að styrkja,“ segir Halla Margrét. Vonandi gefst Íslendingum tæki- færi í framtíðinni til að detta um mat- ar- og menningarþúfurnar á Ítalíu undir leiðsögn óperusöngkonunnar og heimsækja skrautlegt Lunda- kaffið hennar. Dæmigerður hverfisbar Íslenskan og ítalskan bræðing er að finna á kaffihúsi þeirra hjóna. Nei, ég tek nú ekki lagið fyrir viðskiptavini á barn- um en þeir fylgjast vel með mér og eru afskap- lega stoltir af mér. Hugmyndin Nafn kaffihúsins, Caf- fetteria La Pulcinella eða Lundakaffi á rætur sínar að rekja til Íslands. úr bæjarlífinu MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. SEPTEMBER 2008 29 HVER hefur ekki heyrt óendanlega oft það heilræði að velja tröppurnar í stað lyftunnar. Nú hafa rannsak- endur við háskólasjúkrahúsið í Genf sýnt fram á að með því að velja tröpp- urnar þá minnki líkurnar á því að maður látist fyrir aldur fram um 15%. 77 starfsmenn sjúkrahússins fengu það hlutverk að nota stigana á ferð- um sínum milli hæða í stað lyftunnar. Var kyrrsetufólk sem hreyfði sig í minna en tvo tíma á viku valið til að taka þátt í rannsókninni. Þátttak- endur flökkuðu síðan fótgangandi milli hæða og gerðu allt frá því að fara samtals á milli fimm hæða yfir daginn og upp í 23 hæðir, en tilraunin náði yfir 12 vikna tímabil og luku 69 af 77 þátttakendum tilrauninni. Eftir tröpputímabilið hafði blóðþrýstingur þátttakenda fallið, súrefnisnýting lungna aukist, kólesteról lækkað, mitt- ismálið minnkað og eins höfðu þátttakendurnir lést. Samanlagt drógu allar þessar jákvæðu breytingar, að sögn dr. Philippe Meyer sem fór fyrir rann- sókninni, úr líkum á ótímabæru andláti um 15%. Vonast Mayer nú til að geta gert ýtarlegri rannsókn á stærri hópi. Tröppurnar lengja lífið Tröppugangur Það felst holl hreyf- ing í því að velja stigann. Þegar þetta birtist gæti staðan í fyrstu deildinni verið sú að ÍBV verði búið að tryggja sér sæti í efstu deild í knattspyrnu karla að ári. Áttu Eyja- menn að leika gegn KS/Leiftri fyrir norðan í gærkvöldi og með sigri gull- tryggja Eyjamenn efstu deildar sæt- ið. Takist það ekki eiga þeir tvo möguleika á ná þessum langþráða áfanga sem mun gleðja margt Eyja- hjartað því krafan hér á bæ er að ÍBV eigi að vera meðal þeirra bestu.    En það spila fleiri knattspyrnu en fullorðnir karlar og Eyjamenn eru stoltir af sínum stelpum í öðrum flokki kvenna sem urðu Íslandsmeist- arar eftir sannfærandi sigur á Vals- stúlkum á mánudaginn, 3:1. Öll mörk ÍBV skoraði Kristín Erna Sigurlás- dóttir sem þarna sækir í fótspor Mar- grétar Láru sem uppalin hjá ÍBV þó nú spili hún með Val. En það er sama hvort liðið er Valur, ÍBV eða bara eitthvert annað félag, ungar stúlkur í knattspyrnu eiga frábæra fyrirmynd í Eyjakonunni og íþróttamanni árs- ins, Margréti Láru Viðarsdóttur. Það eru fleiri sem gerðu það gott hjá ÍBV í knattspyrnunni í sumar því strákarnir í fimmta flokki karla geta líka fagnað frábærum árangri í sum- ar. Peyjarnir unnu til silfurverðlauna í tveimur flokkum, A og C sem verður að teljast góður árangur hjá liði sem kemur frá svona litlu bæjarfélagi.    Áætlanir eru uppi um að byggja hús undir Þekkingarsetur við smá- bátahöfnina í Vestmannaeyjum en mjög er farið að þrengja að starfsemi þess að Strandvegi 50. Bæjarstjórn stefnir að byggingu á 2.400 m2 húsi og er hugmyndin að þar verði bæði þekkingarsetur og Sæheimar sem stendur m.a. fyrir Náttúru- og fiska- safn sem þarna fær inni. Þekkingar- setrið er menntunar- og hátækniklasi sem að standa 36 fyrirtæki, m.a. há- skólar á Íslandi, Vestmannaeyjabær, Matís, Hafró, Hitaveita Suðurnesja, Vinnslustöð og Ísfélag. Tilgangurinn er að stuðla að aukinni þekkingu og fjölbreytni atvinnulífs í Vestmanna- eyjum með fræðslustarfi, vísinda- rannsóknum og nýsköpun.    Viska-símenntunarmiðstöð, sem nú er að hefja starf á haustönn, hefur undanfarin ár opnað fólki í Eyjum dyr að námi á flestum skólastigum, auk fjölda námskeiða sem í boði eru á hverju ári. Þetta hafa Eyjamenn kunnað að meta, bæði hafa þeir nýtt sér möguleikann á fjarnámi og líka verið duglegir að sækja námskeið. Meðal þess sem boðið er upp á er réttindanám í verðbréfum, viðbrögð við svefnleysi, íslenskunám fyrir út- lendinga, hvernig á að klæða sig og matargerð þar sem fólk fær að kynn- ast leyndardómum kartöflunnar, vín- smökkun og súpugerð.    Áþriðjudaginn, 9. september, voru tíu ár liðin frá því að háhyrningurinn Keikó kom til Vestmannaeyja. Keikó fæddist við Íslandsstrendur 1976, en var fangaður þremur árum síðar og seldur til þjálfunar í Bandaríkjunum. 1993 sló Keikó í gegn í kvikmyndinni Free Willy og lék einnig í tveimur framhaldsmyndum. Heill hópur vís- indamanna og aðstoðarfólks fylgdi Keikó til Vestmannaeyja þar sem til stóð að þjálfa hann og sleppa að því búnu. Í desember 2003 greindist há- hyrningurinn með lungnasjúkdóm sem varð honum að bana við Noregs- strendur hinn 12. desember sama ár.    Guðrún VE-122 hefur kvatt heima- höfn í Eyjum. Báturinn hefur verið mikið happafley og þjónað Eyja- mönnum vel, auk þess að vera e.t.v. þekktastur fyrir að veiða Keikó á sín- um tíma. Báturinn var byggður í Brattvaag í Noregi 1964 og yfir- byggður árið 1989. Skipinu var siglt frá Eyjum áleiðis til Álasunds í Nor- egi. Ásar í Hafnarfirði áttu og gerðu Guðrúnu út fyrstu 24 árin og var hún þá Guðrún GK 37, síðar VE-122 og var þá í eigu Sæhamars í 20 ár, eða frá 1988 er hún var keypt til Eyja. Guðrúnu var lagt fyrir um ári og hef- ur legið í Vestmannaeyjahöfn síðan. VESTMANNAEYJAR Ómar Garðarsson Minn draumur er að bjóða Ís- lendingum upp á gourmet mat- ar- og menningarferðir til Ítalíu, þar sem ekki væri aðeins farið á veitingahús heldur einnig fylgst með framleiðslu hráefnanna, ostsins og hráskinkunnar og haldin stutt námskeið um ákveðna þætti matargerðarlistar Ítala, bæði mat og vín. Hún er svo einstök og margbreytileg og það er svo mikil stemning í kringum hana,“ segir Halla Mar- grét af ástríðu. Ég hafði sam- band við vinkonu mína, hana Guðrúnu Sigurðardóttur í Íslandtours í Lecco og við erum að skipuleggja slíkt ævintýri fyr- ir Íslendinga í haust og vor.“ www.islandtours.it Margbreytileg matarmenning Fundur um málefni aðstandenda geðsjúkra Glímutök geðsjúkdóma á aðstandendum 18. september á Grand Hótel Reykjavík kl. 19:00-20:30 í samvinnu AstraZeneca, Geðhjálpar og Geðsviðs LSH. annt um líf og líðan Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra setur fundinn. Fundarstjóri: Þórgunnur Ársælsdóttir, geðlæknir. 18:30-19:00 Hressing og skráning. Fyrirlesarar: 19:00-19:40 Pete Earley, aðstandandi og höfundur bókarinnar CRAZY: a Father´s Search Through America´s Mental Health Madness sem tilnefnd var til Pulitzer bókmenntaverðlaunanna 2007. 19:40-19:55 Rebbi og græni frakkinn - ætluð börnum geðsjúkra. 19:55-20:15 Hulda Dóra Styrmisdóttir, aðstandandi: „Hafa skal það sem betra reynist“ 20:15-20:30 Samantekt/Umræður Skráning á fund: Katrín Sveinsdóttir sími 535-7186 katrin@veritascapital.is í síðasta lagi fyrir 17. sept.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.