Morgunblaðið - 19.09.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra segir að þær
hamfarir sem hafi átt sér stað á erlendum fjár-
málamörkuðum í vikunni muni hafa áhrif um allan
heim en hann vonar að þær muni ekki hafa bein
áhrif á fjárhag einstakra fyrirtækja hér á landi,
áhrifin verði miklu fremur óbein og komi fram í
því að erfiðara verði að nálgast lánsfé.
Það sé ljóst að atburðir vikunnar, þ.m.t. gjald-
þrot stórbanka, muni segja til sín. Miklar sveiflur
hafi orðið á mörkuðum og fleiri hávaxtamyntir en
sú íslenska hafi veikst. „Ég tel hins vegar að
ástandið gagnvart íslensku krónunni sé tíma-
bundið. Ég tel að jafnvægisgengið sé miklu hærra
en þetta þó enginn geti sagt nákvæmlega hvar
það er. Hvenær hlutirnir rétta sig af er engin leið
að segja til um. Það fer mjög mikið eftir því
hversu fljótt alþjóðlegir markaðir komast í jafn-
vægi aftur,“ sagði Geir í samtali við Morgunblaðið
í gær.
Aðspurður hvort hann teldi að íslenska krónan
myndi styrkjast fyrir áramót sagði Geir að það
væri mjög erfitt að spá um það. „En það kæmi
mér ekki á óvart. Ég held hún sé töluvert fyrir
neðan það sem eðlilegt getur talist. Það skýrist af
þessum aðstæðum.“
Hópurinn ekki valinn
Á ársfundi Seðlabankans í mars sagði Geir að
gera þyrfti úttekt á peningamálastefnunni og
reynslunni af henni í samvinnu við Seðlabankann.
Til þessa verks yrði að fá færustu sérfræðinga,
jafnt innlenda sem erlenda. Geir minnti á það að
þetta yrði gert þegar færi að hægjast um en það
væri spurning hvenær menn teldu að sá tími væri
kominn. Hvorki væri búið að velja menn í þennan
hóp né ákveða hvenær starfið myndi hefjast.
Ástand krónu tímabundið
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra sigraði með glæsibrag í keppni í
vistakstri í gær. Keppti hann við fulltrúa Landverndar, Toyota, VÍS og
Orkuseturs. Fór keppnin fram á alþjóðlegu ráðstefnunni um orkugjafa
framtíðar í samgöngum, Driving Sustainability, í gær.
Með keppninni hófst vistakstursátak Vistverndar í verki. Notaðir
voru fimm ökuhermar sem Toyota í Evrópu hefur gefið. Einnig fengu
umhverfissamtök í Hollandi, Belgíu, Noregi og á Spáni eins vistakst-
ursherma. Þeir verða notaðir á námskeiðum í vistakstri. Landvernd
heldur utan um verkefnið en bakhjarlar þess eru ríkisstjórnin, Toyota
á Íslandi og VÍS. Ökukennarafélag Íslands, Orkusetrið og Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda verða í samvinnu við Landvernd um nám-
skeiðin. | 12
Morgunblaðið/G. Rúnar
Geir sigraði með glæsibrag
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
„VIÐ keyrum börnin okkar alltaf í
íþróttir í Laugardalinn vegna þess að
við viljum ekki láta þau ganga í gegn-
um dalinn. Hann er einfaldlega ekki
öruggur og það heyrir til undantekn-
inga ef börn eru þar á gangi.“
Þetta segir móðir níu ára barns um
ástandið í Laugardal, sem mörgum
foreldrum ofbýður vegna áreitis og
jafnvel ofbeldis gagnvart börnum og
fullorðnum. Síðasta uppákoman varð
fyrir skömmu þegar sonurinn fann
sprautunálar í Laugardal og segir
móðir hans að það hafi ekki verið í
fyrsta skipti. Hún segist hafa vakið at-
hygli lögreglu á ástandinu, sem
löngum er látið afskiptalaust og sakn-
ar hún viðbragða þaðan.
„Það vantar til dæmis lýsingu á 50
metra göngukafla í nágrenni við Hús-
dýragarðinn og þar hefur ýmislegt
gerst,“ segir móðirin. „Það hefur verið
ráðist á krakka og i-Pod-tækjum rænt
af þeim svo dæmi séu tekin. Móðir mín
lenti þá í því að maður beraði sig fyrir
framan hana. Þá hafa ungir drengir,
líklega án ökuleyfis, verið á svæðinu á
mótorhjólum og það liggur við að
svæðið sé orðið eins og fríríki. Það
myndi strax verða til mikilla bóta ef
lögreglan gæti tekið göngutúr í gegn-
um dalinn einu sinni í mánuði eða
önnur gæsla sett í gang.“
Fíkniefnasalar á sveimi
Hún segir svæðið stórt og hundruð
krakka stunda íþróttir á svæðinu.
Einnig er útikennsla í grunnskólum
stunduð á svæðinu að ógleymdum
þeim þúsundum manna sem koma
þangað yfir sumartímann. Móðirin
segist vita til þess að útigangsmenn
haldi til og gisti í Laugardalnum og þá
hafi fíkniefnasalar haldið inn á svæðið
til að sitja fyrir unglingum eftir sam-
ræmdu prófin. „Það er því miður ým-
islegt sem grasserar á þessu svæði og
þetta er samfélagslegt vandamál sem
þarf að leysa. Ástandið hefur verið að
versna á skömmum tíma og við þurf-
um að spyrja okkur hvort við ætlum
að halda í Laugardalinn eða láta hann
drabbast niður.“
Vilja ekki að börnin
gangi ein í Laugardal
Morgunblaðið/Frikki
Laugardalur Vinsæll göngustaður
en hann á sínar skuggahliðar.
Í HNOTSKURN
»Í apríl 2006 var 15 árastúlka á gangi í gegnum
Laugardalinn eftir djassball-
ettæfingu og þegar hún kom
inn á Holtaveginn varð hún
fyrir árás ungs manns sem
barði hana með hafnabolta-
kylfu. Henni tóks að hrekja
hann í burtu en ákvað að fara
aldrei framar gangandi á æf-
ingu heldur láta mömmu sína
keyra sig. Mildi var að hún
slasaðist ekki í árásinni.
RÚMLEGA eitt hundrað manns voru á borgarafundi í Kópavogi í gær þar
sem skipulags- og umhverfissvið Kópavogs kynnti skipulag fyrir Glað-
heima og Skógarlind. Fundargestir vörpuðu fram gagnrýnum spurningum
til fulltrúa bæjarins en umræðan fór vel fram að sögn Þórs Jónssonar, upp-
lýsingafulltrúa Kópavogs.
Á Glaðheimasvæðinu stendur til að breyta hesthúsahverfi í svæði fyrir
verslun og þjónustu og að hluta til í blandaða landnotkun verslunar, þjón-
ustu og íbúðasvæðis. Lóð áhaldahúss Kópavogs breytist úr athafnasvæði í
blandaða landnotkun verslunar, þjónustu og íbúðasvæðis.
Í Lindum IV er um að ræða flutning á höfuðstöðvum Norvikur hf. í
Kópavog en þar vinna um 100 manns. Norvik er m.a. móðurfélag BYKO.
Umsagnarfrestur vegna Lindasvæðisins rennur út 7. október en frestur
vegna Glaðheimasvæðisins rennur út 22. september. orsi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Glaðheimasvæðið kynnt á
vel sóttum borgarafundi
GENGI bréfa deCODE Genetics,
móðurfélags Íslenskrar erfðagrein-
ingar hélt áfram ferð sinni niður á
við í kauphöllinni í New York í gær.
Var lokagengi félagsins 0,40 dalir og
hafði þá lækkað um 4,76% frá upp-
hafi viðskipta.
Gengi deCODE undanfarna daga
tengist væntanlega hremmingum á
erlendum hlutabréfamörkuðum, en
fjárfestar hafa unnvörpum flúið fjár-
festingar sem þykja áhættusamari
en aðrar. Þá hafa komið fram
áhyggjur um eiginfjárstöðu félags-
ins. Gengi bréfa félagsins hefur þá
lækkað um 53% frá því á föstudag og
er markaðsvirði deCODE nú um 2,3
milljarðar króna.
Fyrst þegar félagið var skráð á
markað í New York var gengi bréfa
þess 18 dalir á hlut og fór mest upp í
31,5 dali. Fór gengið svo ört lækk-
andi eftir það. Áður hafði gengi
bréfa í deCODE farið yfir 60 dali á
gráa markaðnum hér heima á Ís-
landi. bjarni@mbl.is
Ekkert lát
á lækkun
deCODE
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTI
hefur gert athugasemdir við starfs-
tíma fimmtán framhaldsskóla sem
uppfylltu ekki ákvæði reglugerðar
um samanlagðan fjölda kennslu- og
prófadaga nemenda. Samkvæmt
lögum um framhaldsskóla skal ár-
legur starfstími nemenda ekki vera
skemmri en níu mánuðir, þar af
skulu kennsludagar eigi vera færri
en 145.
Meðalfjöldi reglulegra kennslu-
daga í framhaldsskólum var 148 á
liðnu skólaári sem er aukning um
tvo daga frá skólaárinu 2006-2007.
Að teknu tilliti til annarra kennslu-
daga hafi allir framhaldsskólar
landsins uppfyllt kröfur um fjölda
kennsludaga. Þeim skólum sem ekki
uppfylltu ákvæðin hefur verið bent á
þá áherslu ráðuneytisins að skóla-
meistari og skólanefnd sjái til þess
að nemendur fái þann heildarfjölda
kennslu- og prófdaga á árlegum
starfstíma skóla sem lög og reglu-
gerð kveða á um. thuridur@mbl.is
Starfstími
of stuttur