Morgunblaðið - 19.09.2008, Side 15

Morgunblaðið - 19.09.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 15 FRÉTTIR BORGARRÁÐ samþykkti á fundi sínum í gær að greiða áfram helming launa og launakostnaðar Þorvaldar Víð- issonar miðborg- arprests á árinu 2009. Þetta fyrir- komulag hefur tíðkast síðan haustið 2006 og kemur fram í bréfi formanns sóknarnefndar og sóknarprests Dómkirkjunnar að fyrirkomulagið hafi borið góðan ár- angur „eins og árangursskýrslur Dómkirkjunnar bera með sér. Þar hefur einnig komið greinilega í ljós hve mikil þörf er fyrir þessari starf- semi,“ líkt og segir í bréfinu. Árslaun miðborgarprests nema 9,1 milljón króna, samkvæmt úr- skurði kjararáðs. Hlutur Reykjavík- urborar nemur því um 4,6 milljónum króna. En Dómkirkjan mun fram- vegis eins og hingað til leggja til starfsaðstöðu prestsins. Í fyrrnefndu bréfi kemur jafn- framt fram að starf miðborgarprests sé ekki þess eðlis að tjaldað sé til einnar nætur og „[ætti] það því að falla mjög vel að því þarfa átaki, sem borgin stendur nú fyrir til lausnar á því ófremdarástandi sem ríkir í mið- borginni um helgar.“ andri@mbl.is Helming- ur launa greiddur Þorvaldur Víðisson Ætti að falla vel að átaki borgarinnar Eftir Andra Karl andri@mbl.is HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað framkvæmdastjóra markaðsfyrirtækis af ákæru um brot gegn lögum um happdrætti, en fyr- irtækið keypti auglýsingapláss fyrir spilavefinn Betsson.com í íslenskum fjölmiðlum. Fyrirtækið sem stendur að baki Betsson er sænskt og hefur leyfi til veðmálastarfsemi. Það hefur hins vegar ekki leyfi til happdrætt- isrekstrar á Íslandi. Málið kom upp í lok mars árið 2006. Þá var lögreglustjórinn í Reykjavík beðinn um að rannsaka birtingu auglýsinganna, og fóru Ís- lenskar getraunir fram á að auglýs- ingarnar yrðu stöðvaðar. Sumir fjöl- miðlar hættu að auglýsa Betsson en þó ekki allir. Vefsíðan hýst erlendis Lögum samkvæmt er óheimilt að reka happdrætti hér á landi þar sem spilað er um peninga nema sam- kvæmt sérstakri lagaheimild. Það varðar sektum eða fangelsi allt að sex mánuðum ef einstaklingur rekur happdrætti eða veðmálastarfsemi hér á landi án þess leyfis. Og sömu viðurlög liggja við að auglýsa, kynna eða miðla upplýsingum um slíka starfsemi. Í dómi héraðsdóms segir að ákvæði laganna verði ekki túlkuð víðar en svo „að einungis sé lýst refsivert að auglýsa, kynna eða miðla upplýsingum um þá starfsemi af greindum toga sem rekin er hér- lendis án tilskilins leyfis. [...] Liggur ekkert annað fyrir í málinu en að umrædd vefsíða sé hýst erlendis og að sú starfsemi sem hún kynnir fari að öllu leyti fram utan íslenskrar lög- sögu“. Var af þeirri ástæðu ekki annað hægt en sýkna framkvæmdastjór- ann í málinu. Leyfilegt að auglýsa Betsson Eftir Hlyn Orra Stefánsson í Lundúnum FÁTT annað en fjármálakreppa og framtíð Gord- ons Browns kemst að í breskum fjölmiðlum um þessar mundir. Og að mörgu leyti tengjast þessi tvö fréttamál. Stuðningur við Verkamannaflokkinn fer minnkandi, sér í lagi við leiðtogann Brown, og hefur það að hluta verið rakið til ótta vegna fjármála- kreppunnar. Breskir fjölmiðlar hrósuðu hins vegar Brown í gær fyrir djarfan leik sem muni minnka áhrif kreppunnar, en hann er sagður eiga stóran þátt í því að yfirtaka Lloyds TSB á HBOS verður líklega að veruleika. Kreppan heimsækir Bretland Hingað til virðist almenningur hér í Bretlandi hafa talið að fjármálakreppan væri fyrst og fremst vandamál bankamanna – og þá sérstaklega banda- rískra bankamanna – sem enn væri langt í að næði til almennings. Eftir að fréttir tóku að berast af vandamálum HBOS, sem er stærsti íbúðalánveit- andi Bretlands, tók þó að fara um fjölmarga, enda á einn af hverjum tíu Bretum sparifé í bankanum og hjá honum starfa um 72 þúsund manns. Verðmæti bréfa bankans féll um 22% á þriðjudag, eftir að hafa fallið um 18% daginn áður, og margir óttuðust hið versta ef óttaslegnir sparifjáreigendur hlypu til og tækju allt fé sitt út úr bankanum. Fréttum af neyðaryfirtöku breska fjármálafyr- irtækisins Lloyds TBS á HBOS var því fagnað. Blöðin slógu því upp sem forsíðufrétt að HBOS yrði bjargað fyrir horn, sem fréttaskýrendur og álits- gjafar segja að muni draga verulega úr áhrifum fjármálakreppunnar á breska hagkerfið. Margir gengu jafnvel enn lengra, t.d. leiðarahöfundur í The Times sem fullyrti að sautjánda september og yf- irtökunnar á HBOS yrði minnst sem vendipunkts í sögu nútímafjármálastarfsemi: „Sautjánda septem- ber verður minnst sem fordæmislauss dags í sögu hins frjálsa markaðar og nútíma fjármálastarf- semi.“ Reglur settar til hliðar Gordon Brown er eins og áður sagði hrósað fyrir hlut sinn í málinu, sem þó er enn nokkuð óljós. The Times fullyrðir að Brown hafi hitt stjórnarformann Lloyds sl. mánudag til að greina honum frá því að ríkisstjórnin muni greiða fyrir yfirtökunni. Frá Downing-stræti hafa þær fréttir borist að séð verði til þess að samkeppnislög komi ekki í veg fyrir yf- irtökuna, en undir venjulegum kringumstæðum myndi samruni banka af þessari stærðargráðu þarfnast rækilegrar skoðunar samkeppnisyfir- valda. Væntanleg yfirtaka mun þó hafa sínar dökku hliðar. Breskir fjölmiðlar áætla að allt að 40 þúsund störf hjá Lloyds og HBOS séu í hættu. Fréttir um uppsagnir af slíkri stærðargráðu fara sérstaklega illa í Breta um þessar mundir, enda voru í fyrradag birtar tölur sem sýna að þeim sem skráðir eru á at- vinnuleysisbætur fjölgaði um 32.500 í síðasta mán- uði, sem er mesta aukning í einum mánuði í sextán ár. Hægri/vinstri deila enn á ný Hörmungardagar í fjármálaheiminum að undan- förnu hafa orðið til að blása auknu lífi í gamla hug- myndafræðibaráttu milli hægri- og vinstrimanna hér í Bretlandi. Þeir sem hallast til vinstri segja að nú hljóti menn að sjá að hinn villta fjármálamarkað þurfi að temja og aga með strangari reglum. Gordon Brown hefur verið gagnrýndur af með- limum vinstrisinnaðri hluta Verkamannaflokksins fyrir að hafa ekki barist fyrir reglusetningu af slíku tagi, og leiðarahöfundur The Guardian sagði í vik- unni að nú þyrfti að setja strangari reglur um fjár- málamarkaði til að koma í veg að lægðin yrði í lík- ingu við kreppuna miklu. Leiðarahöfundur í The Times tók hins vegar öf- ugan pól í hæðina í fyrradag (en blaðið þykir vera hægra megin við The Guardian). Það sem síst af öllu eigi að gera nú sé að hemja hinn uppbyggilega eyðingarmátt kapítalismans, sem nú refsi fjármála- mönnum sem hafa hegðað sér heimskulega. „Mark- aðurinn sér til þess að þeir sem gera mistök séu dregnir til ábyrgðar fyrir þau. Það sem gagnrýn- endur hafa verið fljótir að kalla kapítalisma í kreppu, er í raun kapítalismi í framkvæmd.“ Græðgin og áhættan varð of mikil „Enn sem komið er hefur ástandið ekki haft áhrif á persónulega hagi mína,“ segir mér maður í áber- andi fínum jakkafötum og skínandi skóm, sem ég mæti fyrir utan eina aðalbygginguna í fjármála- hverfi Lundúna. „En ég vinn á fyrirtækjasviði og þannig hef ég auðvitað orðið var við kreppuna. Ég gæti misst starfið, en þangað til það gerist hef ég engar áhyggjur.“ Hann segist ekki vilja láta nafns síns getið, „þrátt fyrir að þetta birtist í íslensku blaði sem enginn les“, eins og hann orðar það. „Þetta eru viðkvæmir tímar, sérstaklega fyrir okkur sem vinnum í fjár- málageiranum.“ Undanfarna daga hafa verið sagðar fréttir af uppsögnum í City, fjármálahverfi Lundúna, enda var t.d. Lehman Brothers með útibú þar og 4.500 starfsmenn. „Ég get ekki sagt að ég vorkenni þeim sem hafa misst vinnuna,“ segir viðmælandi minn. „Það var búið að veðja á mjög áhættusamar fjár- festingar og búið að græða mikið á spákaup- mennsku. Græðgin var einfaldlega orðin of mikil.“ „Helstu afleiðingarnar sem fjármálakreppan mun hafa á mig, er að hún mun leiða til þess að Verkamannaflokkurinn missir völdin,“ segir Will Roberts, háskólanemi í Brighton. Hann segir að þar sem hann sé ekki með húsnæðislán og algjörlega eignalaus, hafi hann ekki áhyggjur af beinum afleiðingum kreppunnar. „Missi Verkamannaflokkurinn völdin mun það hins vegar hafa áhrif fyrir mig. Ég þarf að sjá fyrir ungu barni, og hef ekki trú á að Íhaldsflokkurinn muni skapa skilyrði sem geri það auð- veldara fyrir mig. Auk þess munu námsmenn almennt hafa það verra ef íhaldsmenn komast til valda.“ Hann segir það kaldhæðnislegt að íhaldsmenn gagnrýni nú Verkamannaflokkinn fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir kreppuna með því að setja strangari reglur um fjármálamarkaði. „Það er auðvelt að vera gagnrýninn þegar maður er í stjórnarandstöðu. En ég er ekki í nokkr- um vafa um að íhaldsmenn hefðu ekki komið í veg fyrir það ástand sem nú hefur skapast.“ Mun sjá eftir Verkamannaflokknum Neal Cachmore, sem ég geng upp að þar sem hann er að gera sig kláran til að dytta að einum turni fjármálahverfisins, segist ekki vorkenna bankamönnum sem nú missa vinnuna. „Þeir hljóta að hafa vitað hvað myndi gerast. Ég rek mitt eigið bygg- ingafyrirtæki, og þekki af eigin raun að maður veit alltaf hvernig maður stendur; maður veit hvað kemur inn og hvað fer út og hvaða skuldbindingar maður hefur tek- ið á sig.“ Neal segist ekki hafa áhyggjur af því að fjármálakreppan hafi áhrif á hann per- sónulega. „Ég er rólegur yfir þessu öllu saman enda er alltaf nóg að gera hjá mér. Við höfum lent í kreppu áður og munum vinna okkur út úr henni líkt og þá.“ Áttu að sjá þetta fyrir Reuters Kreppir að Starfsmaður útibús bandaríska fjárfestingarbankans Lehman Brothers í Lundúnum tekur pokann sinn en uppsagnir í City, fjármálahverfi Lund- úna, hafa verið kunngerðar. Eftir að fréttir tóku líka að berast af vandamálum HBOS, sem er stærsti íbúðalánveitandi Bretlands, tók að fara um fjölmarga. Vendipunktur í fjármálasögunni?  Fjármálakreppa og framtíð Gordons Browns eru nú efst á baugi í Bretlandi  Græðgin einfaldlega of mikil segir vegfarandi við fréttaritara Morgunblaðsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.