Morgunblaðið - 19.09.2008, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
EMBÆTTISMENN í Bandaríkjun-
um óttast nýtt kosningaklúður 4.
nóvember þegar kosið verður á milli
forsetaefnanna Johns McCains og
Baracks Obama. Embættismennirn-
ir óttast m.a. langar biðraðir, tækja-
bilanir og rugling vegna reglna sem
eru mismunandi eftir ríkjum. Þetta
gæti orðið til þess að þúsundir
manna gætu ekki greitt atkvæði í
forsetakosningunum.
Breytingarnar auka hættu
á vandamálum
Búist er við að kjörsóknin verði
mikil þar sem margir hafa skráð sig
á kjörskrá síðustu mánuði. Á sama
tíma er víða verið að breyta fyrir-
komulagi kosninganna með nýjum
tækjum og reglum til að afstýra
klúðri eins og árið 2000 og deilum um
niðurstöðu kosninganna eins og fyrir
fjórum árum.
Í sumum borgum og sýslum hefur
fyrirkomulaginu verið breytt frá for-
kosningum demókrata og repúblik-
ana sem lauk fyrr á árinu. Níu millj-
ónir kjósenda eiga að nota búnað
sem hefur breyst frá því í mars, með-
al annars í Ohio, Flórída og Color-
ado, ríkjum sem gætu ráðið úrslitum
í kosningunum í nóvember.
Svo miklar breytingar, sem eiga
að auka trú manna á kosningakerf-
inu, geta þegar upp er staðið aukið
hættuna á því að kosningarnar fari
úrskeiðis, einkum nú þegar búist er
við mikilli kjörsókn og margir ætla
að greiða atkvæði í fyrsta skipti.
Óttast kosningaklúður
Í HNOTSKURN
» Stóru flokkarnir hafaráðið fjölmarga lög-
fræðinga sem búa sig und-
ir kærur vegna álitamála,
allt frá skráningu til taln-
ingar.
» Alríkisstjórnin hefurvarið sem svarar 28
milljörðum króna í breyt-
ingar á kosningakerfinu.
Mikil kjörsókn og breytingar á kosningakerfinu auka hættu á löngum biðröðum,
tækjabilunum og deilum um álitamál í forsetakosningunum í Bandaríkjunum
NÝR forsætisráðherra Taílands, Somchai Wongsawat,
vottar konungi landsins virðingu sína við mynd af hon-
um eftir að hafa verið kjörinn í embættið á þinginu.
Somchai er mágur Thaksins Shinawatra sem hrökkl-
aðist úr embætti eftir mikil mótmæli. Andstæðingar
Thaksins hétu því að koma máginum líka frá völdum.
AP
Mágur Thaksins kemst til valda
YFIRVÖLD í Gautaborg í Svíþjóð
hafa ákveðið að hætta að kaupa
vatn á flöskum fyrir starfsmenn
sína og hér eftir verða þeir að láta
sér nægja kranavatnið. Er það gert
af umhverfisástæðum.
Á síðasta ári keypti borgin
39.000 lítra af flöskuvatni fyrir
starfsmenn sína en því verður alveg
hætt 1. október næstkomandi að því
er Max Reijer, einn borgarstjórn-
armanna, tilkynnti.
„Vatn á flöskum er flutt um lang-
an veg og getur því alls ekki kallast
umhverfisvænt. Hinn kosturinn er
kranavatnið og í Gautaborg er það
sem betur fer fyrsta flokks.“
Reijer sagði, að það fé, sem spar-
aðist, væri betur komið annars
staðar. svs@mbl.is
Kaupa ekki
flöskuvatn
EVRÓVISJÓN hefur ýmist glatt
eða hrellt sjónvarpsáhorfendur allt
frá Belfast til Belgrad í rúm 50 ár
en nú er svo komið að ein álfa dugir
ekki evrópsku söngvakeppninni
lengur. Nú er komið að Asíubúum
að fá að njóta sýningarinnar.
Samband evrópskra sjónvarps-
stöðva, EBU, skýrði frá því í gær að
efnt yrði til fyrstu Asíuútgáfu
söngvakeppninnar á næsta ári.
Fimmtán Asíuríki ætla að taka þátt
í keppninni, sem nefnist Asíuvisjón,
þeirra á meðal Japan, Kína og Ind-
land.
Evróvisjón
til Asíu
UNGLINGUR sem sat í fangelsi
fyrir að vera illa girtur á almanna-
færi í Flórídaríki í Bandaríkjunum
hefur verið látinn laus. Samkvæmt
niðurstöðum dómara brjóta lögin,
sem hann var dæmdur samkvæmt, í
bága við stjórnarskrána.
Drengurinn var handtekinn fyrir
að vera í „sígandi buxum“ sem telj-
ast til tískufatnaðar og sáust 10 cm
af nærbuxum hans. Tilraunir til að
banna slíkar buxur verða æ tíðari í
Bandaríkjunum. jmv@mbl.is
Ólöglegar
nærbuxur?
SKELFINGIN meðal foreldra
ungra barna í Kína vex dag frá degi
enda vita fæstir enn hvort barnið
þeirra eða börn hafa skaðast af efn-
inu melamín, sem fundist hefur í
mjólk og mjólkurafurðum. Þora þeir
ekki lengur að gefa börnunum neitt
mjólkurkyns, ekki einu sinni ís, sem
líka er mengaður.
Kínverska lögreglan hefur hand-
tekið um 30 manns vegna rannsókn-
ar málsins og nærri eitt hundrað aðr-
ir hafa verið yfirheyrðir. Eiga 5.000
eftirlitsmenn að fara um landið allt
til að kanna efnainnihald mjólkur og
mjólkurafurða en vitað er að efninu
melamín, sem er bannað til neyslu,
var vísvitandi blandað í fóður og
mjólk til að afurðirnar virtust prót-
ínríkari en þær voru í raun.
Öll börnin sem hafa veikst, nokkuð
á sjöunda þúsund, drukku mjólk úr
dufti frá Sanlu-samsteypunni, helsta
framleiðanda mjólkurdufts fyrir
börn. Þar á bæ var þó ekki brugðist
við fréttum um veikindi barnanna
fyrr en Fronterra, samstarfsfyrir-
tæki Sanlu á Nýja-Sjálandi, fékk
Helen Clark, forsætisráðherra
landsins, til að beita sér gagnvart
kínverskum stjórnvöldum.
Lögreglan í Habai-héraði hefur
gert upptæk hundruð kílóa af mel-
amín og talsmaður hennar sagði, að
maður, sem nú væri í haldi, hefði við-
urkennt að hafa keypt 200 20 kílóa
sekki af melamín og selt þá bændum
eða mjólkurframleiðendum. Sagt er,
að þeir hafi fyrst blandað mjólkina
með vatni og síðan sett melamínið út
í til að prótíninnihald hennar virtist í
lagi.
Margir Kínverjar segjast skamm-
ast sín fyrir þau hneyksli sem upp
hafa komið í kínverskri matvæla-
framleiðslu. Henni sé ekki treyst-
andi og því kaupi nú margir bara út-
lenda vöru. svs@mbl.is
Eiturefnið líka
í kínverskum ís
Margir óttast inn-
lenda framleiðslu
AP
Fársjúkt Þetta barn var flutt mikið
veikt á sjúkrahús og þá kom í ljós, að
það var komið með nýrnasteina eftir
að hafa drukkið mengaða mjólk.
UTANRÍKISRÁÐHERRA Banda-
ríkjanna sagði í ræðu í gær að Rússar
væru ráðríkir á heimaslóðum og
sýndu yfirgang erlendis. Hún sagði
Rússland „stefna inn í aukna einangr-
un og myndu brátt skipta litlu máli“.
Reynt hefur verulega á stjórnmála-
samband Bandaríkjanna og Rúss-
lands eftir að átök blossuðu upp milli
Georgíu og Rússa í héruðunum Suð-
ur-Ossetíu og Abkasíu í síðastliðnum
mánuði.
Dímítrí Medvedev, forseti Rúss-
lands, hefur sagt það merki um
þröngsýni ef Washington og Moskva
stofni stjórnmála- og efnahagssam-
böndum í hættu vegna Georgíu.
Í ræðu sinnni sagði Rice ljóst að
Georgía hefði hafið leikinn með innrás
sinni í S-Ossetíu. Hegðun Rússa í
framhaldinu hefði hins vegar orðið til
þess að magna átökin verulega.
Hún lýsti yfir eindregnum stuðn-
ingi við Georgíu og sagði hvimleitt að
Rússar reyndu að ráðskast með
hverjir gengju í NATO og hverjir
ekki. jmv@mbl.is
Rússar í
einangrun
Condoleezza Rice
harðorð í garð Rússa
FÁIR tóku eftir því þegar fyrirtæki
Indverjans Chetans Maini setti raf-
bílinn Reva á markað fyrir sjö árum
því margir höfðu þá efasemdir um
að raunhæft væri að hefja fram-
leiðslu á bílum sem eru eingöngu
knúnir rafmagni.
„Hann var langt á undan sinni
samtíð,“ sagði Hormazd Sorabjee,
ritsjóri bílablaðsins AutoCar. „En
ef til vill vantaði hann vöðvaaflið og
pólitíska stuðninginn sem þurfti til
að slá í gegn, þess vegna er fyr-
irtækið enn svona lítið.“
Rafbílafyrirtækið Reva var stofn-
að 1994 og sjö árum síðar var raf-
bíllinn settur á markað. Þótt bíllinn
sé mjög ódýr í rekstri þykir hann
tiltölulega dýr á Indlandi, eða um
25% dýrari en aðrir smábílar. Eft-
irspurnin hefur ekki verið mikil á
Indlandi og fyrirtækið hefur því
hafið útflutning á rafbílnum til
landa þar sem salan á slíkum bílum
hefur stóraukist vegna hás bens-
ínverðs.
Rafbíllinn er seldur á almennum
markaði í Bretlandi, þar sem hann
nefnist G-Wiz, Grikklandi, Írlandi,
Ítalíu, Kýpur, Möltu, Noregi, Spáni
og Srí Lanka. Í Austurríki, Ástr-
alíu, Bandaríkjunum og Þýskalandi
hefur hann verið auglýstur sem
hagkvæmur kostur fyrir ýmis fyr-
irtæki, svo sem á sviði póstflutn-
inga. bogi@mbl.is
76?@1'A
5$ /B C-
B 6
$6+6+6
-!"
# 6" /: 6 6 -
(
!" # $%&'#
504 6 3 3 7 88 5#90
6
6
6
* 2
6( (# 6$
+$ +
2 (
7/6 + ?
() *
C ?
+ =C?
,!"&
7 ?
- ) .
& 'D
+ /
&
/0
&
.$
'& =2-!
1 ($% 22 "
3&
3.
+ 4 0)
7-)
.$
@1'AE7F;G=*H@F
G$# <
5!# %
.
6
; "&
7"/ !#
3&
0'
&
% 2
&
6
„Langt á
undan sinni
samtíð“