Morgunblaðið - 19.09.2008, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 31
Atvinnuauglýsingar
Þekkingarsetur Þingeyinga auglýsir
laust til umsóknar starf sérfræðings
Þekkingarsetur Þingeyinga er símenntunar-, háskólanáms- og
rannsóknastofnun sem staðsett er á Húsavík. Þekkingarsetrið er
sjálfseignarstofnun sem starfar innan og heldur utan um klasa stof-
nana á sviði þekkingarstarfsemi. Innan veggja Þekkingarsetursins
starfa Náttúrustofa Norðausturlands, Háskóli Íslands og
Heilbrigðiseftirlit Norðurlands eystra.
Um er að ræða 100% starf sérfræðings á rannsókna- og
þróunarsviði. Í starfinu felst m.a. að:
● Halda utan um rannsókna- og þróunarverkefni
Þekkingarsetursins,
● Hafa frumkvæði að rannsóknum og rannsóknaverkefnum,
● Vera tengiliður við rannsakenndur og nema í verkefnum,
● Þjóna vísinda- og fræðimönnum sem stunda rannsóknir
á svæðinu,
● Sjá um reglulegar rannsóknir, viðhorfskannanir og athuganir
Þekkingarsetursins.
Þekkingarsetur Þingeyinga hefur aðsetur á Húsavík, en starfssvæði
stofnunarinnar nær frá Fnjóskárdal í vestri til Bakkafjarðar í austri.
Til greina kemur að staðsetja ofangreindan starfsmann víðar en á
Húsavík, þ.e. innan starfsvæðis Þekkingarseturs Þingeyinga.
Umsækjendur skulu hafa lokið háskólagráðu (að lágmarki BA/BS)
á fræðasviði sem hentar í starfið. Umsækjendur þurfa að hafa
frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum, gott vald á ensku og
íslensku og lipurð í mannlegum samskiptum.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2008. Æskilegt er að umsæk-
jandi geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir og umsóknargögn skal
senda til Þekkingarseturs Þingeyinga, Óla Halldórssonar forstöðu-
manns, Garðarsbraut 19, 640 Húsavík, eða á netfangið oli@hac.is
Umsóknum skulu fylgja:
● Starfsferilsskrá (CV) - upplýsingar um menntun og
starfsreynslu.
● Umsagnir eða meðmæli.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum greint frá
ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.
Laun taka mið af kjarasamningi fjármálaráðherra og BHM.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir Óli Halldórsson,
forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga í síma 464 0444,
oli@hac.is
Tölvunarfræðingar
Tölvunarfræðingar geta bætt við sig verk-
efnum. Hugbúnaðargerð, samþætting,
vefsíður.
Upplýsingar í síma 899 0282 og 695 7793.
Forstöðumaður Starfsendurhæfingar á
Vestfjörðum
Starfshópur um starfsendurhæfingu á
Vestfjörðum auglýsir hér með eftir
forstöðumanni Starfsendurhæfingar á
Vestfjörðum með aðsetur á Ísafirði. Um er að
ræða nýja starfsemi í samræmi við stefnu
stjórnvalda um starfsendurhæfingu í heima-
byggð.
Hlutverk nýrrar stofnunar er:
að annast skipulag endurhæfingar
einstaklinga með skerta starfsgetu á
Vestfjörðum
að annast samningagerð um heilbrigðis-,
félags- og menntunarúrræði o.fl. við þar
tilbæra aðila
að bjóða upp á nám, endurhæfingu og
starfsþjálfunarúrræði
að hafa eftirlit með gæðum og árangri
úrræða
að annast samskipti við einstaklinga,
stofnanir, stjórnvöld og félagasamtök
að annast fjármálalega umsýslu stofnunar
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólapróf sem nýtist í starfi
Reynsla af rekstri, stjórnun og samningagerð
frumkvæði í starfi ásamt leiðtoga- og sam-
skiptahæfileikum
reynsla og þekking af málefnum mennta-
og/eða heilbrigðiskerfis æskileg.
Leitað er að jákvæðum og framtakssömum ein-
staklingi sem getur unnið sjálfstætt. Í boði er
fjölbreytt og spennandi framtíðarstarf við
stjórnun og stefnumótun í skemmtilegu um-
hverfi á landsbyggðinni. Nánari upplýsingar
veitir Arnheiður Jónsdóttir í síma 456 1337 eða
863 0961. Umsóknir skulu sendar á
Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Pólgötu 2, 400
Ísafirði merktar ,,Starfsendurhæfing” fyrir
1. október nk.*
*Áskilinn er réttur til að hafna öllum umsóknum og auglýsa að nýju
ef ekki finnst einstaklingur sem hentar starfseminni.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Framhaldsaðalfundi
frestað
Áður boðuðum framhaldsaðalfundi Hesta-
mannafélagsins Andvara fyrir árið 2007 þann
25. september 2008 er frestað til fimmtu-
dagsins 27. nóvember 2008.
Nánar auglýst síðar.
Stjórnin.
Kennsla
Próf í verðbréfaviðskiptum
2008-2009
Prófnefnd verðbréfaviðskipta stendur fyrir
prófum í verðbréfaviðskiptum veturinn 2008-
2009 sem hér segir: Próf í I. hluta verða haldin
1., 5. og 8. nóvember 2008, próf í II. hluta 24.,
28. og 31. janúar 2009 og próf í III. hluta 25. og
29. apríl, 2. og 6. maí 2009. Um prófin fer
samkvæmt reglugerð nr. 633/2003 um próf í
verðbréfaviðskiptum, með áorðnum breyting-
um. Öllum er heimilt að skrá sig til verðbréfa-
viðskiptaprófs.
Prófnefnd verðbréfaviðskipta tekur ákvörðun
um efni sem prófað er úr á verðbréfaviðskipta-
prófi og semur prófsefnislýsingu, sbr. 3. gr. re-
glugerðar nr. 633/2003. Í prófsefnislýsingu
greinir jafnframt upplýsingar um leyfileg
hjálpargögn í prófum o.fl., en lýsinguna má
nálgast á vefsíðu viðskiptaráðuneytis,
www.vidskiptaraduneyti.is (Prófnefndir >
Prófnefnd verðbréfaviðskipta). Lengd hvers
prófs er allt að 4 klukkustundir. Um undan-
þágur frá töku prófa fer skv. 4. gr. reglugerðar
nr. 633/2003. Einkunnir í einstökum prófum eru
gefnar í heilum og hálfum tölum frá 0 til 10.
Til þess að standast verðbréfaviðskiptapróf
þarf próftaki að hljóta a.m.k. 7,0 í meðaleinkunn
úr þeim prófum sem hann hefur þreytt og skal
próftaki hafa lokið öllum nauðsynlegum
prófum með fullnægjandi árangri innan þriggja
ára frá því að hann tók fyrsta prófið. Próftaki
telst ekki hafa staðist einstök próf hljóti hann
lægri einkunn en 5,0. Nánari upplýsingar um
verðbréfaviðskiptapróf má nálgast á fyrr-
greindri vefsíðu prófnefndar.
Próftökum verður tilkynnt um nákvæmari tíma-
og staðsetningu er nær dregur prófunum, sem
þreytt verða í húsakynnum á vegum Endur-
menntunar Háskóla Íslands í Reykjavík.
Skráning í prófin fer fram á vefsíðu Endurennt-
unar Háskóla Íslands, www.endurmenntun.is.
Próftakar verða að hafa skráð sig og greitt
prófgjald minnst einni viku fyrir sérhvert próf.
Prófgjald er kr. 9.000 fyrir hvert próf.
Reykjavík, 17. september 2008
Prófnefnd verðbréfaviðskipta
Tilboð/Útboð
Lóðir & lagnir
Einn verktaki í allt verkið
Tökum að okkur verk fyrir fyrirtæki, stofnanir,
húsfélög og einstaklinga. Grunnar, hellu-
lagnir, snjóbræðslulagnir, dren, skolplagnir,
lóðafrágangur, jarðvegsskipti, fleyganir,
smágröfuleiga o.fl. Gerum föst verðtilboð.
Guðjón, sími 897 2288.
Af hverju að bíða og bíða eftir stóra vinningnum þegar þú
getur unnið fyrir öllu sem þig langar að eignast? Það eina sem
þú þarft að gera er að bera út blöð í 1-3 tíma á dag.
Besta aukavinna sem þú getur fundið
og góð hreyfing í þokkabót!
Hringdu núna og sæktu um
í síma 569 1440 eða á mbl.is!
Sæktu um blaðberastarf
– alvörupeningar í boði!