Morgunblaðið - 19.09.2008, Qupperneq 34
34 FÖSTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Orð dagsins: Verðið heldur sjálfir heil-
agir í allri hegðun, eins og sá er heil-
agur, sem yður hefur kallað. (1Pt. 1, 15)
Sakamálaþættir í sjónvarpi eru íuppáhaldi hjá Víkverja. En
einn hlutur fer meira og meira í
taugarnar á Víkverja: persónuleg
tengsl lögreglumannanna við morð-
ingjahyskið, sem þeir elta uppi og
koma bak við lás og slá. Brezkir
þættir um raðmorðingja, þar sem
sálfræðingur leggur lögreglunni lið
og hefur gizka góða innsýn í hug-
arheim morðingja, fóru vel af stað
en hverfðust svo meir og meir um
sálfræðinginn þar til Víkverji var
næsta viss um að hann myndi fara
yfir strikið og praktísera það sem
hann predikaði. Víkverji hætti að
horfa á þessa þætti áður en til ham-
skiptanna kom. Þetta er náttúrlega
Ljósvaki að efninu til en Víkverji
engu að síður.
x x x
Í annarri sakamálaröð dugði ekkiminna til en að annar rann-
sóknarlögreglumaðurinn væri laun-
sonur raðmorðingjans. Þá var Vík-
verji orðinn svo harðsvíraður að
hann hafði enga samúð með sálar-
angist lögreglumannsins, heldur
hugsaði beint út að þetta væri hon-
um bara mátulegt fyrir að skemma
þættina fyrir Víkverja!
x x x
Síðasta vígið féll, þegar dáða-drengurinn hann Horatio
Crane var kynntur til leiks á nýjan
leik. Reyndar hefur persónulegt líf
hans verið anzi fyrirferðarmikið í
þáttunum en Víkverji hefur fyr-
irgefið svo margt fyrir drengjalega
hallandann á hausnum á Crane,
þegar mikið stendur til. En nú falla
öll vötn til Dýrafjarðar í nýju serí-
unni. Crane á í höggi við glæpa-
menn, þar sem unglingur nokkur
kveður sér hljóðs og hvað er hann
þá annað en sonur Crane! Þetta eru
allt orðnir fjölskylduþættir og saka-
málin komin í annað sæti.
Víkverji vill fá amerísku rann-
sóknarlögguna og einkaspæjarann,
sem sýpur rólegur á vískinu, en
þjarmar að glæponunum með stæl
og skilur heimilislífið eftir heima.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 alda, 4 skamm-
vinnur þurrkur, 7 minn-
ast á, 8 regnið, 9 leiði til
lykta, 11 skelin, 13 mik-
ill, 14 virðingu, 15 skip,
17 óvarkárni, 20 skelf-
ing, 22 Æsir, 23 fárviðri,
24 peningar, 25 læðast.
Lóðrétt | 1 dorga, 2 loð-
in hönd, 3 einkenni, 4
skafrenningur, 5 espist,
6 korns, 10 erting, 12
hvíld, 13 gyðja, 15 ávöxt-
ur, 16 grenjar, 18 ham-
ingju, 19 kasta, 20 ofnar,
21 hím.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kjarklaus, 8 forað, 9 nemur, 10 gys, 11 reisa,
13 aflar, 15 glens,
18 ótítt, 21 álf, 22 fagur, 23 álaga, 24 hannyrðir.
Lóðrétt: 2 jörfi, 3 ryðga, 4 lensa, 5 urmul, 6 æfar, 7 frár,
12 son, 14 fet, 15 gáfa, 16 eigra, 17 sárin, 18 ófáir, 19 íl-
aði, 20 traf.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Vel melduð slemma.
Norður
♠Á32
♥9875
♦94
♣DG65
Vestur Austur
♠D976 ♠1085
♥K6 ♥ÁDG10432
♦G86 ♦10
♣K1093 ♣87
Suður
♠KG4
♥--
♦ÁKD7532
♣Á42
Suður spilar 6♦.
Eyktarmenn náðu góðri forystu í
fyrstu lotu bikarúrslitaleiksins við
Breka jarðverk. Spilið að ofan var einn
sveifluvakinn, en þar komust Jón Bald-
ursson og Þorlákur Jónsson í ágæta
tígulslemmu, sem fór forgörðum á hinu
borðinu. Þorlákur vakti í suður á
sterku laufi og Jón afmeldaði með 1♦.
Austur á góðan sjölit í hjarta, en Júlíus
Sigurjónsson lét 2♥ duga, ef til vill í
ljósi þess að hann var á hættu gegn ut-
an hættu. Þorlákur gat þá sýnt tígulinn
eðlilega á þriðja þrepi. Jón sagði 3♥ í
leit að 3G, en Þorlákur sneri því upp í
slemmuleit með 4♥ á móti. Sigurður
Vilhjálmsson í vestur doblaði út á ♥K,
doblið gekk til Þorláks og hann redo-
blaði til að sýna fyrstu fyrirstöðu. Jón
sagði 4♠ og Þorlákur 6♦.
Tólf léttir slagir með því að vinna úr
laufinu.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Einungis þú getur tekið þessa
ákvörðun – og innan vissra tímamarka. Ef
þú ákveður að taka hana ekki, verður það
gert fyrir þig. Hvernig sem fer, þarftu
ekki að hafa áhyggjur.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það reynir á andlega hæfni þína – á
skemmtilegan hátt. Vini gæti fundist
gaman að leika sér eða þá að viðskipta-
vinur reynir á huga þinn við að leysa
vandamál.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú óskar þess að þú gætir komið
á skipulagi og að það endist að eilífu. Því
miður tekur líf þitt stöðugum breytingum
og þú þarft að betrumbæta þig.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Það er huggun í því að vita hvað
morgundagurinn ber í skauti sér. En líka
frekar leiðilegt. Vertu opinn fyrir óvæntu.
Annað er eins og að ganga í svefni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú einbeitir þér að því að viðhalda
góðri heilsu þinni. Álit þitt á sjálfum þér
hefur mest að segja um hvernig þér líður,
andlega og líkamlega. Horfðu mikið í
spegil.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú leggur grunn að framtíðinni.
Það þýðir aukaálag og það tekur áreið-
anlega á taugarnar. Ekki gefast upp.
Þetta á eftir að margborga sig.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Gengur allt á afturfótunum í dag?
Það fer eftir því hvernig þú lítur á það.
Endurtaktu við sjálfan þig: „Þetta eru
bara aðstæður og ég ræð við þær.“
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú þráir athygli. Stígðu á svið
lífsins og haltu sýningu. Þú hressir heldur
betur upp á liðið sem var farið að taka
hlutina allt of alvarlega.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú gefur og heimtar meira en
flestir aðrir. Ekki vera of fljótur á þér að
játast verkefnum og fólki, því það á eftir
að éta upp allan þinn tíma.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú átt erfitt með að standast
markmið sem fela í sér að halda aftur af
þér. Þér gengur betur að bæta einhverju
hagnýtu eða heilsusamlegu við líf þitt.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Vinátta skiptir þig miklu máli.
Reyndar ertu hrifnari af platónskum
samböndum núna. Auk þess er vinátta
það langmikilvægasta í ástarsamböndum.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur ekkert að fela. Fyrir þér
er líf þitt opin bók. Samt skaltu ekki lesa
upp úr þeirri bók fyrir neinn í dag. Haltu í
dulúðina.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
19. september 1667
Gullskipið Het Wapen van
Amsterdam strandaði á Skeið-
arársandi og fórust þar um
140 manns. Skipið var hlaðið
dýrum farmi, gulli, silfri, perl-
um o. fl. Meira en þrjú hundr-
uð árum síðar var mikil leit
gerð að skipinu.
19. september 1802
Kona á Hellnahól í Rang-
árvallasýslu fæddi andvana
tvíbura, stúlkubörn sem voru
„samangróin frá öxlum niður
til naflans,“ eins og segir í
prestsþjónustubók Holts-
sóknar. Þótti þetta tíðindum
sæta.
19. september 1939
Þýskur kafbátur, U-30, kom til
Reykjavíkur með þrjá menn
sem slasast höfðu í árás á
breskt flutningaskip vestur af
Bretlandi. Þessi sami kafbátur
hafði sökkt breska farþega-
skipinu Athenia rúmum hálf-
um mánuði áður, 3. sept-
ember, á fyrsta degi síðari
heimsstyrjaldarinnar.
19. september 1956
Bólusetning við lömunarveiki
(mænusótt) hófst hér á landi.
Notað var bóluefni sem kennt
var við Salk.
19. september 1964
Mikil ölvun var í Reykjavík og
gistu 58 manns í fanga-
geymslur lögreglunnar. Mikið
bar á „sjómönnum sem ný-
komnir eru af síld fyrir norð-
an með fullar hendur fjár,“
eins og Morgunblaðið orðaði
það.
19. september 1981
Ellefu manna áhöfn Tungu-
foss var bjargað við mjög erfið
skilyrði í fárviðri á Erm-
arsundi. Skipið fékk á sig
brotsjó, lagðist á hliðina og
sökk. Fjögur skip fórust á
þessu svæði sama kvöldið. Ár-
ið eftir sæmdi forseti Íslands
björgunarmennina afreks-
merki.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Rafvirkinn Ómar Ingi Eggertsson fagnar 35 ára
afmæli í dag. Hann er fæddur og uppalinn á
Vestfjörðum, nánar til tekið á Flateyri. Und-
anfarin 10 ár hefur hann hins vegar búið á Reyð-
arfirði ásamt eiginkonu sinni og tveimur sonum,
sem eru 10 og 13 ára. Þeir æfa glímu með Val á
Reyðarfirði og eru verðandi glímukóngar, segir
stoltur faðirinn.
Í Reyðarfirði starfar Ómar Ingi sem verktaki í
álveri Alcoa Fjarðaáls þar sem hann vinnur við
forritun og bilanaleit. „Það eru allir mjög upp-
teknir hérna og það er ekkert atvinnusleysi,“
segir hann spurður út í lífið í bænum.
Auk þess að reka heimili og vera í fullu starfi er Ómar Ingi í fjar-
námi í Háskólanum í Reykjavík þar sem hann er á öðru ári í raf-
iðnfræði, en námið tekur alls þrjú ár. „Með fullri vinnu verður mað-
ur að hafa einbeitingu við það,“ segir hann um námið.
Hvað varðar daginn í dag segir hann að það sé ekki búið að skipu-
leggja neitt meiri háttar í tilefni dagsins. „Ég er á námskeiði, en svo
gerir maður sér glaðan dag seinni partinn að sjálfsögðu.“
„Ég hef alltaf haldið vel upp á tugina, en inn á milli hef ég ekki
verið að eltast við það neitt,“ segir Ómar Ingi og bætir við að nú
verði hann kannski að endurskoða það þar sem Morgunblaðið hafi
sett sig í samband við hann vegna afmælisins. jonpetur@mbl.is
Ómar Ingi Eggertsson er 35 ára í dag
Vestfirðingur á Austfjörðum
dagbók
Í dag er föstudagur 19. september,
263. dagur ársins 2008
Reykjavík Sonur Önnu
Ingigerðar Arnardóttur
og Garðars Kristjáns Hall-
dórssonar fæddist 17.
september kl. 14.34. Hann
vó 4.130 g og var 50 cm
langur.
Reykjavík Matthildur
Embla fæddist 4. maí kl.
12.27. Hún vó 3.465 g og
var 52 cm löng. Foreldrar
hennar eru Íris Katrín
Barkardóttir og Hjálmar
Jakob Grétarsson.
Reykjavík Dóttir Evu
Daggar Sigurðar-
dóttur og Magnusar H.
Nilsen fæddist 12.
september kl. 22.11.
Hún var 16 merkur og
52 cm löng.
Sudoku
Þrautin felst í því að
fylla út í reitina þannig
að í hverjum 3x3-reit
birtist tölurnar 1-9. Það
verður að gerast þannig
að hver níu reita lína
bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9
og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
1 8 7 9
2 6 3
2 3 6 7
4 6 3 5 9
8 4 9 5 2
3 5 1 2 4
5 8 6 7
9 6 2
7 2 3 6
6 1
8 5 6 9 4 3
1 5 2
5 4 6 1 3
1 6
3 9 2 8 1
5 3 6
6 9 3 8 5 2
1 9
5 2 8 1
6 4
3 7 9
9 3 4 2
5 7 4 8
1 4 8 3
3 2 7
1 6
2 8 3 6
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 d5 2. c4 Rc6 3. cxd5 Dxd5 4. Rf3
e5 5. Rc3 Bb4 6. Bd2 Bxc3 7. Bxc3 e4 8.
Re5 e3 9. fxe3 Rxe5 10. dxe5 Re7 11.
Dxd5 Rxd5 12. Bd4 Bf5 13. g4 Be4 14.
Hg1 b6 15. b3 c5 16. Bb2 a5 17. a4 Ke7
18. Kf2 Hhd8 19. Bg2 Bxg2 20. Hxg2
Ke6 21. g5 Hd7 22. Hg4 Re7 23. Bc3
Had8 24. Kf3 Rg6 25. Hgg1 Hd5 26.
Ke4 Rxe5 27. h4 f5+ 28. gxf6 gxf6 29.
Hg7 h5 30. Hb7 Rd7 31. Hg1
Staðan kom upp í landsliðsflokki
Skákþings Íslands sem lauk fyrir
skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur í Faxafeni 12. Alþjóðlegi
meistarinn Stefán Kristjánsson (2477)
hafði svart gegn kollega sínum Braga
Þorfinnssyni (2387). 31… c4! 32. Bd4
cxb3 33. Hb1 Hg8 34. Hxb3 Hg4+ 35.
Kd3 hvítur hefði orðið mát eftir 35. Kf3
Hf5#. 35… Rc5+ og hvítur gafst upp
enda hrókur að falla í valinn.
Svartur á leik.
Lausn síðustu Sudoku.Frumstig
Til að verða við óskum lesenda Morgunblaðsins
mun blaðið birta aftur þrjár sudoku-þrautir á dag.
Þrautirnar eru miserfiðar, auðveld, miðlungs og
erfið.
Svörin við gátum dagsins í dag verða birt í
blaðinu á morgun, en í dag er birt lausn gátunnar
sem var í blaðinu í gær.
Miðstig Efstastig
Nýirborgarar