Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 7

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 7
3 heimfæra þetta undir fyrstu liðina; sparsemin gerir fram- leiðsluna ódýrari, reglusemin gerir hana meiri, o. sv. frv. Það eru mörg ráð til þess að framleiða ódýrt, og mætti að sjálfsögðu halda sjerstakan fyrirlestur um hvert þeirra. Eg skal hjer að eins minnast á nokkur hin helztu, svo sem t. d. bætta túnrækt, betri hirðing áburðar, vatns- veitur, bætt kynferði húsdýra vorra með einfaldri kyn- blöndun, góðu fóðri og hirðingu, sem miði að vissu takmarki; og m. fl. Þess skal þó getið, að eigi að vænta góðs árangurs af þessum ráðum, þá þurfa helzt fleiri þeirra að haldast í hendur. Hvað aðra leiðina snertir, þá eru þær vörur, sem bóndinn þarf að koma í verð: kjöt, ull, smjör og hross. Auk þessa mætti nefna: gærur, skinn, tólg, garnir, bein og fl. smálegt. Eg skal nú með nokkrum orðum athuga hvað mjer sýnist helzt sje hægt að gera til þess að koma þessum fjórum aðalvörutegundum í hærra verð en nú á sjer stað. 1. Kjötið. Það nefni eg fyrst, enda má kalla það stærsta tekju- liðinn í búi bóndans. Það eru ekki mörg ár síðan, að hver kjötbiti sem sendur var, var Iagður inn hjá kaup- manninum, og hann borgaði hann sjaldnast með öðru en vörum. En, eins og áður er sagt, þá er kaupmaður- inn aldrei annað-en milliliöur. Eðlilega gérði hann ekki annað við kjötið en selja það öðrum kaupmanni. Gekk það þannig milli nokkurra kaupmanna, unz það, að síð- ustu, var selt manni, sem neytti þess —neytanda. Hversu margir þessir kaupmenn voru, sem keyptu kjötið og seldu það, sem milliliðir framleiðanda og neytanda, var nokkuð misjafnt, en færri en þrír voru þeir aldrei. Ef við grennslumst eptir því hvaða verð neytandi hafi mátt borga fyrir kjötið, þá er það ætíð hærra, en það l*

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.