Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 16

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 16
12 lit er tekið til þess, að fjelagið hefir orðið fyrir ófyrirsjá- anlegu, tilfinnanlegu óhappi, sem mjög hnekkti vexti þess og þrifum, verður ekki annað sagt en árangurinn sje ágætur. Af þessari litlu innlendu reynslu þykist eg sjá að það sje óhætt að ætla, að 10°/o muni hvert kaup- fjelag, sem vel er stjómað, geta borgað fjelögum sínum.* Og þó nú þessi gróði sje mikill, þá er þó óbeini hagnaðurinn af kaupfjelagsskapnum miklu meiri. Fje- lagsmenn fá meira traust á sjálfum sjer og landinu sínu, meiri hvöt til að starfa og meiri áhuga á starfi sínu. Peir finna samábyrgðina, sem einkennir allan samvinnu- fjelagsskap, og samlíf þeirra og fjelagslíf verður betra. f*eir losna úr skuldaklóm kaupmanna, sem sumstaðar á landinu eru allsterkar. Peir verða efnalega sjálfstæðir menn, sem geta miklast af því, að vinna landi og lýð gagn með fjelagsskapnum. Pýðing samvinnunnar er pvi, í stuttu máli: að bœta kjör einstaklingsins, gera hann sjálfstœðari og betri mann, sem vinni þjóðinni sinni og landinu sinu meira gagn. Og því verður sízt neitað að samvinnufjelögin geri þetta. Pað sjáum við beint fjárhagslega, ef við athugum hvað við íslenzku bændurnir getum grætt á samvinn- unni; og það er þá, eptir því, sem mjer telst til: 1. Með því að vera í kaupfjelagi. A hverju heimili eru að jafnaði 8 manns, og eptir verzlunarskyrslunum eru fluttar til landsins vörur, sem nema 200 kr. á hvert mannsbarn. Nú er minna af þessu notað í sveitinni en kaupstöðunum, segjum — og * Ef til vill er þetta fullhátt talið, enn sem koinið er. í síðasta ár- gangi Tímaritsins hefi eg áætlað 7 °/o, til jafnaðar, en vildi þá fara sem varlegast. En á því tel eg engan vafa, að 10—15% geti á- góðinn orðið, með bættu fyrirkomulagi og samtökum fjelaganna, og það að eins á þessari hlið viðskiptanna. S.J.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.