Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Blaðsíða 17
13
það mun láta nærri — að það sjeu um 150
krónur, sem keypt sje til heimilisins á hvern
MU ' 150 . 8 . 10
er pa —^
2. Með því að slátra öllu sínu fje í sláturhúsi.
Mjer telst svo til, að það muni vera sem
næst því 600 kílógrömm af kjöti, sem koma
á hvern bónda. Er þá reiknað með það,
sem selt er í kaupstöðunum. Nú er sízt
of hátt að reikna að kjöt sláturhúsanna
seljist 6 aurum betur hvert kílógramm, en
6 . 600 ..................................=
3. Með því að vera í rjómabúsfjelagi.
Pá fær bóndinn um 40 aurum meira fyr-
ir kílógr. af smjörinu. Til jafnaðar koma
2V2 kyr á heimili, 'og úr hverri kú fæst,
eptir því sem eg hygg rjettast og næst
meðallagi, um 80 kg. á hverju ári (auðvit-
að ætti enginn bóndi að láta sjer nægja
svo lítið smjör úr kúnni sinni). Starfaði
rjómabúið allt árið eins og það á að gera
og hægt er hjer sunnanlands, þá er þetta
að eins úr kúamjólkinni: 80.2V2.40 . =
4. Væri ullarsölufjelag, sem ljeti þvo alla ull-
ina eins, og jafn vel, og seldi hana síðan
beint til Ameríku, þá mundi óefað fást
undir helmingi meira fyrir hana en nú
fæst. Nú er flutt út ull fyrir 121 kr. af
hverju heimili, og hagnaðurinn yrði að
líkindum..................................=
5. Með hrossasölufjelagi.
Optast er það um V2 tryppi, sem flutt
er út af hverju heimili að meðaltali á ári
hverju, og mörg síðast liðin ár hefir verð-
ið verið um 55 kr. til jafnaðar. Eg er sann-
færður um, að hægt er að fá 100 kr. fyrir
(Kr.)
120.00
36.00
80.00
100.00