Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 19

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 19
15 þolandi. Til þeirra vil eg að eins segja: öll þau bönd, sem styrkja sjálfs þín hag, á þjer að vera Ijúft að bera, og sjerstaklega á manni að vera Ijúft að bera þau bönd, sem menn vita að eru styrktarbönd lands og lýðs, vita, að styðja að sjálfstæði heimilisins og efnalegum þroska þjóðarinnar. Hvað er það, sem er gleðilegra og göfugra en það, að hafa á meðvitundinni að maður hafi stuðlað að því að bæta kjör annara og græða mein lands og þjóðar? En það hafa allir þeir gert, sem styðja samvinnu og fjelagsskap. Þar ræður opt bróðurkærleikur og ættjarðar- ást yfir eigingirni og sjerdrægni, og er það ekki gömul og guðdómleg kenning, að svo eigi að vera? En margar freistingar koma fyrir samvinnufjelags- manninn, og optast eru það tálsnörur kaupmanna. Peir bjóða »prósentur«, lágt verð á ýmsum eptirsókt- um vörutegundum, verðlaun þeim er mest kaupi, að ó- gleymdum lánveitingum, o.sv. frv. Oetur þá jafnvel farið svo, að það sýnist stundarhagur að verzla við þá. En, aldrei getur það orðið nema stundarhagur, ef öflugur satnvinnufjelagsskapur er hinsvegar. Kaupmönnum er lífsins ómögulegt að keppa við góð kaupfjelög. Pegar bændur eru búnir að sameina krapta sína og öll kaup- fjelög landsins kaupa inn í sameiningu, getur enginn kaupmaður keppt við þau lengur. Kaupfjelögin fá þá ó- dýrari innkaup en kaupmaðurinn getur fengið. Og þá sjaldan það kemur fyrir að tvísýni er á hvort betur borgi sig: að vera kaupfjelaginu trúr eða verzla við kaupmanninn, þá verður að minnast takmarksins og hafa hugfast, að það næst því að eins, að að því sje unnið. Alstaðar þar sem maður sjer fræ af nytjajurt vera að spíra, og veit að það seinna, þegar jurtin er vaxin, muni verða trje, sem skýlir fyrir óveðri fjár- þröngva, þá ber að hlúa að því og flýta fyrir vextinum. Slík ung spíra er kaupfjelagsskapurinn hjer á landi. Hann er enn ung og lítt þroskuð spíra, en á fyrir sjer

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.