Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Page 23

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Page 23
19 Af því kaupfjelögin hafa verulega þýðingu fyrir far- sæld mannsins, þá er það um ieið sönnun þess, að þau eru siðgæðislegt uppeidismeðal. Farsældin byggist á því, að það sje samrœmi milli þess sem lífið hefir fram að bjóða og þess sem af því er heimtað. Þetta samræmi næst ekki með því, að ætla iífinu að fullnægja öllum óskum vorum, heldur að eins með hinu, að vjer takmörkum óskir vorar og miðum kröfurnar við það, sem er fáanlegt. Sú stefnan, sem kennir oss að hafa taumhald á óskum vorum og takmarka þær, hún stuðl- ar að farsæld vorri. Farsældin næst eigi án sjálfstjórnar. 8. Kaupfjelögin sem sparisjóður. Pegar kaupfjelag er stofnsett, þarf það á talsverðum peningum að halda. Fjelagið kaupir allmikið af vörum, í senn, og það er meginregla að borga þær um leið í peningum. Fjelagið þarf og að hafa húsrúm til geymslu og afgreiðslu; það byrjar því þegar á því að fá hús til leigu, og leiguna verður að borga með peningum. Pá þarf og að kosta talsverðu til þess að búa húsið út til verzlunar, útvega verzlunaráhöld o. sv. frv.; til þess þarf einnig peninga. Fjelagið nær að vísu í nokkuð af pen- ingum, með þvf að heimta inngangseyrir hjá fjelags- mönnum, en þetta nær samt of skammt, því það má ekki hafa inngangseyririnn mjög háan, til þess að úti- loka ekki mikinn hluta þeirra manna, sem mesta hafa þörfina fyrir fjelagsskapinn. Það er þá auðveldast fyrir fjelagið að ná í peninga með því að taka á móti fje til ávöxtunar eða, með öðrum orðum, taka að sjer spari- sjóðshlutverk. Þegar fjelagið fer að skipta ágóða til fjelagsmanna, er það æskilegast að ágóðinn sje látinn standa kyrr í fje- laginu og ávaxtaður þar sem sparisjóðsinnstæða. Til- gangurinn er líka einmitt sá, að fá menn til að spara, með því að láta ágóðann standa óhreifðan. Fjelagið 2’

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.