Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 24

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 24
20 veitir góða vexti af þessu sparisjóðsfje móts við það, sem annars er kostur á. Það er því mjög eðlilegt fyrir- komulag, að kaupfjelagið sje sparisjóður er taki á móti innstæðum. Af þessu þarf alls ekki að leiða það, að kaupfjelagið láni peninga út aptur. Það er lengi þörf til þess, að nota hið aukna starfsfje til þess, að bæta við hinar föstu eignir fjelagsins, stækka verkahringinn og fi. þesskonar. Þó er það alls eigi fátítt að fjelagsmönnum sje lánað, lítið eitt, í einstöku tilfellum. F*að er mjög heppilegt að hafa það ákvæði í reglum fjelagsins, bæði til þess að auka rekstursfje fjelagsins og tengja meðlimina nánar við fjelagið, að hver fjelagsmað- ur sje skyldur að eignast tiltekna fjárhæð í fyririrtækinu, t. d. 40 — 50 kr. Þessu fje er auðvelt að safna með því móti, að ágóði sá, sem hverjum fjelagsmanni ber, við árleg reikningsskil, sje látinn standa óhreifður á vöxtum, þangað til hin ákveðna eignarhlutdeild er fengin. Pegar einhver fjelagsmaður verður fyrir sjerlegu ó- happi, væri það skaðlegt fyrir hann að þurfa að segja sig úr fjelaginu, til þess að geta hagnýtt sjer fjelagsinn- stæðu sína til lífsnauðsynja sinna. þess vegna er stund- um farin sú leið, að fjelagið lánar slíkum manni viðlíka mikið og innstæðu hans nemur, gegn trygging í hlut- deild hans í fjelagseignum. Petta getur stundum munað því, að honum verði kleift að halda áfram viðskiptum við fjelagið. þegar svo aptur raknar fram úr, getur hann, smám saman, endurborgað lánið með ágóða af fjélags- viðskiptunum. F*ó má fjelagsmaður alls eigi hafa kröfu- rjett til slíkrar lánveitingar, heldur verður það að vera á valdi fjelagsstjórnar að veita lánið, þegar sjerstakar á- stæður mæla með því. F*að verður að vera undir atvikum komið, hvort fje- lagið veitir annarskonar lán, gégn fullri ábyrgð, eða stofnar veðlánadeild. Pað er naumast hægt að mæla með þeirri aðferð, sem almennri reglu, þó þetta hafi

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.