Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 35

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 35
31 hjákvæmilegt, einkum ef fjelagið fær megnið af vörum sínum hjá Sambandsfjelaginu. Á hinu veltur mest, að hann hafi þá hæfileika, sern fyrst voru taldir. Þegar verið er að velja afgreiðslumann, er það vitan- lega þveröfug aðferð, að láta launakjörin vera fyrsta at- riðið sem um er spurt, eða taka þann að sjálfgefnu, sem fæst fyrir lægst laun. Par sem farið er eptir þeirri reglu, þar er fjelagið dauðadæmt. Ekkert hefnir sín geipi- legar, en að láta afgreiðslumanninn hafa sultarlaun. Kjör hans eiga, þvert á móti, að vera þannig, að hann geti gegnt störfum sínum með gleði og neyðist ekki til að leita sjer aukaatvinnu, því það hlýtur að spilla störfum hans í fjelagsþarfir. Þá liggur það og í augum uppi, hversu fráleitt það er, að láta launaknífnina freista hans til þess, að fleyta sjer áfram á óleyfilegan hátt. Pað skiptir ekki miklu máli, hvort launin eru 1—2% hærri eða ekki, móts við hitt, að ná í afgreiðslumann, sem að öllu leyti er störfunum vaxinn. Vel hæfur maður er ekki lengi að vinna fjelaginu meira gagn én launa- hækkuninni nemur, borið saman við annan, sem ódug- Iegur er. Kaupmenn hafa stunduni borið fjelögunum það á brýn, að þau klæddu starfsmenn sína úr fötunum. Pví fer miður, að þetta er ekki alveg gripið úr lausu lopti. Það munu enda finnast dæmi til þess, að kaupfjelags- störf hafa verið höfð til undirboðs; en sem betur fer eru menn almennt farnir að skilja betur köllun sína og hag fjelagsins í þessu efni. Kaupfjelögin, sem hafa þann tilgang, að bæta kjör verkalýðsins, ættu vissulega að hafa það hugfast, að »verður er verkamaðurinn laun- anna«. Afgreiðslumanninum ætti helzt að launa með hundraðs- gjaldi af viðskiptaveltunni. Pá standa laun hans nokkurn veginn í hlutfalli við störfin, og hagnaður hans og fje- lagsmanna á samleið. Hann leitast við, eptir því sem unnt er, að gera fjelagsmenn ánægða; við það vex að-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.