Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 47

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 47
43 Það lítur út fyrir að Danir, sjerstaklega, sjeu nú að taka ástfóstri við dilkakjötið okkar, og þá einkum kaup- fjelögin dönsku, sem helzt vilja ekki annað kjöt. Verð- munur á því og almennu kjöti mun hafa verið 7 — 10 kr. á tunnu, að mjer virtist, almennt í Danmörku, og þó einlægt meiri eptirspurn eptir dilkakjötinu. * * * Þó meðferð kjötsins og verkun þess sje enn á frum- stigum hjá okkur, og kjötsölumálinu hafi ekki verið sinnt eins og æskilegt hefði verið, verður því ekki neitað, að allmikið hefir áunnizt, þessi síðustu ár. Það eru ekki allmörg ár síðan að íslenzkt saltkjöt var eingöngu neyð- arkostur fátæks fólks og sjómanna. Og það eru ekki nema 3 ár síðan, að hin nýja kjötverkun og aðgreining þess var kunn að eins kaupfjelögunum dönsku og nokk- urum mönnum þar fyrir utan. Nú má heita að dilka- kjötið okkar sje orðið þekkt um alla Danmörku og sje iðulega á borðum efnaðra manna. það er nú að verða þar í eins miklum metum og danskt kjöt. Þetta béndir ótvíræðlega á það, að vjer erum á rjettri leið, sem stendur. En það má ekki gleyma því, að bæði er hægt að hrekjast út áf henni og enn eru ýmsar tor- færur, sem yfir þarf að stíga. Skal hjer, að síðustu, bent á ýmislegt það, sem eg álít nauðsynlegt að gera, og vjer megum sízt gleyma í þessu máli. Fyrsta og aðalatriðið er það, að vjer bændur — fram- leiðendurnir — tökum málið algerlega, eða sem allra mest, í okkar hendur gegnum samvinnufjelagsskap. Kaupmenn hafa haft kjötverkunina með höndum, um margar aldir, eins og kunnugt- er. þeir hefðu aldrei hreift sig — að því er sjeð verður — til að hefja þessa dýrustu framleiðslu okkar frá lítilsvirðingu. Meðan kaup- menn hafa kjötverkunina í sínum höndum, getum vjer bændur minni áhrif haft á málið. F*etta hefir áður ræki-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.