Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 57

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 57
53 Að ekki fæst fullt virðingarverð húsa endurgoldið úr þessum brunabótasjóðum, heldur að eins 2k þess bruna- skaða, sem verður, telja sumir ókost á lögunum. En í margra augum er þetta einmitt kostur. Vegna þessa geta iðgjöldin verið lægri. þau eru nú um 2h lægri en í er- lendu fjelögunum. Þeir, sem vilja vátryggja allt fullu verði, geta eptir sem áður vátryggt í áreiðanlegu erlendu fje- lagi. þessi lági skattur ætti að vera vel kleifur, og þó hann veiti ekki aðgang að fyllstu bótum, er þó jafnan betri hálfur skaði en allur. Reglugerðin um tilhögun eldstæða minnkar brunahættuna, og þegar eigi fást full- ar bætur, er freistingin minni að ná í þær á óleyfilegan hátt. Rað er mikill kostur laganna, að hið framlagða fje á- vaxtast í landinu sjálfu, að því leyti sem því er ekki var- ið til brunabóta. Helmingur þess rennur í hinn sameig- inlega brunabótasjóð, sem lánar það aptur út til lands- manna. Hinn helminginn má ávaxta heima í sveitarfje- laginu sjálfu í tryggum sparisjóði, — og sparisjóður ætti að vera í hverri sveit. Ef vel gengur safnast þar saman dálítið veltufje til nytsemdarfyrirtækja í sveitinni, án þess líklegt sje að sjóðsöfnunin hafi verið mönnum tilfinnan- leg byrði. Hjer er ekki um einkafyrirtæki að ræða, er hafi stórgróða fyrir markmið, heldur samvinnu til trygg- ingar og sameignar fjelagsins í því, er saman kann að safnast. Hingað til hafa furðu fá sveitarfjelög komið þessu fyrirkomulagi á hjá sjer. Þó er það á veg vikið, að hin sameiginlegi brunabótasjóður er stofnaður. Vonandi er, að þessi heimildarlög verði notuð af öllum sveitarfjelög- um landsins, áður en langir tímar líða. Pá fyrst getur reynslan sýnt mönnum hverju breyta þarf í þeim, þegar hluttakan er orðin almenn í þessu máli. S.J.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.