Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 61

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 61
57 verzlunarhættir vorir breytast á síðast liðnum 100 árum, allt frá því skömmu á eptir »siglingaleysisárunum«, þeg- ar þarfir landbænda voru svo furðanlega Iitlar og fá- breyttar, með útlendar vörur, og til síðustu ára með hinum fjölbreyttu þörfum, stóru verzlunarveltu og skulda- basli. Petta sýnir, með skýrum dráttum, frá hverju land- búnaðurinn hefir horfið og hvert hann stefnir. Pað sýnir sig, meðal annars, að sumar innlendar varn- ingstegundir hverfa, einkum heimilisiðnaðarvörur, en aðr- ar vaxa aptur stórkostlega, sjer í lagi útflutt matvæli og efnisvörur í klæðnað og skófatnað. Landbúnaðurinn er nú margfalt fjarlægari því en áður var, að fæða og klæða starfsmenn sína með innlendri framleiðslu, án vöruskipta. Heimilisiðnaður er, sem sagt, nær því horf- inn til framleiðslu útflutningsvöru. En það er ekki þar með búin sagan. Heimilisstarfsemin er á hröðum eyði- leggingarvegi í því að framleiða óbreyttustu heimilis- þarfir í fatnaði og margskonar áhöldum, svo fátt er þar nú, víða hvar, annað eptir en að »tæta á hendur og fætur«, þó ekki að öllu leyti, tálga hrífutinda, laga ofur- lítið verkfæri og fleira smávegis. Víst ber því ekki að neita, að margt hefir færzt í holl- ara og eðlilegra horf á síðast liðnurh 100 árum, en hver vill fullyrða, að jafnframt hafi eigi margar illar venjur og óhollar stefnur fengið of mikið ráðrúm? Hefir eigi verið farið of langt í byltingaáttina, og ýmislegt af hinu þjóð- holla lent fram af Ætternisstapa, en sumt lítils metið, sem ætíð og allstaðar eflir sannarlegt manngildi? Hvern- ig er því nú almennt háttað með iðjusemina, hófsemi í nautnum og kröfum og viljann til vinnunnar: að »neyta síns brauðs í sveita síns andlitis«, m. fl. og fl.? F*að er eflaust svo, að um tíma var verzlað allt of lit- ið; það hefði verið hollara að hafa meiri vöruskipti en gert var. En, of mikið má að flestu gera, og nú er þessu snúið svo við, að margir munu telja að vjer verzlum of mikið. Áður voru menn má ske of mjög

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.