Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 70

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 70
66 og »ráðleysingjunum« að liggja eptir í slóðinni og ljeti kaupmennina um það, að bjarga þeim Lazarusum. En, hvað er þá orðið úr umbótunum, siðbótunum, uppeldinu, mannúðinni og samhjálpinni, sem kaupfjelag- ið hefir svo fagurlega ritað á skjöld sinn? Á hinn bóginn er auðvitað að kaupfjelagið má ekki missa sjónar á frumreglum sínum; það verður að læra að takmarka sig, að meta rjett krapta sína og möguleg- leika; læra að spilla aldrei kröptum nje fje til þess, sem ekki þokar í áttina að markinu, en nota þó kraptana og tækifærin til hins ítrasta. þarna er einmitt vandasamasta málið til úrlausnar. Þarna er því svo ómissandi að hafa víðsýni og glöggt yfirlit frá öllum þeim sjónarmiðum, sem nefnd voru, og fleirum þó, því það þarf enn frem- ur víðtæka þekkingu á viðskiptalífinu yfir höfuð og kunn- ugleika á öflum þeim, sem þar eru starfandi. Og, það má ekki eitt augnablik gleymast, að verkefni kaupfjelag- anna er einmitt það, að vinna að umbótum á Öllu við- skiptalífi manna, eptir nýjum grundvallarreglum: sam- vinnu og samhjálp, og að til þessa þarf uppeldi og þekk- ing, sem alls ekki er að búast við að þorri manna til- einki sjer á skömmum tíma eða án þess að hugsjóninni sje stöðugt á lopti haldið og hún skýrð fyrir mönnum, bæði í orði og verki. Ekki megum vjer heldur eina stund missa sjónar á því, að það er afar-langt til marksins enn, að vjer erum að eins að stíga fyrstu fótmálin, og þau ekki ætíð eptir beinustu leið; að hvíld og aðgerðaleysi er ekki fyrir höndum, heldur erviði og sjálfsafneitun. Kyrrstæði er sama sem undanhald. Meðan vjer erum aðgerðalausir vinna andstæðu kraptarnir og skjóta okkur aptur fyrir sig. Tíminn bíður ekki; hann leggur daglega fyrir okkur nýjar spurningar til úrlausnar, nýjar kröfur og þarfir, nýja nauðsyn. Vjer komumst ekki hjá að veita svör og úrlausnir, en gildi þeirra svara og úrlausna — fyrir það málefni sem vjer vinnum fyrir — fer alveg ept-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.