Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Page 72

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Page 72
68 því enginn nær að afla sjer teljandi manngildis, ef hann aldrei kemur auga á neina þá hugsjón, er almenut gildi hafi, og hann vill leggja eitthvað í sölurnar fyrir af eig- in hagsmunum. * * * * * * * * * Öll framþróun og allar umbætur í mannlífinu eiga rætur sínar í hugsjónum um betri og rjettlátari framtíð. En af því mennirnir eru ekki alvitrir, eru hugsjónir þeirra ekki óskeikular. F*etta vita reyndir menn. Og þó tekur mannkynió alltaf fagnandi hverri nýrri umbóta- hugsjón, þegar fyrirrennarar hennar voru reyndir að því, að leiða ekki til þess farsældarmarks, er menn höfðu vænzt. Samvinnu- eða samúðarhugsjónin er yngst allra al- þjóðahugsjóna, og þótt hún sje ekki nema nokkurra áratuga gömul, þá má svo að orði kveða, að hún á síðustu árum hafi farið sigurför um allan hinn mennt- aða heim, og hvervetna tekið hina beztu og göfugustu krapta mannanna í sína þjónustu, eins og raunar allar sannar hugsjónir hafa gert, þá er þær fyrst ruddu sjer til rúms. En mikill fjöldi manna stendur enn skilningslaus og trúlaus gagnvart þessum nýja boðskap, ýmist í þjónustu útdauðra hugsjóna, eða verjandi sjerrjettindi — völd og auð — gegn hinu nýja skipulagi. Fyrirrennari þessarar yngstu hugsjónar var hugsjón hins pólitíska einstaklingsfrelsis með almennum atkvæð- isrjetti um pólitísk stjórnmál og óháðri samkeppni í at- vinnumálum; hún var andstæða einveldisins og rígskorð- aðrar stjettaskipunar. Pessari hugsjón hafa þjóðirnar nú um all-langt skeið verið að koma í framkvæmd, og fjöld- inn er enn að stritast við framkvæmd hennar. F*etta er göfug hugsjón á þeim tíma, er mikill fjöldi mannanna voru eiginlega þrælar, er gengu kaupum og sölum, at-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.