Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 11 FRÉTTIR WWW.N1.IS F í t o n / S Í A Þér líður betur þegar vetrardekkin eru komin undir Það borgar sig ekki að bíða. Komdu núna og þú sleppur við allar biðraðir þegar snjórinn kemur. Þú færð framúrskarandi hjólbarða- þjónustu hjá okkur og safnkortspunkta af öllum viðskiptum. Renndu við hjá okkur og gerðu bílinn kláran fyrir veturinn! N1 – meira í leiðinni. Öryggið skiptir öllu máli Ekki bíða, komdu í dag N1 HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Þú færð hjólbarðaþjónustu N1 á eftirtöldum stöðum Réttarhálsi 2, Reykjavík – Sími 440 1326 Bíldshöfða 2, Reykjavík – Sími 440 1318 Fellsmúla 24, Reykjavík – Sími 440 1322 Ægisíðu 102, Reykjavík – Sími 440 1320 Langatanga 1a, Mosfellsbæ – Sími 440 1378 Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði – Sími 440 1374 Dalbraut 14, Akranesi – Sími 440 1394 Vesturbraut 552, Vallarheiði – Sími 440 1372 BÆNDASAMTÖKIN efna í dag til fundar um fæðuöryggi. Þar verður fjallað um hvernig tryggja megi nóg fóður í landinu, ekki síst fyrir alifugla- og svínarækt. „Þetta eru bara búhygg- indi – að hafa vaðið fyrir neðan sig,“ sagði Ólaf- ur Dýrmundsson, ráðunautur og sérfræðingur í forðagæslu. Til fundarins eru boðaðir fulltrúar kjúklinga-, eggja- og svínabænda, fóðurinnflytj- enda og fóðursala, sjávarútvegs- og landbún- aðarráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfé- laga og Bændasamtakanna. Fulltrúa Almanna- varna er einnig boðið. Ólafur sagði að menn yrðu að vera viðbúnir skorti á fóðri fyrir alifugla og svín. Samkvæmt almannavarnaáætlun sem gerð var fyrir nokkru um viðbrögð við inflúensufaraldri á heimsvísu koma matvæli næst á eftir lyfjum í forgangsröð um innflutning. Skortur á fóðri fyrir alifugla og svín er ekki yfirvofandi, a.m.k. ekki á næstunni, að sögn Þur- íðar E. Pétursdóttur, fagsviðsstjóra hjá Mat- vælaastofnun, sem sér um fóðureftirlit. Í gær var verið að landa fóðurfarmi úr skipi sem var ný- komið og er annað væntanlegt á næstunni. Þuríður sagði að fóðurskipin kæmu venjulega á 3-5 vikna fresti og venjulega tvö skip á þessu tímabili. Birgðirnar eru alla jafna til 4-5 vikna. Verð á kjarnfóðri hefur verið að hækka og hófst sú þróun fyrir nokkru. Lífland hf. og Fóð- urblandan hf. hækkuðu verð á kjarnfóðri um ný- liðna helgi um 9-15%. SS og Bústólpi höfðu ekki boðað verðbreytingar um miðjan dag í gær, að því er fram kom á heimasíðu Landssambands kúabænda. Verð á hefðbundnum fóðurblöndum hækkaði um 12-14% en á fiskimjölslausum blönd- um um 13-15%. gudni@mbl.is Nóg til af fóðurkorni í landinu Morgunblaðið/Sverrir Fóður Alifugla- og svínabændur eru algerlega háðir því að fá innflutt fóður fyrir bústofninn. ERLEND tryggingafélög sem hafa veitt íslenskum fyrirtækjum greiðslutryggingu vegna viðskipta í útlöndum hafa hvert á fætur öðru sagt upp tryggingunum. Á sama tíma hafa bankaábyrgðir fallið úr gildi, að sögn Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóra Samtaka at- vinnulífsins. Engu virðist skipta á hvaða sviði íslensku fyrirtækin starfa eða hvort rekstur þeirra er traustur eða ekki, eitt er látið yfir alla ganga. Félögin hafa hingað til selt ís- lenskum fyrirtækjum greiðslutrygg- ingar sem í stuttu máli ganga út á að tryggingafélagið ábyrgist, gegn gjaldi, að íslenska fyrirtækið standi í skilum. Þegar slík trygging er úr sögunni verða íslensku fyrirtækin að staðgreiða vöruna. Slæmt en skárra „Milliríkjaviðskiptin ganga mjög illa. Seðlabankinn hefur verið að reyna að koma gjaldeyrisviðskiptum af stað og það er svona eitthvað að ganga, í samstarfi við bankana. Þetta er ekki alveg eins slæmt og það var fyrir nokkrum dögum en þetta er ekki komið í lag,“ segir Vil- hjálmur. Fjölmörg fyrirtæki komist þess vegna í vanskil og traustið á þeim fer þverrandi. Segja upp greiðslu- tryggingu Enn mikil vandræði í milliríkjaviðskiptum ÓLAFUR F. Magnússon borg- arfulltrúi hefur lagt til á borgar- ráðsfundi að far- gjöld Strætó bs. verði lögð niður. Í tillögu sinni segir Ólafur að mikill ávinningur og sparnaður geti hlotist af niður- fellingu strætófargjalda enda sé með gjaldfrjálsum almenningssamgöng- um verið að gera fólki kleift að nýta ókeypis strætóferðir á tímum hækk- andi eldsneytisverðs og erfiðleika í rekstri heimila í borginni. Þá segir í tillögunni að ávinningurinn sé marg- faldur því takist að stórauka nýtingu almenningssamgangna hefði það í för með sér minni mengun, minni kostnað við gerð og viðhald umferð- armannvirkja sem og sparnað í skrif- finnsku. Ólafur segir hér um víðtækt almannahagsmunamál að ræða þar sem ávinningurinn felist í auknum sparnaði, í betri og vistvænni ferða- máta og greiðari samgöngum. Vill afnema fargjöldin Ólafur F. Magnússon LAGT er fyrir skipulags- og bygg- ingarnefnd og bæjarstjórn Sveitar- félagsins Álftaness að taka umsókn um byggingarleyfi í Miðskógum 8 á Álftanesi til efnislegrar afgreiðslu í samræmi við ákvæði skipulags- og byggingarlaga án ástæðulauss drátt- ar. Í úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og byggingamála kemur fram að eins og atvikum sé háttað í málinu hafi óhæfilegur dráttur orðið á afgreiðslu umsóknar kæranda frá 24. apríl í ár um byggingarleyfi. Með bréfi til nefndarinnar frá 17. ágúst í sumar var það kært að um- sókn fyrir einbýlishús í Miðskógum 8 á Álftanesi hefði ekki fengið efnis- lega afgreiðslu. Af hálfu Sveitarfélagsins Álfta- ness var þess aðallega krafist að málinu yrði vísað frá. aij@mbl.is Fjallað verði um leyfið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.