Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 29
fannst bara svo gott að vera með
gömlu hjónunum einum og njóta
kyrrðarinnar í Aðalvík með þeim. Ég
veit hversu kært var á milli hans og
foreldranna. Þeim þótti einstaklega
vænt um strákinn sinn og ég veit að
það eru þung spor fyrir pabba að
fylgja syni sínum síðustu sporin.
Elsku pabbi, Gunna, Elín, Gunnar
Már og Kolbrún, börn og tengda-
börn. Fallinn er frá góður sonur, eig-
inmaður, pabbi, tengdapabbi og frá-
bær afi. Þó nú sé dimmt yfir, kuldi og
él í sálinni, mun birta þegar við för-
um að ylja okkur við minningarnar
um góðan dreng. Farðu í friði, elsku
bróðir.
Henry.
Með þessum sálmi langar okkur
að kveðja föðurbróður okkar.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Elsku afi, Gunna, Elín, Gunnar
Már, Kolbrún, og aðrir sem eiga um
sárt að binda, megi góðir vættir
vernda ykkur og styrkja á þessum
erfiðu tímum.
Sigrún, Þóra og Hrafnhildur.
Lífið er hverfult, eina stundina er
það gleðin en svo skellur brimið á.
Nú er stóra kveðjustundin runnin
upp alltof fljótt og vinur okkar og
fyrrum samstarfsfélagi Gunnar
Reynir Bæringsson verður borin til
hinstu hvílu.
Gunnar háði stutta og harða bár-
áttu við illkynja sjúkdóm og tókst á
við hann af miklu æðruleysi.
Það má með sanni segja að Gunn-
ar með sitt jákvæða viðhorf og léttu
lund, hafi verið ómetanlegur vinur
sem gott var að starfa með og leita til
í amstri dagsins. Hann var rökfastur
og hafði fastmótaðar skoðanir á þjóð-
félagsmálum, með sterka réttlætis-
kennd og setti þó manngildið ofar
öðru í skoðunum sínum.
Það mætti hafa langt mál um það
sem Gunnar tók sér fyrir hendur á
sviði atvinnulífsins. Verk hans bera
vitni um útsjónarsemi, fagmennsku
og dugnað.
Við erum mjög þakklát fyrir að
hafa átt með Gunnari góðar stundir á
liðnum árum og að hafa notið þeirra
forréttinda að hafa átt hann að vini.
Það er með miklum söknuði sem
við fylgjum Gunnari til hinstu hvílu.
Við vottum Guðrúnu Arnfinnsdóttur
eiginkonu Gunnars og fjölskyldu
okkar innilegustu samúð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Blessuð sé minning Gunnars
Reynis Bæringssonar. Fyrir hönd
starfsfólks Kaupþings í Grafarvogi,
Helgi G. Björnsson.
Látinn er góður og kær skóla- og
fermingabróðir. Viljum við kveðja
hlýjan vin sem var síðast með í 45 ára
fermingarafmæli okkar á Ísafirði í
maí og ekkert okkar óraði fyrir því
að Gunnar okkar væri á förum. Það
er gjöfult að minnast drengs sem
ávallt var glaður og bjartsýnn, vina-
lega stríðinn, með svo skemmtilegt
glott sem sagði allt sem segja þurfti.
Já, Gunnar var okkur skólasystkin-
um eftirminnilegur á svo margan
hátt, dugnaður hans að koma sér
áfram, eignast fallega og samheldna
fjölskyldu, njóta lífsins og vera
grand á sinn látlausa hátt, ég tala nú
ekki um þegar hópurinn hittist á
æskustöðvunum til að endurnýja
gömlu góðu kynnin.
Nú er höggvið stórt skarð í hópinn
okkar 49 módelanna. Gunnar var
einn af upphafsmönnum skólamót-
anna sem eru orðnir ómissandi við-
burðir á nokkurra ára fresti. Við
þökkum kærum vini samfylgdina og
biðjum honum Guðs blessunar.
Gunnars Bærings verður sárt sakn-
að. Aðstandendum öllum sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
f.h. 1949 módelanna,
Sigrún Viggósdóttir.
Fyrir um 30 árum var ég fenginn
til að gera tölvukerfi fyrir nýstofnað
kortafyrirtæki, sem síðar fékk nafn-
ið Kreditkort. Á sama tíma var líka
fenginn maður til þess að koma fyr-
irtækinu á laggirnar, og vinna frum-
kvöðlastarf með því að byggja upp
alla þætti þess og fá íslensk fyrirtæki
og einstaklinga til að taka þátt í að
byggja upp kortaþjónustu á Íslandi.
Þessi framkvæmdastjóri var Gunnar
R. Bæringsson og hann var þess full-
viss að kortaþjónusta væri framtíðin.
Það má með sanni segja að þau ár
sem hann stýrði kreditkortafyrir-
tækinu hafi verið afar farsæll tími
bæði hjá honum og fyrirtækinu.
Gunnar var mikill vinur alls starfs-
fólksins og hann var inni í öllum þátt-
um fyrirtækisins. Hann byggði upp
deildir og hannaði skipurit sem aug-
ljóst var að myndu virka til framtíðar
og vera traust. Gunnar var afar
glöggur bókhaldsmaður og snöggur
að átta sig á öllum tölum. Ef skuldari
lenti í ógöngum með kortaskuld var
Gunnar rétti maðurinn til að taka á
þeim málum. Hann var mjög sann-
gjarn og úrræðagóður og oft á tíðum
kom hann skuldara á rétta braut.
Það má alveg með sanni segja að
Gunnar hafi verið það sem stundum
er kallað vinur litla mannsins. Hann
var ávallt mjög ráðagóður og þess
vegna leituðu margir til hans og
fengu góð ráð.
Við Gunnar unnum mikið saman
og á milli okkar myndaðist mikið
traust, sem síðar varð að góðri vin-
áttu milli okkar Helgu konu minnar
og þeirra Gunnars og Guðrúnar konu
hans. Við heimsóttum hvert annað
oft og borðuðum saman og áttum
margar ánægjulegar stundir. Við
fórum saman í utanlandsferðir og
vorum byrjuð að skipuleggja ferð,
sem átti að fara vegna stórafmæla á
næsta ári.
Í byrjun sumars, eftir að Guðrún
var búin að jafna sig eftir krabba-
meinsmeðferð, stóð til hjá þeim að
ferðast mikið innanlands og ákváðu
þau að endurnýja húsbílinn sinn og
keyptu sér nýjan. Þegar þau voru að
undirbúa sumarbústaðarheimsókn
til okkar hjóna í júlí á húsbílnum
varð Gunnar var við það að annar
handleggur hans var orðin bólginn
og blár og fór því á bráðamóttökuna.
Þá byrjuðu rannsóknir á heilsufari
hans. Hinn 25. júlí fengu þau hjónin
að vita að hann var með illkynja
krabbamein. Gunnar átti að fara í
uppskurð þriðjudaginn 2. september
svo þau ákváðu að koma í heimsókn
til okkar helgina áður. Þar áttum við
saman yndislegan og eftirminnileg-
an dag. Þennan dag fórum við Gunn-
ar í langan bíltúr og ræddum liðna
tíð og framtíðina. Alltaf þegar við
Gunnar ræddum saman ríkti mikill
trúnaður og hreinskilni milli okkar.
Hann átti ekki von á öðru en að hann
myndi ná sér úr þessum veikindum
og að við mundum eiga margar góðar
stundir áfram saman. Gunnar átti
aldrei afturkvæmt af spítalanum.
Blessuð sé minning góðs og
trausts vinar.
Fjölskylda mín vottar Guðrúnu og
öllum aðstandendum dýpstu samúð.
Guðjón H. Bernharðsson.
Það eru mikil forréttindi að hafa
fengið að kynnast Gunnari. Leiðir
okkar lágu saman í byrjun ársins
2002 þegar við lögðum mat á við-
skiptahugmynd sem leiddi til stofn-
unar á Kortaþjónustunni ehf. Gunn-
ar var lykilmaður í stofnun félagsins,
enda þekktu fáir íslensku kortakerf-
in jafnvel og hann. Reynsla hans og
kunnátta var fyrirtækinu ómetanleg
og hafði hann mjög gaman af því að
koma aftur inn á kortamarkaðinn á
þann hátt sem enginn úr bankakerf-
inu sá fyrir. Áður var hann einn
stofnenda Kreditkorta hf. sem þá var
fyrsta kreditkortafyrirtækið á Ís-
landi og veitti hann því forstöðu í 18
ár. Gunnar var eldklár, útsjónarsam-
ur, skynsamur, sanngjarn og ákveð-
inn. Þetta eru mannkostir sem menn
dreymir um að hafa í samstarfs-
mönnum. Ofan á þessa kosti var
hann varkár, hófsamur en jafnframt
djarfur, sem er stór ástæða fyrir því
að hann skilur eftir sig fyrirtæki sem
er skuldlaust og í miklum vexti. Það
er sannarlega öfundsverð staða, sér-
staklega í árferði eins og nú snýr að
rekstrarumhverfi fyrirtækja. Við
höfum unnið mjög náið saman allt frá
stofnun Kortaþjónustunnar og höf-
um þurft að taka bæði einfaldar og
erfiðar ákvarðanir, eins og gengur
og gerist í rekstri fyrirtækja. Þar
sem við höfum mjög ólíkan bakgrunn
vorum við iðulega ósammála um að-
komu mála í fyrstu en eftir mismikl-
ar rökræður og yfirferðir enduðum
við alltaf á sameiginlegri niðurstöðu
sem við vorum báðir sannfærðir um.
Ég hef lært ómælt af Gunnari og
kynnum okkar og mun geta nýtt mér
ráðleggingar hans og aðferðir um
ókomna tíð, hann mun því lifa áfram í
gjörðum mínum. Fráfall Gunnars er
algjörlega ótímabært og óvænt. Það
er á svona tímum sem maður spyr
sig spurninga á borð við, af hverju
hann, af hverju núna …? Lífið er
ekki sanngjarnt, eða dauðinn er ekki
sanngjarn. Gunnar var búinn að
leggja mikið í að byggja upp fyrir-
tæki sem nú er í blóma, sárast er að
hann fái ekki að njóta árangursins.
Maður getur þó huggað sig við það
að hann var ánægður með tilveruna,
hann hafði gaman af starfinu og naut
þess að vinna að uppbyggingunni.
Það voru ömurlegar fréttir að fá þeg-
ar Gunnar greindist með krabba-
mein seint í sumar. Gunnar var já-
kvæður fram á það síðasta, um
síðustu mánaðamót sagði hann mér
að hann yrði nú kominn aftur til
vinnu fyrir miðjan mánuðinn … Ég
ætla að taka hann á orðinu og reikna
með honum til vinnu aftur eftir helgi,
þá sem liðsauka að handan. Við get-
um svo skoðað með að kortavæða
Guðs heima, ef það er ekki þegar
gert. Hugur minn er hjá fjölskyld-
unni og aðstandendum, megi Guð
gefa ykkur styrk. Gunnar, ég vil
þakka þér kærlega fyrir ómetanleg
kynni og allt það sem þú hefur gefið
okkur og kennt. Hlýju þína og um-
hyggjusemi mun ég ávallt geyma
með mér, þú átt stóran þátt í árangri
mínum og munt ávallt lifa með mér,
hjá mér, í hjarta mínu og huga mín-
um.
Jóhannes Ingi Kolbeinsson.
Góður vinur okkar og fjölskyldu-
meðlimur, Gunnar Reynir Bærings-
son, er látinn langt fyrir aldur fram.
Og við, sem eftir sitjum, berum
blendnar tilfinningar í brjósti. Við
erum þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast honum en sorgmædd yfir
því hversu stutt við fengum að um-
gangast hann.
Engin orð virðast hafa þá vigt að
geta lýst snotru hjartalagi Gunnars,
tjáð álit það sem hann vann sér inn
hjá okkur eða útskýrt hversu mikils
hann var metinn af okkur.
Hann var fjölskyldumaður, hauk-
ur í horni vina sinna, snjall, beittur í
húmor, geðþekkur og gegnheill. Við
þekktum hann ekki fyrir illgirni eða
langrækni og í minningunni er hann
og verður ætíð brosandi.
Hann var hafsjór af fróðleik og
visku en hafði þann eiginleika fram
yfir aðra slíka að hlusta alltaf af at-
hygli eftir skoðunum annarra.
Gunnar háði hetjulega baráttu við
krabbamein síðustu mánuði ævi
sinnar og bar úr býtum fleiri daga en
bjartsýnustu menn gáfu honum. En
allir fara þá feigðin kallar og þrátt
fyrir söknuðinn vitum við af honum á
betri stað.
Það er með miklum söknuði sem
við látum þessi fáu og fátæklegu orð
eftir liggja í minningu um vinskap
okkar og kærleika, Gunnar. Við vit-
um að þú hefðir átt mun fallegri og
betri orð handa okkur.
Við biðjum Guð að styrkja Guð-
rúnu, konu Gunnars, börn þeirra,
tengdabörn og barnabörn, og vottum
þeim jafnframt okkar dýpstu samúð
og hluttekningu.
Henrý Þór Baldursson,
María Arnfinnsdóttir,
Baldur Örn Baldursson.
Fleiri minningargreinar um Gunn-
ar Reyni Bæringsson bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga.
24. útdráttur 16. október 2008
A ð a l v i n n i n g u r
Kr. 2.000.000 Kr. 4.000.000 (tvöfaldur)
5 4 9 9 7
V i n n i n g u r
Kr. 100.000 Kr. 200.000 (tvöfaldur
9 6 0 9 2 8 3 2 3 4 3 1 5 5 7 3 6 3 3
Vi n n i n g u r
Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur)
875 20808 32274 41761 50739 66485
8114 23371 36760 44011 62197 72867
V i n n i n g u r
Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur)
4 4 7 7 1 9 3 7 9 2 7 3 2 6 3 4 6 8 1 4 1 5 9 9 5 5 6 2 1 6 6 3 7 5 7 5 0 9 9
6 4 6 9 1 9 4 4 2 2 7 4 9 1 3 5 0 3 6 4 1 7 5 6 5 8 6 9 5 6 9 2 2 4 7 5 3 1 9
6 8 2 9 1 9 4 9 9 2 7 6 0 2 3 5 1 8 6 4 2 3 8 7 5 9 4 8 0 6 9 4 1 7 7 6 4 6 0
8 2 6 9 2 0 9 8 9 2 7 7 9 9 3 5 3 3 1 4 3 8 1 3 6 0 2 8 9 6 9 9 2 9 7 6 7 6 0
8 4 4 7 2 2 1 6 3 2 7 8 3 5 3 5 3 9 0 4 5 1 4 8 6 0 3 7 2 7 0 3 0 7 7 6 8 3 1
9 8 2 0 2 3 6 5 4 2 8 1 6 3 3 5 4 7 0 4 8 1 4 0 6 0 9 1 9 7 0 4 1 1 7 7 1 4 2
1 0 2 1 5 2 4 1 1 9 2 8 3 6 5 3 7 1 1 3 5 1 6 5 5 6 1 2 9 5 7 0 5 1 9 7 8 1 1 0
1 0 3 9 5 2 5 2 9 1 2 8 9 5 8 3 9 0 3 7 5 1 8 5 7 6 1 5 4 5 7 1 9 4 3 7 8 2 6 5
1 1 7 0 9 2 5 7 4 4 2 9 4 8 6 3 9 6 5 1 5 2 4 1 0 6 4 3 0 8 7 2 9 6 2 7 9 1 3 6
1 2 6 5 1 2 6 1 5 1 2 9 7 1 5 4 0 3 4 1 5 3 5 8 0 6 4 3 5 4 7 3 4 6 0
1 3 9 2 8 2 6 3 5 2 3 2 3 6 1 4 0 5 0 3 5 4 3 6 5 6 5 3 5 0 7 4 5 5 1
1 4 8 1 6 2 6 5 9 6 3 3 0 9 0 4 0 6 8 0 5 4 8 5 0 6 6 0 5 4 7 4 9 9 3
1 5 9 7 0 2 7 0 3 9 3 4 2 8 9 4 0 7 3 5 5 5 3 3 8 6 6 3 2 2 7 5 0 3 9
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
16 6626 14491 22429 29969 37577 43940 51018 58533 65186 72952
34 6677 14588 22484 30152 37746 44181 51047 58585 65239 73212
212 6744 14632 22760 30437 37865 44198 51286 58593 65366 73271
291 6867 14751 22941 30523 38215 44288 51349 58844 65369 73420
556 6892 14836 23038 30578 38287 44313 51388 58892 65449 73501
639 7011 14912 23053 30729 38513 44527 51481 58927 65473 73578
680 7147 14971 23083 30892 38549 44533 51512 59006 65621 73617
803 7174 15019 23200 30939 38697 44600 51729 59063 65687 73638
820 7253 15246 23226 30981 38702 44649 51925 59216 66003 73797
991 7263 15319 23315 31068 38726 44679 51953 59274 66020 73999
992 7297 15430 23349 31219 38861 44861 52063 59516 66093 74146
1003 7357 15510 23358 31339 38899 44913 52069 59523 66430 74289
1015 7432 15538 23430 31365 38959 44936 52158 59557 66444 74381
1029 7462 15680 23556 31430 39062 44957 52220 59682 66483 74524
1052 7489 15699 23685 31501 39135 45024 52290 59704 66587 74543
1064 7495 15806 23725 31558 39137 45088 52364 59705 66685 74612
1065 7523 15914 23747 31672 39157 45090 52535 59965 66906 74837
1330 7555 16065 23757 31816 39236 45258 52564 60021 66932 74924
1383 7745 16213 23777 31926 39339 45302 52565 60184 66960 75001
1433 7882 16252 23914 32209 39439 45386 52779 60290 67021 75066
1549 7891 16377 24004 32293 39452 45506 52793 60322 67148 75077
1613 8054 16499 24265 32405 39494 45553 52809 60391 67252 75092
1726 8086 16512 24428 32471 39784 45560 52922 60473 67431 75230
1776 8609 16733 24473 32785 39786 45614 53075 60601 67514 75501
1801 8693 16768 24568 32808 39811 45737 53270 60602 67720 75626
1888 8751 16775 24584 32877 39813 45952 53312 60632 67740 75649
2301 8783 16792 24627 33036 40092 46145 53454 60788 67798 75720
2386 8843 16820 24725 33160 40145 46244 53469 60914 67904 75852
2570 8967 17022 24907 33276 40202 46560 53556 60920 68012 75985
2639 8980 17059 24958 33286 40240 46710 53600 61044 68013 75989
2922 9067 17121 24987 33288 40318 46799 53642 61077 68159 76061
2990 9214 17144 25246 33313 40403 46962 53804 61080 68236 76091
3083 9497 17166 25316 33327 40477 47084 53872 61177 68283 76095
3088 9561 17197 25330 33329 40499 47166 53873 61312 68428 76116
3216 9603 17260 25536 33339 40536 47260 54013 61374 68655 76158
3250 9825 17391 25576 33502 40581 47277 54100 61395 68667 76167
3253 9984 17499 25728 33611 40669 47345 54243 61650 68720 76205
3306 10000 17571 25812 33822 40687 47374 54412 61734 68760 76534
3316 10060 17719 26007 33829 40773 47389 54432 61768 68827 76569
V i n n i n g u r
Kr. 7.000 Kr. 14.000 (tvöfaldur)
3359 10107 17871 26019 33863 41013 47550 54696 61965 68909 76687
3365 10464 18035 26124 33957 41178 47596 54728 62010 69038 76733
3500 10502 18106 26145 33985 41238 47834 54744 62079 69084 76753
3525 10628 18157 26163 34087 41240 48054 54753 62417 69113 76928
3626 10651 18518 26336 34303 41300 48058 54824 62455 69302 76986
3653 10665 18828 26392 34414 41417 48309 54893 62633 69375 77100
3882 10760 18869 26492 34482 41443 48316 54920 62645 69413 77439
4305 11051 18923 26508 34492 41463 48469 55002 62702 69492 77491
4375 11073 19011 26606 34517 41512 48501 55132 62710 69509 77544
4423 11151 19123 26731 34552 41644 48534 55227 62753 69686 77640
4452 11174 19203 27048 34629 41718 48537 55298 62771 69701 77713
4545 11194 19209 27119 34818 41788 48608 55483 62864 69771 77769
4561 11196 19218 27235 34879 42017 48757 55491 62866 69922 77850
4731 11206 19291 27280 34944 42100 48760 55535 62886 70101 78133
4795 11354 19356 27363 34958 42126 48796 55669 63226 70234 78228
4852 11451 19453 27371 35044 42127 48892 55670 63279 70314 78239
4931 11496 19473 27639 35095 42165 48904 55680 63325 70382 78329
4944 11651 19676 27652 35162 42205 48912 55829 63379 70581 79406
5017 11705 19734 27694 35182 42226 48941 55833 63419 70821 78871
5106 11958 19762 27698 35262 42258 48979 55951 63468 70886 78890
5126 11970 19825 27721 35295 42335 49049 56079 63543 71083 78936
5146 12142 19966 27851 35384 42454 49271 56244 63643 71128 79044
5246 12262 20020 28076 35504 42523 49314 56337 63743 71217 79068
5322 12282 20591 28114 35945 42618 49485 56421 63856 71244 79641
5324 12298 20839 28115 35946 42621 49487 56455 63862 71317 79653
5498 12300 21170 28165 36259 42762 49492 56478 63997 71472 79685
5926 12368 21261 28267 36527 42767 49781 56736 64089 71521 79697
5933 12485 21463 28334 36581 42863 49916 56802 64281 71525 79762
5980 12819 21814 28755 36616 43057 49983 56822 64419 71880 79878
5998 13080 21870 28770 36839 43233 50189 57024 64421 71905 79950
6000 13083 21879 28871 36868 43303 50246 57129 64471 72048 79956
6026 13324 21981 28952 36871 43374 50451 57143 64510 72134
6082 13450 22039 28999 36921 43391 50611 57214 64582 72398
6086 13657 22047 29295 37039 43548 50705 57245 64653 72439
6160 13798 22232 29336 37221 43599 50747 57381 64720 72460
6193 13876 22250 29460 37349 43679 50765 57478 64776 72575
6378 14019 22276 29476 37506 43777 50796 57566 65057 72655
6441 14291 22281 29692 37544 43830 50815 57584 65095 72809
6487 14442 22369 29708 37560 43882 51017 57950 65172 72898
Næstu útdrættir fara fram 23. október & 30. október 2008
Heimasíða á Interneti: www.das.