Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR ÞRÁTT fyrir að norrænu ríkin hafi sett lög gegn mansali og reynt að aðstoða fórnarlömb þess, líta sum þeirra jafnframt á erlendar vændiskonur sem afbrotamenn sem stöðva verði við landamæri ríkjanna. Þetta segir í fréttatilkynningu frá norrænu kvenna- og kynjarannsóknastofnuninni, NIKK, en vísað er til norræna rannsóknarverkefnisins, Vændi á Norðurlöndum. Alls tóku ellefu sérfræðingar frá Norður- löndum þátt í verkefninu en það er kynnt á fundi í Stokkhólmi, sem lýkur í dag. Í því er borið saman lagaumhverfi, aðgerðir og afstaða til vændis á Norðurlöndum. Fram kemur að þótt vændi sé alþjóðlegt vandamál fari það fram á afmörkuðum stöðum og eftir ólíkum boðleiðum, en netið og farsímar séu dæmi um nýjar boðleiðir sem fengið hafi meira vægi á vændismarkaði. Mikilvægt sé að auka þekk- ingu á þessum markaði á Norðurlöndum. „Þekking á umfangi vændis á Norðurlöndum er af skornum skammti og sú vitneskja sem er fyrir hendi hefur orðið til í sérstöku samhengi – aðallega í tengslum við félagslegt starf og úrræði. Þeir sem stunda og miðla vændi verða áfram ósýnilegir félagsmálayfirvöldum, s.s. karlar sem selja kynlífsþjónustu, ungt fólk sem selur sig á netinu eða á öðrum stöðum.“ Í tilkynningu NIKK er bent á að viðhorf al- mennings til vændis hafi breyst. Í Svíþjóð sé mikill stuðningur við sænsku lögin um bann við kaupum á kynlífsþjónustu en í könnun hafi 71% Svía sagst vilja óbreytta löggjöf, segir NIKK. Samt hefur aðeins fimmtungur aðspurðra trú á því að dregið hafi úr kaupum á kynlífsþjónustu. NIKK segir að undanfarin ár hafi stjórnvöld á Norðurlöndum farið varlega í að opinbera mat á útbreiðslu og umfangi mansals. Þó telji bæði þau og ýmis samtök að vandinn sé umtalsverður og að þau tilfelli, sem vitað er um, séu einungis toppurinn á ísjakanum. Tekist á við vandann með ólíkum hætti Norrænu ríkin séu sammála um að vændi sé félagslegt vandamál en tekist sé á við það á ólíkan hátt, t.d. í réttarkerfinu. Margt sé þó sameiginlegt en spurningin um að gera kaup á kynlífsþjónustu ólögleg hafi verið rædd í öllum löndunum og þau hafa öll samþykkt lög gegn mansali. Segir NIKK að ein af mikilvægum niður- stöðum rannsóknarinnar sé að vændi sé í sí- auknum mæli talið lagalegt vandamál en ekki félagslegt. elva@mbl.is Morgunblaðið/Ásdís Vandi Auka þarf þekkingu á vænd- ismarkaðnum á Norðurlöndum. Þarf aukna þekkingu á vændismarkaði  Norrænir sérfræðingar kynna rannsókn um vændi á Norðurlöndum á fundi í Stokkhólmi  Flestir Svíar styðja lög sem banna kaup á vændisþjónustu en fólk telur ekki að færri kaupi vændi FÓLK sem greiðir afborganir af myntkörfulánum um næstu mán- aðamót hefur margt hvert velt því fyrir sér við hvaða gengi verði mið- að þegar lánsupphæðin er fundin út, en gengi krónunnar hefur flökt mjög í mánuðinum. Í nokkra daga í þessum mánuði var erfitt að gefa upp stöðu lána þar eð enginn vissi hvert gengið var. Þau svör fengust hjá banka- og lánastofnunum sem Morgunblaðið ræddi við að miðað yrði við gengi Seðlabanka Íslands. Er venjan sú að miða við gengið eins og það er þeg- ar reikningar eru gefnir út. Í gærdag var gengisvísitalan í rúmum 200 stigum hjá bankanum. elva@mbl.is Miða við gengi Seðlabanka í myntkörfuláni RISAPOTTUR gekk út þegar dreg- ið var í Víkingalottóinu í fyrra- kvöld. Fyrsti vinningur var rúmar 711 milljónir og er þetta með stærstu vinningum sem dregnir hafa verið út. Því miður var enginn Íslendingur meðal vinningshafa. „Við vorum að vona að vinningurinn kæmi hingað, ekki hefði veitt af að efla gjald- eyrisvarasjóðinn,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdstjóri Ís- lenskrar getspár. Tveir Norðmenn og einn Dani skiptu með sér 1. vinningi auk ofur- potts og hlaut hver um sig rúmar 237 milljónir. Þar sem ofurtalan 5 var meðal aðaltalna, gekk vinning- urinn út. Einn var með allar tölur réttar í Jókernum og hlýtur hann 2 milljónir. Miðinn var keyptur í Olís- stöðinni á Húsavík. sisi@mbl.is Misstum af risapotti GUÐJÓN Rúnarsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka fjármála- fyrirtækja, segir eðlilegt að farið verði vel yfir starfsemi bankanna svo hægt sé að draga lærdóm af því sem fór úrskeiðis. Björn Bjarnason dómsmálaráð- herra upplýsti á Alþingi í fyrradag að ríkissaksóknari myndi gera skýrslu um starfsemi bankanna þar sem aflað yrði staðreynda um starf- semi Glitnis, Kaupþings og Lands- bankans, útibúa og fyrirtækja í þeirra eigu og tilfærslu eigna, eink- um á síðustu mánuðum starfsem- innar. Markmiðið með skýrslunni er að kanna hvort einhver refsiverð háttsemi hafi átt sér stað sem gefi tilefni til lögreglurannsóknar. thorbjorn@mbl.is Bankarannsókn eðlileg FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is EKKERT laust fé er eftir í verð- bréfa- og fjárfestingasjóðum Lands- bankans, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Slíkir sjóðir eru meðal annars peningamarkaðssjóðir sem þúsundir Íslendinga eiga hluti í. Samkvæmt útreikningum sem framkvæmdir hafa verið að undan- förnu eru einu eignirnar sem eru eftir í sjóðum bankans um 60 millj- arðar króna í verðbréfum banka og 55 milljarðar króna í verðbréfum annarra. Verðbréf annarra eru með- al annars skuldabréf fyrirtækja sem óljóst er hvort geta staðið við skuld- ir sínar við sjóðina. Þá eru verðbréf annarra banka í besta falli talin verðlítil. Eignir í sjóðum Lands- bankans eru því taldar vera mun lakari en í sjóðum hinna bankanna sem yfirvöld hafa tekið yfir. Meira laust fé hjá hinum Í sjóðum Glitnis eru alls 89 millj- arðar króna. Þar af er laust fé 38 milljarðar króna, bréf annarra banka tveir milljarðar króna og önn- ur bréf 55 milljarðar króna. Stór hluti af lausafé sjóðanna var settur inn í þá af Glitni til að kaupa skulda- bréf Stoða út úr sjóðum Glitnis. Þau voru metin á um 24 milljarða króna um mitt þetta ár. Skuldabréf Stoða voru keypt upp af Glitni áður en Fjármálaeftirlitið (FME) tók yfir bankann en eftir að ríkið ákvað að leggja Glitni til aukið hlutafé gegn 75 prósenta eignarhlut í honum. Í verðbréfa- og fjárfestingasjóðum Kaupþings eru sem stendur 17 milljarðar króna í lausafé, fjórir milljarðar króna í bankabréfum og 10 milljarðar í annars konar bréfum. Ríkið þyrfti að borga milljarða Yfirvöld hafa þegar farið í gegn- um verðbréf þeirra banka og fyrir- tækja sem eru í sjóðunum með það að leiðarljósi að skoða hversu háum upphæðum er hægt að ná út úr þeim. Þær upphæðir hafa ekki verið gerðar opinberar en samkvæmt heimildum Morgunblaðsins þyrfti íslenska ríkið að leggja sjóðunum til tugi milljarða króna til að tryggja eigendur hluta í sjóðunum fyrir tjóni. Skiptar skoðanir eru um það á meðal ráðamanna hvort og þá hvernig eigi að koma til móts við þennan hóp. Ein hugmyndin er sú að inneign í sjóðunum verði bundin í nokkurn tíma á meðan fæst á hreint hversu háum fjárhæðum sé hægt að ná út úr bréfunum í sjóðunum. Ríkið þyrfti að greiða tugi milljarða                                             !   Hvað er peningamarkaðssjóður? Peningamarkaðssjóður er ákveðin tegund verðbréfasjóðs þar sem eingöngu er að finna skammtíma- verðbréf. Þeir hafa þótt henta vel þeim sem ávaxta vilja fé í skamm- an tíma án mikillar áhættu. Sjóð- irnir tóku að hluta við af veltu- og innlánsreikningum. Hverjir áttu inneign í peninga- markaðssjóðum viðskiptabank- anna? Einstaklingar jafnt sem fyrirtæki áttu inneignir í sjóðum bankanna. Hvenær skýrist staða sjóðanna? Ekki hefur verið ákveðið hvernig brugðist verður við hruni sjóð- anna. S&S UNDANFARIÐ hefur verið unnið að bættum samgöngum fyrir reiðhjóla- fólk í Reykjavík. Nú standa yfir reiðhjólamerkingar á Suðurgötu og á Einarsnesi. Margir hafa notað góða veðrið undanfarna daga til að koma reiðhjólum sínum í stand á nýjan leik og bregða sér í hjólreiðatúr. Eitt af grænu skrefunum í Reykjavík felst í því að bæta aðstæður fyrir þá sem vilja nota reiðhjólið sem samgöngutæki og standa því yfir merkingar á nokkrum götum í borginni. Nú er verið að mála hjólareinar vestan Suður- götu, um Einarsnes og að hjólastígnum í Skerjafirði. Slíkar merkingar verða einnig settar á næstunni á Langholtsveg og Laugarásveg. Þá er tvö- földun Ægisíðustígsins langt komin en þar verða sérreinar fyrir hjólandi og gangandi til að greiða þeirra samgöngur. Bætt við hjólabrautir víðs vegar um borgina Reiðhjólamerkingar í Reykjavík Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.