Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 21 LAURAASHLEY Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646 Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga frá 10-16 Ljósadagar 20-50% afsláttur af öllum ljósum. Þessi vel haldni kampselur hafðiþað huggulegt á eyrunumsunnan við Leiruveginn á Ak- ureyri á miðvikudaginn. Hann hafði verið í fjörunni góða stund þegar blaðamaður kom á vettvang og för í sandinum báru vott um að hann hafði velt sér þar fram og til baka. Fljót- lega eftir að maðurinn með mynda- vélina nálgaðist, gangandi í hægðum sínum, mjakaði selurinn sér út í vatn- ið, gægðist annað veifið upp úr eins og til að sjá hversu hættulegur gest- urinn væri en eftir nokkurra mínútna sundsprett kom hann hins vegar aft- ur á land, á sama stað, og velti sér í sandinum lengi vel. Selurinn var vina- legur þar sem hann flatmagaði í sand- fjöru steinsnar frá Eyjafjarðarvegi eystri og líklegt mætti telja að fallegt augnaráðið hefði brætt marga. Veiði- menn telja selinn þó fráleitt vinaleg- an, enda er hann hinn versti vargur og étur að sögn gríðarlegt magn sil- ungs í Eyjafjarðaránni sem annars staðar. Töluvert er um að selir sjáist í firðinum og dæmi eru um að þeir fari langt upp Eyjafjarðará í leit að æti, jafnvel alveg inn undir Saurbæ, sem er um 25 km innan við Akureyri. skapti@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ertu þarna ennþá? Selurinn fylgdist vel með gestinum í sandfjörunni. Syndaselur á leirunum Rólegur Selurinn kippti sér ekki upp við það þó forvitinn vegfarandi liti við. Rúnar Kristjánsson á Skaga-strönd veltir fyrir sér láns- trausti og vinaláni þjóða: Íslendingar æpa á lán, orðnir vinasnauðir. Og vísast gengur Gordon Brown gegnum sömu nauðir. Vitað er að brezki Brown breytti illa í flaustri. En með brosi býður lán bangsinn stóri í austri! Pétur Stefánsson yrkir þjóðinni til uppörvunar: Ekki er risið á mér hátt, – uppréttur vart ég hangi, samt mun ég lifa og þrauka þrátt, þó að illa gangi. Að gefast upp er ekki val, þó allt sé í slæmu gengi. Áður hef ég í dimmum dal, dvalið býsna lengi. Illur beygur leggst á lýð, – lífinu margur kvíðir. Þó bresti á með blindri hríð, birtir upp um síðir. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Bangsinn stóri í austri DÚKKA sem kom fyrst á markað fyrir sautján árum er meðal þeirra leikfanga sem líklegust eru til að halda vöku fyrir foreldrum fyrir jólin í ár, er haft eftir kaupmönnum í breska blaðinu The Independent. Pissudúkkan með fylgihlutum sínum, Magic Potty, er úr Baby Born-fjölskyldunni og er einn tólf hluta sem líklegastir eru til að rata í jólapakkann í ár samkvæmt spá Samtaka leikfangaverslana. Dúkkan vinsæla kom fyrst á markað árið 1991 og vakti athygli fyrir að líkja eftir þörfum barns betur en aðrar dúkkur. Henni fylgir koppur sem leikur lag þegar dúkkan pissar og kostar hún út úr búð 33,99 pund. Önnur leikföng sem spáð er að börnin muni óska sér helst í jóla- pakkann eru nýlegri, s.s. High School Musical-dansmotta (svipað Twister). Og Samtök leikfangaverslana flokka gjafirnar í stráka- og stelpu- gjafir – þótt slíkur dilkadráttur eigi augljóslega ekki upp á pallborðið hjá öllum. Þannig telja samtökin að stelpur óski sér leikfanga og hluta sem tengjast stjörnum á borð við fyrrnefndan High School Musical- sönghóp og syngjandi Barbie- prinsessuna Liönu. Samtökin telja hins vegar að strákarnir velji frekar leikföng sem tengjast hetjum á borð við Indiana Jones og Star Wars. Bubbi byggir á svo ennþá upp á pallborðið hjá yngstu kynslóðinni. Spá samtakanna er árleg og virð- ast þau lítið sem ekkert tillit taka til þess að fjárskortur gæti háð ein- hverjum heimilum fyrir þessi jólin. „Þrátt fyrir samdrátt þurfa börn ennþá spennandi gæðaleikföng til að leika sér með og veita sér inn- blástur,“ lætur formaður samtak- anna, Gary Grant, hafa eftir sér. Pissudúkka í jólapakkann Fjöhæf Dúkkan góða pissar og grætur sé þess óskað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.