Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 38
KRISTÍN Arngrímsdóttir myndlistarmaður verður á sunnudaginn kl. 14 með leiðsögn um sýninguna Ást við fyrstu sýn, í Listasafni Íslands. Á sýningunni eru myndverk eftir 46 val- inkunna listamenn, allt frá tímum impressjónistanna frönsku, til alþjóðlegrar samtímalistar. Meðal ann- ars eru á sýninguni verk eftir Bonnard, Kiefer, Christo, Nolde, Richter og Magritte. Þá hefur sýning á myndbandsverkum írönsku listakonunnar Shirin Neshat í sal 2 í safninu verið framlengd til 2. nóvember. Kristín Arngrímsdóttir Myndlist Leiðir gesti um Listasafnið PÍANÓÞING verður haldið í Salnum í Kópavogi um helgina, föstudag til sunnu- dags. Tónlistarskóli Hafn- arfjarðar, Tónlistarskóli Kópavogs, Tónlistarskóli Reykjavíkur og Tónskóli Sigursveins D. Krist- inssonar taka þar höndum saman. Á þinginu verður meðal annars kynnt náms- efni, finnsk tónlist og píanó- kennsla í Finnlandi. Þá verður „masterclass“ með píanókenn- urunum Eava Sarmanto-Neuvonen, deild- arstjóra við Síbelíusarakademíuna, og Re- bekku Angervo. Skráning er www.epta.is. Tónlist Píanóþing í Kópavogi Salurinn í Kópavogi 38 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Í TILEFNI af útkomu enskrar þýðingar Reisu- bókar séra Ólafs Egilssonar heldur Sögusetur 1627 ráð- stefnu í Vestmannaeyjum um helgina. Þar koma sam- an innlendir og erlendir fræðimenn, fjalla um Tyrkjaránið og setja það í alþjóðlegt samhengi. Meðal gesta eru alsírski rithöfundurinn Mohamed Magani, Robert C. Davis frá Ohio-háskóla, og norski fræðimaðurinn Torbjorn Odegaard. Þá flytja erindi þau Karl Smári Hreinsson, Adam Nichols, Þorsteinn Helgason og Steinunn Jó- hannesdóttir. Ráðstefnan er í Alþýðuhúsinu. Ráðstefna Sjóræningjar í Vestmannaeyjum Steinunn Jóhannesdóttir TRÚBATRIXUR hafa skipulagt tveggja daga smá-hátíð, sem er hluti af „Off Venue“ dagskrá Ice- land Airwaves. Hátíðin er haldin í kvöld og annað kvöld, 17. og 18. október, á Café Rosenberg. Trúbatrixurnar eru ís- lenskar tónlistarkonur, kunnar sem upprennandi, og þær leika tónlist eftir konur. Margar frum- flytja nýtt efni. Dagskráin hefst kl. 16 báða dagana og lýkur kl. 22. Í dag leika m.a. Heiða, Mr. Silla, Picnic og Fabúla, en á morgun koma m.a. fram Þór- unn Antónía, Dísa, Elíza og Lay Low. Tónlist Trúbatrixur leika á Café Rósenberg Lay Low Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is GAMLA skipstjóranum Jónatani var treyst fyrir óskafleyi þjóðarinnar, en sigldi því í strand. Áður bjó hann í reisulegu húsi í Vesturbænum, en nú hírist hann með dóttur sinni í niðurníddum hús- hjalli niðri við slipp með dóttur sinni sem spáir í spil og selur sig til þess að sjá fyrir þeim. Einhverjir gætu sagt að söguþráðurinn í Hart í bak ætti sér ýmsar hliðstæður í íslensku samfélagi í dag, þótt verkið sé komið yfir fertugt. Það verður frumsýnt í kvöld í Þjóðleikhúsinu í leikstjórn Þórhalls Sigurðssonar. „Það er auðvitað sérkennilegt að vera að vinna leikrit núna þar sem aðalpersónan situr uppi með það að hafa siglt þjóðarskútunni í strand,“ segir Þórhallur. „Jökull fékk reyndar hugmyndina frá skipstjóranum sem strandaði Goðafossi árið 1916. Hann var aldrei dæmdur fyrir það, en það var þarna einhver handvömm. Í verki Jökuls tekur hann þetta inn á sig og lifir með þetta alla tíð. Þegar leikritið byrjar er hann orðinn blindur og lifir svolítið í þessari minningu. Það sem meira er þá lifa dóttir hans og sonur hennar við þetta líka, því þetta er lítill bær og skömmin er stór.“ Fólk sem þarf að velja sér leið Þórhallur tekur undir það að verk- ið kallist á við samtímann að mörgu leyti. „Þetta er fólk í vanda, fólk sem þarf að velja sér leið í lífinu og spurn- ingin er: Hefur það frelsi til þess? Staða, uppeldi og fortíð bindur fólk í þessari stöðu. Íslenska þjóðin stend- ur frammi fyrir ansi mörgum spurn- ingum í dag sem þarf að svara og mörgum leiðum sem þarf að velja á milli.“ En á Jökull einhver heilræði eða svör sem nýtast Íslendingum sem eru í sporum skipstjórans í dag? „Ja, ég held að hann efist nú um það að menn séu frjálsir að valinu, enda er hann ekki með neina lausn. Hann er fyrst og fremst að segja okkur mjög fallega sögu af alvöru fólki.“ Gaman og alvara Hann segir að þótt verkið takist á við erfiðar spurningar sé það langt frá því að vera niðurdrepandi og kímnigáfa Jökuls sé skammt undan. „Þarna blandast saman gaman og al- vara. Það eru engin fíflalæti, en það eru þarna skoplegar persónur og svartur húmor í bland. Þórhallur segist ekki reyna að nú- tímavæða verkið, það gerist enn í byrjun sjöunda áratugarins. „Það er svo margt sem tengist þeim tíma sem er skrifað inn í verkið, maður breytir því ekkert. En auðvitað er margt breytt síðan þá í leikhúsinu. Það er leikið allt öðruvísi í dag en 1962, ann- ar stíll og aðrar aðferðir. Við segjum þetta á okkar hátt, en erum trú sög- unni og leikritinu.“ Verk Jökuls Jakobssonar Hart í bak frumsýnt á stóra sviði Þjóðleikhússins í kvöld Sigldi skipinu í strand Ljósmynd/Þjóðleikhúsið Skipstjórinn Gunnar Eyjólfsson í hlutverki Jónatans sem hefur burðast með skipstrandið á samviskunni alla ævina og aldrei borið þess bætur. Í HNOTSKURN »Jökull Jakobsson (1933-1978) var 29 ára þegar Hart í bak var fyrst sýnt. Eftir hann liggja mörg leikrit, t.d. Sumarið ’37 og Dómínó. »Með helstu hlutverk faraGunnar Eyjólfsson, Elva Ósk Ólafsdóttir og Þórir Sæ- mundsson. Sigurjón Jóhanns- son hannar leikmynd og Jó- hann G. Jóhannsson semur tónlistina. Þórhallur Sigurðsson „HANN skipti mjög miklu máli fyrir endurnýjun íslensks leik- skáldskapar,“ segir Sveinn Ein- arsson fyrrver- andi leik- hússtjóri í Iðnó um sinn gamla samstarfsmann Jökul Jakobsson. Þegar Sveinn tók við Iðnó árið 1963 hafði verkið þeg- ar gengið fyrir fullu húsi í eitt leik- ár og átti eftir að ganga í önnur tvö. „Við áttum blómaskeið í leikritun eftir 1910 og uppúr 1960 hefst svo nýtt blómaskeið, segir Sveinn og nefnir þá Odd Björnsson, Jónas Árnason og Guðmund Steinsson sem dæmi um leikskáld sem voru að stíga sín fyrstu skref á sama tíma og Jökull, stuttu á eftir þeim Hall- dóri Laxness og Agnari Þórðarsyni. „Hart í bak var tímamótaverk að því leyti að það náði almennings- hylli. Sýningin var mjög góð og stóran hlut í þessari velgengni átti Gísli Halldórsson sem var leikstjóri sýningarinnar og vann mjög mikið með Jökli að handritinu.“ Sveinn segir verkið hafa haft varanleg áhrif á íslenskt leikhús. „Þetta var upphaf að ákveðinni öldu og bæði Iðnó og seinna Þjóð- leikhúsið breyttu stefnu sinni bein- línis og fóru að rækta íslenska leik- ritun. Þessi velgengni hleypti mönnum kappi í kinn.“ Hann segist spenntur að sjá upp- færslu Þjóðleikhússins og segir verk Jökuls enn eiga erindi. „Ég geri mér góðar vonir, þau verk Jök- uls sem sýnd hafa verið aftur hafa sannað það að þau eru lifandi.“ Hart í bak tímamótaverk Jökull Jakobsson Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is EINN af þeim fimm kórum sem starfa við Nið- arósdómkirkju í Noregi kemur þrisvar fram hér á landi um helgina. Þetta er Óratoríukór kirkjunnar og sá stærsti, að sögn Ingu Rósar Ingólfsdóttur framkvæmdastjóra Listvina- félags Hallgrímskirkju. „Þetta eru 65 manns sem koma til Íslands en kórinn er um hundrað manns þegar hann er fullskipaður. Honum svipar kannski svolítið til Mótettukórsins að vissu leyti, nema hann er stærri. Þau flytja til dæmis alltaf Jólaóratoríuna og Matteusar- Hún segir efnisskrána mjög breiða, en byggjast upp af perlum norskrar kórtónlistar. „Þetta eru öll stóru nöfnin, Grieg, Hovland, Ny- stedt og fleiri úrvalsverk fyrir kirkjukór úr norskum tónbókmenntum. Tvö verkanna eru eftir organista kórsins Petru Bjørkhaug sem líka er tónskáld,“ segir Inga Rós. Brot úr einu íslensku kvæði verður líka flutt á tónleikunum þrennum, það er Harmsól, gamalt helgikvæði eftir Gamla Kanóka, munk í Þykkvabæj- arklaustri á 13. öld. Tónlistin er eftir Wolfgang Plagge og kórinn frumflutti það árið 2006, en verkið reyndist of stórt til að flytja í heild sinni nú. Kórstjórinn Vivianne Sydnes hefur kennt við tónlistarháskólann í Osló. Hún stjórnaði meðal annars íslenska kórnum Schola cantorum þegar hann heimsótti Niðarós fyrir nokkrum árum. Norskar perlur og gamalt íslenskt kvæði Á heimaslóðum Óratóríukórinn er einn fimm kóra við Niðarósdómkirju.  Óratóríukór Niðarósdómkirkju syngur í Skálholti og Hallgrímskirkju um helgina passíuna á hverju ári með einsöngvurum og hljómsveit. Þessi stóru verk eru þeirra sérsvið meðal kóranna við kirkjuna.“ Í HNOTSKURN »Fyrstu tónleikar kórsins hér á landieru á morgun klukkan 12 í Skál- holtskirkju. »Á sunnudaginn syngur kórinn fyrstvið messu klukkan 11 og síðan á tón- leikum klukkan 17.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.