Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 17.10.2008, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 17. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Gunnar ReynirBæringsson fæddist á Ísafirði 7. júlí 1949. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 9. október síðastliðinn eftir skammvinna baráttu við krabba- mein. Hann var son- ur hjónanna Guð- rúnar Önnu Häsler frá Dresden í Þýskalandi, f. 12.1. 1927, d. 15.2. 2008, og Bærings Gunnars Jónssonar frá Sæbóli í Aðalvík, f. 16.2. 1924. Gunnar á fimm systkin, Hans Georg, Geir Elvar, Gertrud Hildi, Jón Sigfús og Henry Júlíus. Gunnar kvæntist árið 1970 Guð- rúnu Arnfinnsdóttur, f. 13.1. 1950. Foreldrar hennar eru Arnfinnur Valgeir Arnfinnsson, f. 28.1. 1923, og Elín Sumarliðadóttir, f. 25.11. 1924. Systkini Guðrúnar eru Bryndís, María, Sigurður og Arna Þöll. Börn Gunnars Reynis og Guðrúnar eru; 1) Elín Arndís, f. 1970, gift Einari Helgasyni, f. 1969, börn þeirra eru Hafþór Helgi, f. 1992, Gunnar Reynir, f. 1995, og Tómas Ari, f. 1999. 2) Gunnar Már, f. 1971, kvæntur Helgu Ingibjörgu Sigurbjarna- dóttur, f. 1972, börn þeirra eru Arnar Már, f. 1990, Telma Rut, f. 1993, og Andrea Ýr, f. 2003. 3) Kolbrún Ýr, f. 1975, gift Daníel Þorsteinssyni, f. 1976, börn þeirra eru Iðunn, f. 1999, og Þorsteinn Hugi, f. 2003. Gunnar var mikill fjöl- skyldumaður og mótaðist af upp- vaxtarárunum á Ísafirði. Nokk- urra mánaða gamlan drógu Gunnar upp glæsilegt fyrirtæki sem hann stjórnaði til ársins 1998. Hann var útibússtjóri hjá Bún- aðarbankanum árin 1998-1999 og sinnti síðar sjálfstæðri ráðgjöf og framkvæmdastjórn ýmissa fyr- irtækja þar til árið 2002 að hann stofnaði fyrirtækið Kortaþjón- ustuna ehf. ásamt syni sínum og fleirum. Gunnar starfaði sem stjórnarformaður Kortaþjónust- unnar til dauðadags. Gunnar sat í framkvæmdastjórn Skrúðs, elsta skrúðgarðs landsins, og sinnti þar starfi gjaldkera til margra ára. Hann var einnig með- limur í Fornbílaklúbbi Íslands og átti sjálfur þrjá fornbíla sem hann hugðist dunda sér við að lagfæra. Gunnar hafði mjög gaman af sigl- ingum. Hann tók pungaprófið svo- kallaða, hafði gaman af skútum og hafði siglt með Guðrúnu við Sard- iníu og víðar. Gunnar vann oft til verðlauna í skútusiglingum ásamt félögum sínum á seglskútunni Evu II frá Keflavík. Hann var mikill handverksmaður og byggði fjöl- skyldu sinni falleg heimili auk þess að aðstoða börnin sín við að byggja og breyta. Barnabörnin nutu góðs af rólyndi afans og lét hann sig mjög varða hvað þau höfðu fyrir stafni hverju sinni, mætti á fótboltaleiki, skóla- skemmtanir og tónleika. Hann var ósérhlífinn og alltaf boðinn og bú- inn að aðstoða alla án tillits til þess hversu mikið hann sjálfur hafði að gera. Ófáir hafa leitað ráða hjá honum í gegnum tíðina. Gunnar var ásamt konu sinni meðlimur í Félagi húsbílaeigenda og ferðuðust þau hjón á húsbílnum sínum um landið þvert og endi- langt síðustu árin. Gunnar undi sér alltaf vel úti í náttúrunni og hugur hans leitaði oft vestur og ekki síst að Sæbóli í Aðalvík þar sem fjölskyldan hans átti ávallt gott skjól frá daglegu amstri. Útför Gunnars verður gerð frá Bústaðakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. foreldrar Gunnars hann á sleða fram á Dagverðardal þar sem fjölskyldan keypti sér sum- arbústað sem átti eft- ir að reynast fjöl- skyldunni vel. Á hverju ári, snemma vors og fram á haust, fluttist fjölskylda Gunnars fram á dal þar sem systkinin léku sér saman á sumrin í læknum, eða við veiðar í ánni og í boltaleikjum. Gunnar byrjaði fljótt að aðstoða föður sinn í bakaríinu við það sem hægt var, hreinsaði kökuformin og plöturnar, stakk spýtum í sleikibrjóstsykurinn, pakkaði inn karamellum og sitt- hvað fleira. Hann lauk gagnfræða- skólaprófi árið 1965 og hóf eftir það að vinna í Íshúsfélagi Ísfirð- inga þar sem hann vann við flökun og sinnti vörubílaakstri. Gunnar kynntist Guðrúnu, konu sinni, árið 1967 og trúlofuðust þau ári síðar. Árið 1969 hóf hann störf í Lands- bankanum á Ísafirði. Gunnar gekk að eiga Guðrúnu 11. júlí árið 1970 og eignuðust þau fyrstu dóttur sína Elínu Arndísi sama ár. Þau eignuðust son sinn Gunnar Má ár- ið 1971 og fluttust til Akureyrar árið 1972 þar sem Gunnar hóf störf hjá Landsbankanum á Ak- ureyri. Aðra dóttur, Kolbrúnu Ýri, eignuðust Gunnar og Guðrún árið 1975.Gunnar hélt á vit ævintýr- anna til Reykjavíkur árið 1979 þegar hann vann að stofnun fyrsta íslenska kortafyrirtækisins Kred- itkort hf. (Eurocard) sem var stofnað árið 1980. Með miklum dugnaði og harðfylgi byggði Hvert fer ég núna til að fá góð ráð, biðja um reddingar eða ræða um daginn og veginn? Alltaf tókst pabba að fylla mig þrótti þegar ég fann fyr- ir óöryggi. Alltaf aðstoðaði pabbi mig þegar ég leitaði eftir því. Sama hvað hann hafði mikið á sinni könnu hafði hann alltaf tíma fyrir aðra og margir leituðu til hans. Ég átti pabba alltaf sem góðan vin. Ég man þegar hann flutti frá Akur- eyri til Reykjavíkur að stofna Kred- itkort hf. hvað ég grét mikið af því að ég saknaði hans. Ég man eftir seðla- veskinu sem hann gaf mér með mynd af honum sem huggaði mig á meðan hann var í burtu. Ég man eftir stolt- inu sem ég fann til þegar ég sá skrif- stofuna hans í Ármúlanum með út- sýni eins langt og augað eygði. Það má segja að á undanförnum sex árum sem við höfum unnið náið saman höfðum við bundist ennþá tryggari vinaböndum en áður. Ég hef kynnst pabba enn betur og er þakklátur fyrir það. Ófáar stundir sat ég inni á skrifstofunni hans að skrafa um dagsins mál, um vinnu og einkalíf. Pabbi var alltaf hraustur og kenndi sér sjaldan meins. Eftir að mamma greindist með krabbamein ákvað hann að gera árið í ár það sem hann kallaði ár heilsunnar. Hann fór í hjartaskoðun og skikkaði mig í það líka. Hann fór í læknisskoðanir þó að hann kenndi sér ekki meins. Nú er hann farinn frá okkur svo snöggt og svo óvænt. Það var mikið að því hlegið ekki fyrir svo löngu þegar við gengum saman hlið við hlið feðgarnir með sama göngulagi og hreyfingum. Mér er sagt að ég hafi erft alls kyns takta frá honum pabba. Guð hvað ég þakka fyrir það að líkjast honum. Það er ekki leiðum að líkjast. Pabbi hefur alltaf verið handlag- inn og það eru ófá húsin sem hann hefur tekið í gegn innan sem utan auk þess að hjálpa okkur börnunum að koma þaki yfir höfuðið. Pabbi var mjög skipulagður maður og þó að ég erfði ekki skipulagshæfileika hans er ekki öll nótt úti enn að taka sér hann til fyrirmyndar. Við áttum margt eft- ir að gera saman sem ég hlakkaði til að takast á við með honum, veiðar, siglingar, ferðalög og annað en það verður að bíða betri tíma. Pabbi hafði húmorinn alveg fram á síðustu stundu, þó svo að hann væri sárkvalinn, og gerði allt til að létta andrúmsloftið. Hann hafði óbilandi, óskiljanlegan kraft allt til síðasta andartaks. Kannski vissi hann meira en hann lét uppi, en hann bugaðist aldrei. Ég þakka fyrir að hafa getað eytt síðustu dögunum og nóttum með honum þó að það hafi verið óendan- lega erfitt að sjá þennan sterka mann svo máttfarinn eins og hann var orðinn. Ég þakka fyrir að hafa fengið að vera við hlið hans og talað til hans allt fram að síðustu stundu. Ég mun hugsa vel um hana mömmu því ég veit að pabbi var ekk- ert á leiðinni frá okkur. Minning hans er ljós í lífi okkar. Ég sakna pabba. Þinn sonur Gunnar Már Gunnarsson. Það eru liðin meira en tuttugu ár fá því ég kynntist og varð hluti af fjölskyldu þeirra sómahjóna Gunnu og Gunnars. Ég man fyrstu kynnin eins og þau hefðu gerst í gær, ég ungur maðurinn var mættur til að heimsækja Elínu. Ég man að Gunnar var heima og ég læddist með Elínu upp á aðra hæð í Skipasundinu og hafði á orði við hana að pabbi hennar liti út eins og ítalskur mafíósi, dökk- ur yfirlitum, með dökkt yfirvarar- skegg og hálsklút. Þetta var upphafið að samferð minni með tengdapabba. Stundirnar hafa verið margar í gegnum öll þessi ár, bæði gleðistundir og erfiðar stundir. Það eru mörg atriði og margar samverustundir sem koma upp í hugann nú þegar leiðir skilur. Eitt leiddi af öðru og heimsóknum mínum í Skipasund fjölgaði þar til ég flutti þar inn meðan húsráðendur brugðu sér utan. Við hjónin hófum svo búskap í Skipasundi 53, eftir miklar endurbætur á íbúðinni þar sem Gunnar sýndi mikla útsjónar- semi og dugnað. Eftir brúðkaup okkar hjóna 1993, skilaði ég kvonfanginu heim í for- eldrahús og hélt til náms erlendis, enda fullviss um að þar væri eigin- konan og frumburðurinn í góðum höndum í nokkra mánuði. Bæði Gunnar og Gunna heimsóttu okkur oft til Danmerkur í þau tíu ár sem við bjuggum þar og Gunnar sótti okkur heim á alla staði sem við bjuggum á bæði í Danmörku og Þýskalandi. Mikið var gaman að þeim heimsókn- um og mikið brallað. Einhvern veg- inn virðast flestar þessara ferða hafa verið „vinnuferðir“ því alltaf var eitt- hvað endurbætt eða lagfært þegar Gunnar og Gunna komu í heimsókn. Minnisstæð er heimsókn þeirra 1995 þegar Gunnar Reynir yngri fæddist og var auðséð að afinn var stoltur af því að hafa fengið nafna. Ómetanleg var hjálpin þegar við vorum að end- urgera gamla húsið okkar í Sdr. Tranders árið 1999. Þar var engu hlíft við niðurbrot og uppbyggingu. Unnið var sleitulaust því Gunnar Reynir yngri átti að fá nýtt herbergi áður en yngsti bróðirinn kæmi í heiminn. Hægt væri að rekja áfram óteljandi atburði sem liðnir eru en ekki ástæða til þess því allar góðu stundirnar lifa í minningunni og gleymast ekki. Það má segja að tengdafaðir minn hafi verið einhver sá umhyggjusam- asti og hjálpfúsasti maður sem ég hef kynnst í gegnum tíðina. Það var aldr- ei slegið slöku við og ætíð var hann boðinn og búinn til að aðstoða, hvort heldur var við framkvæmdir eða úr- lausnir erfiðra mála. Hann hafði ætíð lausnir á takteinum og veitti góða og uppbyggilega ráðgjöf. Sýn hans á hlutina var oft sú lausn sem engan óraði fyrir. Hann hafði ætíð tíma til að aðstoða sína nánustu og dró aldrei af sér og gaf sér tíma þó að hans biðu önnur verkefni á heimavelli. Við kveðjum í dag mikinn sóma- mann, ástríkan eiginmann, elskaðan föður, dáðan afa og umfram allt mik- inn vin. Hans verður sárt saknað og minning hans mun lifa með okkur. Einar Helgason. Hinn 9. október er án efa sá erf- iðasti dagur sem við fjölskyldan höf- um upplifað. Hann Gunnar tengda- pabbi lést. Eftir sitjum við og eigum erfitt með að sjá fyrir okkur lífið án hans. Gunnar var frábær maður, allt- af svo rólegur, yfirvegaður og góður. Við vorum alltaf velkomin til Gunn- ars og Gunnu. Gunnar var ólýsan- lega hjálpsamur, það var alveg sama hvað maður var að gera hvort sem það var að mála íbúðina okkar eða gera við eitthvað, hann var alltaf mættur með pensilinn og verkfæra- kassann. Hann fann alltaf tíma fyrir aðra sama hversu upptekinn hann sjálfur var. Hann hafði þannig áhrif á mann að maður vildi alltaf bæta sig. Það er erfitt fyrir mig að horfa fram á við vitandi að hann verður ekki með Iðunni og Huga í framtíð- inni, allt sem hann hefði getað kennt þeim um lífið. Hann var svo góður afi, alltaf til í að sinna þeim af svo mikilli ást og væntumþykju. Ég er líka svo þakklátur fyrir það að Kol- brún og ég giftum okkur í ágúst síð- astliðnum, það var yndislegur dagur og Gunnar var með okkur á þessum stóra degi. Hann leiddi Kolbrúnu sína til mín og hélt yndislega ræðu sem við munum aldrei gleyma. Að missa Gunnar er mikið áfall fyrir okkur öll og við munum ávallt minnast hans með hlýju og miklum söknuði. Ég er óendanlega ánægður að hafa kynnst þér, Gunnar, takk fyrir allt. Daníel Þorsteinsson. Ekki hvarflaði það að okkur í vet- ur þegar við kvöddum elskulega móður okkar að Gunnar bróðir yrði líka tekinn frá fjölskyldunni. Hann sem var sá sem við treystum best og hvatti alltaf til sátta ef eitthvað bját- aði á. Í stuttri kveðju vil ég minnast hans sem besta bróður, ljúfs og elskulegs föður, eiginmanns og afa og síðast en ekki síst umhyggjusams sonar sem lét sér einstaklega annt um foreldra sína. Fyrir allt þetta þakka ég og minnist góðra og gleði- legra stunda á Ísafirði, í Aðalvík og hér syðra. Gunnar var þriðji í röð okkar systkinanna og áttum við sama af- mælisdag, 7. júlí. Þann dag var oft mikið spjallað og rifjað upp gamalt og nýtt. Ég á eftir að sakna vinar í stað á næsta ári. Hér verða ekki rifj- uð upp glöð og áhyggjulaus æskuár- in okkar á Ísafirði en margt var þá brallað, þær góðu minningar geymi ég þar til síðar. Ég og fjölskylda mín kveðjum Gunnar með miklum söknuði. Það skildi enginn tár þín, þegar þú komst inn í þennan heim og ástvinir þínir brostu að þér óvitanum. Og þú varst eitt hinna litlu skipa, eitt hinna litlu skipa í flotanum mikla, sem siglir frá öllum ströndum, hvert eftir sinni stjörnu. Það skildi enginn hið dularfulla bros þitt í dauðanum. Enginn sá hin duldu sannindi lífs þíns, orð sem letruð voru með ljósi á himin þinn. Enginn skildi bros hinnar dýpstu hamingju, sem þú tókst með þér inn í eilífðina. (Gunnar Dal.) Hans Georg Bæringsson. Elsku Gunnar minn! Þetta er ekki það sem ég átti nokk- urn tíma von á, að skrifa til þín kveðjuorð. Þú varst þessi trausti og sterki bróðir sem alltaf var hægt að leita til og hafa með í ráðum. Minn- ingarnar sem koma upp í hugann eru endalausar, frá Dalnum, úr Aðalvík- inni, útilegur, fjölskylduboð og ætt- armót, svo ekki sé minnst á þegar við komum að stofnun fyrsta kortafyr- irtækisins. Þar þurfti ábyggilegan og traustan mann til forustu og þar komu þínir hæfileikar í ljós, fastur fyrir og allt í röð og reglu, og vinnu- dagurinn var langur hjá þér fyrstu árin. En alltaf áttir þú tíma fyrir Gunnu, börnin ykkar, barnabörnin og alla stórfjölskylduna, svo var mik- ið til þín leitað eftir aðstoð og góðum ráðleggingum, því fáir voru talna- gleggri ef um það var að ræða. Og hvar þú fékkst tíma fyrir allt annað! Þið Gunna keyptuð ykkur alltaf hús- næði sem gera þurfti upp og unnuð svo sjálf í þessu og þar varst þú smið- ur, múrari o.s.frv. því handlaginn varst þú. Mér og pabba er það mikil huggun að hafa getað verið með þér þessar síðustu vikur. Þar sáum við hvað þú áttir góða að og hafðir sjálfur ótrú- legan styrk. Elsku Gunna, Elín, Gunnar Már og Kolbrún, afabörnin og öll þið sem kveðjið Gunnar, við eigum mjög góðar minningar og þær eru mikils virði. Megi góður Guð vera með ykkur. Pabbi vill kveðja þig sérstaklega og þakka þér fyrir allt. Þinn bróðir, Elvar. Mig langar að minnast bróður míns Gunnars Reynis sem lést eftir stutta baráttu við krabbamein. Gunnar var yndislegur bróðir og erf- itt að hugsa sér lífið án hans. Hann var rólegur og yfirvegaður og átti alltaf góð ráð þegar til hans var leit- að. Bernska okkar leið við leik á Ísa- firði, í Tangagötunni, Túngötunni og á Dalnum. Margt var brallað og margs að minnast frá þeim tíma. Seinna þegar tvítugsaldurinn nálgaðist fór að sjást ung Grautópía í Túngötunni og þar var lífsförunaut- ur Gunnars, hún Gunna, komin. Hjónaband þeirra var farsælt og þau voru höfðingjar heim að sækja. Gunna töfraði fram veitingarnar og Gunnar á sinn rólega hátt fyllti mann öryggi og vellíðan með nærveru sinni. Gunnar var góður eiginmaður, faðir og afi og fylgdist vel með börn- um sínum og barnabörnum. Þegar börnin fóru að stálpast fóru þau Gunnar og Gunna að ferðast meira og eigum við Valli margar góðar minningar frá ótal ferðalögum með þeim. Í Aðalvíkinni, í gönguferð á Hornströndum, Síldarævintýrunum á Sigló og margt fleira. Elsku bróðir, ég vill þakka þér fyr- ir samfylgdina í gegnum lífið, þú varst góður bróðir og þín er sárt saknað úr systkinahópnum. Elsku Gunna, Elín, Gunnar Már, Kolbrún, pabbi og fjölskyldur. Síðustu vikur hafa verið okkur öllum erfiðar, en minningin um góðan dreng lifir. Þín systir, Hildur. Fallinn er frá, langt fyrir aldur fram, bróðir minn Gunnar Reynir. Ein af mínum fyrstu minningum er ég 6-7 ára í bíl með Gunnari, ég í framsætinu að þess tíma sið, bílbelti fyrirfundust ekki, bíllinn á leið útaf og hann kastar sér fram fyrir mig svo ég lendi ekki á mælaborðinu. Ég slapp með skrekkinn háorgandi en hann eitthvað krambúleraður. Mér finnst þessi atburður lýsa honum best, fljótur að skynja hvað skipti máli og tilbúinn að fórna sér fyrir það sem honum var kært. Í hópi okk- ar sex systkinanna var hann akkerið sem hélt okkur á sínum stað. Róleg- ur og yfirvegaður gaf hann okkur góð ráð og hughreysti okkur þegar það átti við og stappaði í okkur stál- inu þegar það átti við. Öll treystum við honum fullkomlega og ef hann lagði eitthvað til var það yfirleitt það skynsamlegasta í stöðunni. Frá hon- um fékk ég þá einföldustu fjármála- ráðgjöf sem ég hef fengið, þó ég kannski hafi ekki nýtt hana alltaf sem skyldi. Eitthvert sinn þegar ég var að ræða mín fjármál fyrir margt löngu og var að spá í að taka eitt- hvert lán. Spurði hann; „Getur þú nokkuð borgað þetta nema fá lottó- vinning?“ Ég minnst skemmtilegra tíma með Gunnari og Gunnu í Að- alvík. Og ég man hversu gott var að koma í Ellubæ meðan mamma lifði og þau voru þar fjögur, mamma, pabbi, Gunnar og Gunna. Það var hinn fullkomni friður og ró. Þær sátu og prjónuðu eða stússuðust eitthvað í eldhúsinu, kannski pínulítið rautt í glasi. Þeir eitthvað að bardúsa, smíða eitthvað eða lagfæra, eða Gunnar bara sofandi í stólnum og pabbi eitthvað að gera, fullkomin ró og friður. Aftur á móti gat allt farið á annan endann ef eitthvert okkar hinna kom á svæðið. Þá var farið að rassskellast um alla vík í ýmsum er- indagjörðum. Ekki það að Gunnar tæki ekki þátt í því líka, en honum Gunnar Reynir Bæringsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.