Morgunblaðið - 23.10.2008, Síða 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
Fundur undir heitinu „Ofbeldi gegn
konum og börnum. Þjóðfélagsmein!
Hvað er til ráða?“ verður haldinn
kl. 20 í kvöld í Fríkirkjunni í
Reykjavík.
Frummælendur verða Sigþrúður
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Kvennaathvarfsins, Sigríður
Björnsdóttir, annar stofnenda sam-
takanna Blátt áfram, og Guðrún
Jónsdóttir, talsmaður Stígamóta.
Fundarstjóri verður Ólafía Ragn-
arsdóttir.
Ofbeldi gegn
konum rætt
JAFNRÉTTISÞINGI sem félags- og
tryggingamálaráðuneytið ætlaði að
standa fyrir þann 7. nóvember nk.
hefur verið frestað fram í janúar.
nk. „Ráðuneytinu þykir ólíklegt að
jafnréttisþingið nái markmiðum
sínum í því óvissuástandi sem nú
ríkir í efnahagsmálum þjóð-
arinnar,“ segir í fréttatilkynningu.
Stjórn BSRB og jafnréttisnefnd
bandalagsins mótmæla harðlega
ákvörðuninni. „Það er eindregin
skoðun BSRB að í „óvissuástandi“
eigi einmitt að leitast við að stinga
á þjóðfélagsmeinum sem kynjamis-
rétti óneitanlega er.“
Telur BSRB ótækt að þinginu
skuli frestað.
Jafnréttisþingi
frestað
DAGANA 24.-25. október er boðið
til haustfagnaðar í Búðardal í Dala-
sýslu. Fjölbreytt dagskrá verður á
boðstólum, m.a. sviðaveisla, diskó-
tek, grillveisla, handverkssýning,
sveitaball og allskonar dagskrá fyr-
ir bændur, t.d. lambhrútasýning,
smalahundasýning og fyrsta Ís-
landsmeistaramótið í rúningi sem
dæmt verður af breskum dómara.
Fagnaðurinn hefst á morgun, föstu-
dag, með handverkssýningu í
Handverkshúsi Bolla.
Keppt í rúningi
Styrktartónleikar í Selfosskirkju
sem Bergmál – líknar- og vinafélag,
stendur fyrir, verða haldnir nk.
laugardag kl. 14. Tilgangur tón-
leikanna er að safna fyrir því sem
upp á vantar til að klára byggingu
orlofshúss fyrir krabbameinsjúka
og aðra langveika sem verið er að
reisa að Sólheimum. Allir listamenn
sem koma fram á tónleikunum gefa
vinnu sína og rennur því allur að-
gangseyrir óskiptur til Bergmáls.
Styrktartónleikar
SKIPULAGSSTOFNUN hefur lagt
fram tillögu að matsáætlun vegna
álvers Alcoa á Bakka. Allir geta
kynnt sér tillöguna og lagt fram
athugasemdir. Tillagan liggur
frammi til skoðunar hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, þar sem
nánari upplýsingar má nálgast um
mat á umhverfisáhrifum, auk þess
sem hægt að nálgast tillöguna á
heimasíðu HRV, www.hrv.is og á
heimasíðu Alcoa, www.alcoa.is.
Athugasemdir við tillöguna skulu
vera skriflegar og berast eigi síðar
en 6. nóvember nk. til Skipulags-
stofnunar.
Stefnt er að því að ákvörðun
Skipulagsstofnunar um tillögu
framkvæmdaaðila að matsáætlun
muni liggja fyrir þann 19. nóv-
ember næstkomandi.
Ný matsáætlun
um Bakka
ENN er ekki ljóst hvort eitthvað
hefur tapast af höfuðstóli Auroru-
velgerðarsjóðsins sem Ólafur Ólafs-
son, stjórnarformaður Samskipa, og
eiginkona hans, Ingibjörg Krist-
jánsdóttir, stofnuðu í janúar í fyrra.
Höfuðstóllinn er 1 milljarður króna
og var hann ávaxtaður hjá Kaup-
þingi.
„Hlutirnir eru ekki komnir á
hreint hjá neinum en við vonumst
samt til að geta staðið við áætlanir.
Stefnan er að úthluta um 100 millj-
ónum króna í janúar á hverju ári,“
segir Hulda Kristín Magnúsdóttir,
aðstoðarmaður Ólafs og starfsmað-
ur velgerðarsjóðsins, sem veitt hef-
ur styrki til bæði erlendra og inn-
lendra verkefna.
Stærsta styrktarverkefni Baugs
er samstarfið við Clinton-Hunter
Foundation og snýr það að kolefn-
isjöfnun í Afríku. Baugur hefur
greitt árlega til verkefnisins um 125
milljónir króna. Fyrirtækið hefur
jafnframt greitt marga tugi millj-
óna króna til annarrar góðgerðar-
starfsemi á hverju ári.
„Þessi mál, eins og önnur, eru
metin í takt við stefnu og strauma
fyrirtækisins í heild sinni,“ segir
Kristín Þorsteinsdóttir, verkefnis-
stjóri á kynningarsviði Baugs.
ingibjorg@mbl.is
Fé veitt áfram úr styrktarsjóðum
Morgunblaðið/RAX
Styrkveiting Stjórn Auroru velgerðasjóðsins og styrkþegar við úthlutun.
Nýjar 1 lítra umbúðir