Morgunblaðið - 23.10.2008, Side 28
inga til þess að þjappa þjóðinni saman.“
Bubbi hefur nú þegar fengið nokkra af vinsælustu tónlist-
armönnum þjóðarinnar til liðs við sig. „Við erum byrjaðir að tala við
hljómsveitir og þetta er breiðfylking tónlistarmanna sem ætla að
gefa vinnu sína og koma fram. Þeir sem eru búnir að staðfesta eru
til dæmis Lay Low, Stuðmenn, Esja og Ragnheiður Gröndal, og
svo eiga einhverjir eftir að bætast við.“
Áður en að tónleikunum í Reykjavík kemur ætlar Bubbi hins
vegar að halda tónleika úti á landi, en hann verður í Duus húsum
í Reykjanesbæ á föstudaginn, og í Bæjarbíói í Hafnarfirði á
laugardaginn. Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og miðaverð er
2.000 kr. Í kjölfarið fer Bubbi svo norður í land og spilar á
Akureyri, Húsavík, Dalvík og Sauðárkróki.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÉG hef ekkert efni á þessu maður, ég á ekki bót fyrir boruna. Ég fór
hins vegar og talaði við þá sem eru með Laugardalshöllina og þeir eru
að gefa okkur hana,“ segir Bubbi Morthens sem ætlar að halda stór-
tónleika í Höllinni hinn 15. nóvember. Þar mun fjöldi listamanna koma
fram og gefa vinnu sína í þeim tilgangi að þjappa þjóðinni saman í
kreppunni, en ókeypis verður á tónleikana.
„Ég er líka búinn að skrifa Reykjavíkurborg bréf
og ég er að vonast til þess að hún hjálpi okkur því
það þarf að borga þrif, rafmagn og fleira.
Í ljósi þess að Björk og Sigur Rós gátu feng-
ið einhverjar þrjár eða fjórar milljónir hjá
borginni í sumar til þess að mótmæla ál-
verum hljótum við að fá einhverja pen-
Bubbi vill sömu meðferð og Björk og Sigur Rós
28 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
Fólk
Mikil undirskriftasöfnun fer nú
fram á vefsíðunni indefence.is þar
sem ósanngjarnri meðferð breskra
stjórnvalda á íslenskum almenningi
er mótmælt. Sjálfsagt er að hvetja
sem flesta til þess að skrifa nafn sitt
á þennan lista því án viðbragða al-
mennings í landinu er ólíklegt að
orðspor Íslendinga verði bætt í nán-
ustu framtíð.
Einnig má velta því fyrir sér
hvort nú sé ekki tíminn fyrir ís-
lenska listamenn til að stilla saman
strengi og blása til listviðburðar í
nafni friðelskandi þjóðar. List-
viðburðar sem vekja myndi athygli
langt út fyrir landsteinana. Hvað
segja Björk og Bubbi við því? Ólaf-
ur Elíasson, Sigur Rós og Vestur-
port? Múm og Emilíana? Arnaldur
Indriða, Ólafur Jóhann, Erró og all-
ir þeir Íslendingar sem náð hafa ár-
angri á erlendri grundu?
Hafa verkefni menningar-
sendiherra þjóðarinnar nokkurn
tímann verið jafn ærin og nú?
Ákall til menningar-
sendiherra þjóðarinnar
„Smáfuglar“, stuttmynd Rún-
ars Rúnarssonar var á dögunum
valin besta stuttmyndin á kvik-
myndahátíðinni í Varsjá í Póllandi
auk þess sem hún hlaut að-
alverðlaun á kvikmyndhátíðinni í
Cork á Írlandi í flokki stuttmynda.
Myndin er önnur stuttmynd Rún-
ars í svokölluðum krossgátu-
þríleik hans sem hófst með „Síð-
asta bænum“ en hún komst líkt og
„Smáfuglar“ í forval Óskarsverð-
launanna. „Smáfuglar“ hefur ver-
ið á mikilli sigurgöngu allt þetta
ár síðan hún var frumsýnd á kvik-
myndahátíðinni í Cannes og eru
verðlaunin sem Rúnar hefur tekið
við fyrir stuttmyndina orðin sex-
tán talsins. Smáfuglar er þroska-
saga sem gerist á einu kvöldi þeg-
ar hópur unglinga ákveður að
skella sér í fullorðinspartí með
skelfilegum afleiðingum. Meðal
leikenda í myndinni eru Atli Óskar
Fjalarsson, Hera Hilmarsdóttir,
Sigurður Jakob Helgason og Þór-
unn Jakobsdóttir.
Ótrúleg sigurganga
Smáfugla
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞETTA er ekki dansverk þrátt fyrir
að bera þennan titil en ef ég leik mér
aðeins að orðunum myndi ég segja að
það væri dansað á helstu málefnum
tilverunnar í þessu verki,“ segir Þór-
dís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann
um nýtt leikverk sitt Dansaðu við
mig sem verður frumsýnt í Iðnó á
föstudag. „Þetta er í raun og veru nú-
tíma ástarsaga í mannlegum og hug-
ljúfum kanti. Það koma margar per-
sónur við sögu, ljósmyndari, lífeðlis-
fræðingur, myndlistamaður og ást-
kona, en samt eru bara tveir
leikarar.“
Það er hinn nýstofnaði leikhópur
Leikhús andanna sem setur verkið
upp. Með hlutverkin tvö fara Hösk-
uldur Sæmundsson og Þrúður Vil-
hjálmsdóttir, Jón Gunnar Þórðarson
leikstýrir og Jarþrúður Karlsdóttir
semur tónlistina.
Sýningin er algerlega sjálfstætt
framtak og ekki styrkt af neinum.
„Við erum með þá hugsjón að leið-
arljósi að innblástur og sköpunar-
kraftur þurfi ekki að kosta mikið.
Kreppan hafði til dæmis þau áhrif á
okkur að ríkisstjórnin tók tímabund-
ið yfir húsnæðið okkar á æfingartím-
anum fyrir blaðamannafundi,“ segir
Þórdís en leikhópurinn býður sér-
stakt kreppuverð, miðann á 2500 kr.,
á 2., 3. og 4. sýningu.
Staumhvörf í skrifum
Þórdís segir Dansaðu við mig vera
verk í léttari kantinum og það marki
því ákveðin straumhvörf í skrifum
hennar.
„Ég lauk nýverið við þríleik um
þráhyggju, Brotið, Hungur og Fýsn,
og þar var tekist á við mjög myrk við-
fangsefni. Ég var orðin gegnsósa af
þráhyggju og vildi sýna aðra hlið.“
Tvær beiðnir þurfti þó til að full-
skapa verkið.
„Það hafði samband við mig leik-
húslistakona í London og vildi setja á
svið einleik þar í borg. Þá skrifaði ég
einleik fyrir konu sem hittir fyrir
karl. Þegar ég var búin að ljúka því
kemur Höskuldur að máli við mig og
langar til að setja upp litla sýningu
frá eigin brjósti.
Ég sá mér þá leik á borði og skrif-
aði verkið aftur með karli og þannig
endurfæddist það og varð að þessu
sem fer á fjalirnar á föstudaginn.“
Skálar og skálar
Þórdís kemur víða við. Auk þess að
setja upp sýningu í Iðnó hefur Fýsn
verið á fjölum Borgarleikhússins og
svo fer hún með hlutverk í sjónvarps-
þáttunum Svörtum englum.
„Þetta er alveg kómískt, á fimmtu-
dagskvöldið er lokasýning á Fýsn
þannig að þar mun ég mæta og skála
í lokahófi og innan við sólarhring síð-
ar mun ég skála í frumsýningarhófi
fyrir næsta verk í Iðnó.“
Ekki eru það margar ungar konur
sem fást við leikritaskrif.
„Ég tel mig hafa notið gæfu á mín-
um ferli, þetta er líka spurning um að
vera dugleg og ekki láta undan þó að
á móti blási.“
„Þetta er alveg kómískt“
Leikhús andanna setur Dansaðu við mig á svið og býður kreppuverð
Hugljúf og mannleg ástarsaga Þórdís Elva var orðin gegnsósa af þráhyggju
Morgunblaðið/Ómar
Leikhús andanna Þórdís Elva, fyrir miðju, ásamt Höskuldi Sæmundssyni,
Þrúði Vilhjálmsdóttur, Jóni Gunnari Þórðarsyni og Jarþrúði Karlsdóttur.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„VIÐ erum að fara að syngja með
Funkmaster 2000. Við ætlum bara
að syngja okkar uppáhaldslög og
vera í stuði,“ segir söngkonan Urður
Hákonardóttir sem kemur fram
ásamt Kristjönu Stefánsdóttur á
tónleikum djassklúbbsins Múlans á
Rósenberg í kvöld. „Titillag tón-
leikanna er „Dance With Me“ með
Rufus og Chaka Khan, en svo syngj-
um við líka lög á borð við „You Can’t
Hide Love“ með Creative Source,“
segir Urður og bætir því að við að
hugsanlega verði framhald á þessu
samstarfi hennar og Kristjönu.
Það er annars nóg að gera hjá
Urði þessa dagana. „Ég er að vinna í
sólóplötu, sem verður svona dans-
væn poppplata með diskóívafi. Ég er
að vinna þetta með Magga Legó sem
var með mér í GusGus. Hann er að
hjálpa mér að „pródúsera“, en við
erum að vísu ekki komin neitt voða-
lega langt með þetta,“ segir Urður
sem vonar að platan geti komið út á
næsta ári. „Ég er reyndar ekki kom-
in með útgefanda eða neitt, þannig
að ég veit ekkert um það. Vonum
bara að einhver vilji gefa mig út.“
Eins og frægt er orðið sagði Urð-
ur skilið við sína gömlu félaga í Gus-
Gus fyrir nokkru, og eru þeir eflaust
margir sem sakna hennar úr fram-
línu sveitarinnar. Aðspurð segist
hún hins vegar ekki gera ráð fyrir að
hún muni snúa aftur þangað. „Ég
efast stórlega um það, ef ég á að
vera alveg hreinskilin,“ segir hún.
Tónleikarnir á Rósenberg hefjast
kl. 21 í kvöld, en kvartettinn Heið-
AndréScotToggi kemur einnig fram.
Nánari upplýsingar á mulinn.is.
Urður úr GusGus með
dansvæna poppplötu í bígerð
Morgunblaðið/RAX
Kristjana og Urður Ætla að taka sín uppáhaldslög á Rósenberg í kvöld.
Syngur með Kristjönu Stefánsdóttur á tónleikum í kvöld
Hún stóð niðursokkin í bóka-
rekka nokkra metra fyrir fram-
an mig, í þykkri, stofnanalegri
þögn sem fór henni einhvern
veginn … vel.
Og anganin …
Ég lokaði augunum, þandi út
nasavængina og sveif bók-
staflega yfir til hennar. Á leið-
inni gerði ég nokkuð sem ég
hafði aldrei gert áður. Ég tók af
mér giftingarhringinn og
smeygði honum í vasann. Ég réð
bara ekki við mig.
Orðrétt
Úr Dansaðu við mig.
Bubbi Hefur fengið Stuðmenn, Esju, Lay Low
og fleiri til að spila á stórtónleikum í Höllinni.