Morgunblaðið - 22.11.2008, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþrótt-
ir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
Eiginfjárhlutfall Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur lækk-
að um 56 prósent á þessu ári. Farið úr 46,5 prósentum í lok
síðasta árs í 20,8 prósent sé mið tekið af stöðu fyrir-
tækisins 30. september á þessu ári. Síðan hefur gengi ís-
lensku krónunnar veikst gagnvart erlendum gjaldmiðlum
um að meðaltali 20 prósent sem hefur áhrif á eiginfjár-
stöðu til hins verra þar sem skuldir OR eru allar í erlendri
mynt.
Skuldir OR hækkuðu um 81 milljarð króna frá síðustu
áramótum fram til 30. september vegna veikingar krón-
unnar. Skuldirnar hafa hækkað um 36,6 milljarða frá 30.
september til dagsins í dag miðað við gengisvísitöluna eins
og hún var við lokun markaða í gær. Heildarskuldaaukn-
ing OR á árinu nemur því rúmlega 117 milljörðum króna,
sem er meira en hundrað prósenta hækkun miðað við
skuldastöðuna eins og hún var um síðustu áramót.
Rekstur OR var með tæplega 40 milljarða króna tapi
fram til 30. september frá áramótum samkvæmt árshluta-
uppgjöri sem stjórn OR samþykkti á fundi í gær.
Eins og greint hefur verið frá í Morgunblaðinu eru áætl-
anir um framkvæmdir OR á næsta ári í uppnámi þar sem
aðgengi að lánsfé er ekki fyrir hendi. Þrátt fyrir erfitt ár-
ferði í rekstri, það er rúmlega tvöföldun skulda og erfitt
aðgengi að lánsfé, telur stjórn félagsins rekstur OR traust-
an og lausafjárstöðu fyrirtækisins sterka.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri OR, segir rekstrarumhverfi
á Íslandi vera „fjandsamlegt“. Eiginfjárstaða flestra fyr-
irtækja landsins geti versnað mikið veikist krónan meira
frá því sem nú er. „Rekstur OR er traustur og fyrirtækið
nýtur góðs af rekstrareiningum sem skila stöðugum
tekjum. En skuldir fyrirtækisins hafa hækkað gríðarlega
samhliða mikilli veikingu krónunnar á árinu. Ég er hrædd-
ur um að eigið fé fyrirtækisins verði fljótt að étast upp
veikist krónan meira. Staða OR, sem býr við þann munað
að vera með stöðugan og traustan rekstur, gefur vísbend-
ingu um þá gríðarlega erfiðu stöðu sem íslenskt efnhagslíf
er í nú um stundir.“
Skuldirnar tvöfaldast
Skuldir Orkuveitu Reykjavíkur hækkuðu um 81 milljarð fram til 30. september
Síðan hefur krónan veikst um 20 prósent Fjandsamleg staða segir forstjórinn
Í HNOTSKURN
» Áætlanir um fram-kvæmdir OR eru í upp-
námi þar sem aðgengi að láns-
fjármagni er ekki fyrir hendi.
» Hagnaður OR fyrir af-skriftir, fjármagnsliði og
skatta, EBITDA, var rúmlega
átta milljarðar samanborið við
rúmlega sjö á sama tíma í
fyrra.
» Eigið fé OR í lok árs ífyrra var 88,9 milljarðar
en er nú um 48 milljarðar
króna.
ÞAÐ getur verið notalegt að fá að fljóta með
strætó í skammdeginu þegar umferðin einkenn-
ist af stressi og slabbi. Inni í strætó gefst nægur
tími til að láta hugann reika, hlusta á tónlist og
gleyma jafnvel umhverfinu um stund eða glugga
í bók á meðan bílstjórinn ber mann á áfangastað.
Strætófarþegum hefur enda fjölgað umtalsvert í
Reykjavík frá síðasta ári og ekki ólíklegt að með
breyttum tímum muni fleiri læra að njóta strætó.
Strætóstund í skammdeginu
Morgunblaðið/Golli
SAMÞYKKT
hefur verið í
dómsmálaráðu-
neytinu beiðni
um að verð á get-
raunaröð í 1 x 2
verði hækkuð úr
12 krónum í 17.
Stefán Konráðs-
son, fram-
kvæmdastjóri Ís-
lenskra getrauna,
segir því miður ekki aðra kosti í stöð-
unni eins og er. Verðlagning fylgir
verðskrá Svenska Spel og hefur
gengið orðið æ óhagstæðara.
„Við höfum selt röðina á 10 krónur
í 20 ár því sænska krónan var alltaf
rétt undir 10 krónum. Við fengum
svo leyfi 17. ágúst síðastliðinn til að
hækka í 12 krónur en nánast í sömu
viku féll gengið það mikið að sænska
krónan varð 15, svo 16 og er núna
orðin 17 krónur.“
Vegna þessa hafi nánast ekkert
verið eftir til skiptanna til íþrótta-
félaga í landinu, sem fá arðinn af sölu
Íslenskra getrauna. Það er þó aðeins
1 x 2 sem hækkar, ekki Lengjan.
1 x 2-röðin
hækkar í
17 krónur
Boltinn Eflaust
tippa þessir alltaf.
Ekki annað í stöðunni
eftir fall krónunnar
ÖLLU starfsfólki skurðstofunnar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
(HSS) hefur verið sagt upp og stof-
unni lokað til að ná fram sparnaði.
Þetta kom fram í fréttum RÚV í
gær. Heilbrigðisráðuneytið hefur
sent heilbrigðisstofnunum um land
allt beiðni um tillögur að 10% sparn-
aði í rekstri. Þannig þarf HSS að ná
fram 200 milljóna króna sparnaði.
Yfirmenn HSS telja fjárframlög
ráðuneytisins ekki hafa haldið í við
fólksfjölgun svæðisins. Því hafi þeg-
ar hallað á rekstur stofnunarinnar.
Í frétt frá HSS kemur fram að í
september sl. hafi heilbrigðisráðu-
neytið hafið úttekt á rekstri HSS.
Helstu atriði úr niðurstöðum úttekt-
arinnar hafi fyrir nokkru verið
kynnt forstjóra HSS og lagt til að
hefja úrbætur. Tillögurnar feli m.a. í
sér breytingar á rekstrargrunni fyr-
ir stofnunina vegna fólksfjölgunar á
svæðinu en einnig það að færa rekst-
ur skurðdeildar út úr HSS til ann-
arra aðila sem sinntu þjónustunni.
Skurðstofu
lokað á HSS
... eru betri en aðrar
10. - 17. desember 26. nóv. - 10. des.
frá49.900 kr. frá57.900 kr.
Sólarveisla á Kanarí
FORMENN stjórnarandstöðuflokkanna hafa lagt fram
þingsályktunartillögu þar sem vantrausti er lýst á ríkis-
stjórnina. Jafnframt er lýst þeim vilja stjórnarandstöð-
unnar að þing verði rofið fyrir 31. desember og í kjölfarið
efnt til almennra þingkosninga.
Valgerður Sverrisdóttir, formaður Framsóknarflokks-
ins, segir að í ljósi sögunnar sé ekki líklegt að svona til-
lögur séu samþykktar. „Nú er bara spurning hvort hug-
ur fylgir máli hjá þeim sem talað hafa fyrir því að það
þurfi að kjósa og þá er ég nú ekki síst að tala um ráð-
herra Samfylkingarinnar. Það virðist ekki vera mikil
meining á bak við það sem sagt er, að minnsta kosti
sjáum við ekki að það eigi að standa upp úr ráðherrastól-
unum og reyna að bæta ástandið, en við viljum gefa þeim
tækifæri til þess,“ segir Valgerður.
„Á sama tíma og þjóðin býr við erfiðar aðstæður og
það eru miklir erfiðleikar sem þarf að leysa úr þá nota
meðlimir ríkisstjórnarinnar og stjórnarflokkanna helst
orku sína í að deila innbyrðis og meðal annars þess vegna
treystum við þeim ekki til þess að fara með þetta vald
áfram.“ Samþykki meira en helmingur þingmanna tillög-
una þarf að boða til kosninga innan fárra mánaða, en litl-
ar líkur eru á því að tillagan verði samþykkt enda eru
stjórnarþingmenn 43 en í stjórnarandstöðu aðeins 20.
Andstaðan lýsir yfir
vantrausti á stjórnina
Stjórnarandstaðan krefst þingrofs fyrir áramót og kosninga
Steingrímur J.
Sigfússon
Valgerður
Sverrisdóttir
Guðjón Arnar
Kristjánsson