Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
„VIÐ fögnum þeim tímamótum að
Norðmenn skuli hafa sýnt það
hugrekki og skynsemi að feta í
fótspor Svía með banni sínu á
kaupum á vændi,“ segir Guðrún
Jónsdóttir, talskona Stígamóta, en
kvennahreyfingar landsins boðuðu
til fagnaðar fyrir framan norska
sendiráðið í gær undir yfirskrift-
inni „Ja, vi elsker dette landet“,
sem vísar í norska þjóðsönginn, til
þess að fagna því að lög sem
banna kynlífskaup hafa verið sam-
þykkt á norska Stórþinginu.
Að sögn Guðrúnar eru Bretar
nú um stundir einnig að skoða
möguleika þess að fara að for-
dæmi Svía. „Við erum sannfærð
um að það er meirihluti bæði á ís-
lenska þinginu og meðal íslensku
þjóðarinnar fyrir því að við förum
þessa leið líka.“
Í nýútkomnum bæklingi Euro-
pean Women’s Lobby um for-
varnir og aðstoð við konur sem
orðið hafa fyrir mansali til kynlífs-
þrælkunar kemur fram að sterk
tengsl séu milli vændis og kláms
annars vegar og mansals hins veg-
ar.
Meirihluti fyrir banni
Að sögn Guðrúnar eru sífellt
fleiri hérlendis að verða sér með-
vitandi um þessi tengsl. „Þannig
er bann við nektardansi t.d. komið
inn í lög hérlendis, þótt það ótrú-
lega hafi gerst að inn í lögin hafi
læðst undanþáguákvæði sem nú
virðist orðið að meginreglu. Krafa
okkar eru sú að þessu verði breytt
og undanþágan verði afnumin,“
segir Guðrún og tekur fram að
Stígamót hafi ásamt kvennahreyf-
ingum frá Bandaríkjunum, Ind-
landi, Lettlandi, Perú og Sambíu,
sem berjast gegn mansali, sent frá
sér ályktun þessa efnis í byrjun
mánaðarins í framhaldi af fundi
sínum. silja@mbl.is
Sýna hugrekki
Morgunblaðið/Ómar
Skálað var fyrir banni norskra stjórnvalda á kynlífskaupum fyrir framan norska sendiráðið
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ má segja að við innsiglum nýfengna að-
ild okkar að European Women’s Lobby með
því að halda þessa málstofu í samstarfi við
samtökin,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta, um málstofu um baráttu gegn kyn-
ferðisofbeldi í Evrópu sem fram fór í Iðnó í
gær, en við sama tækifæri voru fyrstu jafn-
réttisviðurkenningar Stígamóta veittar.
„Við fengum stuðning frá félagsmálaráð-
herra nú í haust til að gerast aðilar að Euro-
pean Women’s Lobby og mér var boðið að
gerast einn þrjátíu sérfræðinga hjá Evrópu-
setri gegn kynbundnu ofbeldi. Þetta gjör-
breytir stöðu okkar því núna höfum alltaf
beinan aðgang að nýjustu rannsóknum, bestu
lögunum og því sem best er gert á þessu
sviði.“
Fyrstu jafnréttisviðurkenningar Stígamóta
féllu í hlut Þorgerðar Einarsdóttur, Kolbrúnar
Halldórsdóttur, Katrínar Önnu Guðmunds-
dóttur, Matthildar Helgadóttur og Margrétar
fram á afkáraleika þröngra kynímynda. Hún
beitti frumleika og fyndi sem eru afskaplega
sterk vopn í þessari baráttu. Margréti, sem
situr í framkvæmdahópi Stígamóta, viljum
við þakka fyrir ósérhlífni í störfum hennar
fyrir Samtökin og tryggð við þau. Og eins
fyrir að taka að sér mörg vandasöm verkefni
á vegum samtakanna,“ segir Guðrún.
Spurð af hverju Stígamót hafi ákveðið að
veita jafnréttisviðurkenningar segir Guðrún
oft gleymast að vekja athygli á því sem vel sé
gert.
„Valkyrjurnar sem toga okkur í rétta átt
eru oft ósýnilegar og það sama má segja um
vinnuna þeirra. Okkur finnst hins vegar svo
gífurlega mikilvægt að hinar raunverulegu
hetjur, sem gjarnan vinna á bak við tjöldin,
séu dregnar fram í dagsljósið,“ segir Guðrún
og tekur fram að kveikjuna að jafnréttisvið-
urkenningu Stígamóta megi hins vegar ekki
síður rekja til þess að Alcoa Fjarðarál hlaut í
síðasta mánuði viðurkenningu Jafnréttisráðs
á sviði jafnréttismála vegna þess að 28%
starfsmanna fyrirtækisins eru konur.
„Við urðum alveg dolfallnar yfir þessari
ákvörðun, því okkur finnst hún ekki end-
urspegla mikinn skilning eða þekkingu á því
hvað þarf að gera til þess að jafnrétti náist á
Íslandi,“ segir Guðrún.
Steinarsdóttur. „Þorgerð-
ur fær verðlaunin fyrir að
ala upp fræðifólk framtíð-
arinnar því hún heldur ut-
an um kynjafræðina við
HÍ og hefur sýnt einstaka
þekkingu og færni í það
beita verkfærum kynja-
fræðinnar. Við veitum
Kolbrúnu þessi verðlaun
því hún hefur verið mjög
ötul við að færa inn í sal Alþingis hug-
myndafræði og áherslur Stígamóta. Hún
hefur flutt mörg frumvörp sem tengjast kyn-
ferðisofbeldi við illskiljanlegan mótbyr.
Hetjurnar dregnar fram í dagsljósið
Katrín Anna fær viðurkenningu sem ötul
talskona femínisma og fyrir að leika sér á
mörkum hins leyfilega og þannig skapa auk-
ið rými fyrir okkur hin. Matthildur fær þessi
verðlaun fyrir verkefnið sitt Óbeislaða feg-
urð sem vakið hefur athygli víða um heim,
en í þessu stórkostlega verkefni sýndi hún
Valkyrjur í baráttunni heiðraðar
Í HNOTSKURN
»European Women’s Lobby erustærstu regnhlífarsamtök í Evrópu,
en innan þeirra vébanda starfa yfir tvö
þúsund kvenna- og jafnréttissamtök
sem leggja mikla áherslu á baráttuna
gegn kynbundnu ofbeldi.
»Á vegum samtakanna starfa þrjátíumanna sérfræðingateymi í ofbeldis-
málum og nú hafa Stígamót eignast
fulltrúa í því teymi
»Fyrstu jafnréttisviðurkenningarStígamóta voru veittar í gær.
Guðrún Jónsdóttir
BÆJARRÁÐ Akureyrar furðar sig
á og mótmælir því harðlega að Há-
skólinn á Akureyri (HA) skuli ekki
vera þátttakandi í samstarfsvett-
vangi um lýðheilsurannsóknir sem
verið er að stofna til. Á fundi bæjar-
ráðs í vikunni var lögð fram fram
viljayfirlýsing milli heilbrigðis-
ráðuneytis, Lýðheilsustöðvar, Há-
skólans í Reykjavík og Háskóla Ís-
lands um málið.
„Bæjarráð Akureyrar furðar sig
á því að Háskólinn á Akureyri hafi
ekki átt aðkomu að nýstofnuðum
samstarfsvettvangi um lýðheilsu-
rannsóknir. Tvær helstu lýðheilsu-
rannsóknir á Íslandi hafa verið
unnar á vegum Háskólans á Akur-
eyri og þar er öflug heilbrigðisdeild
sem sinnir jafnframt rannsóknum.
Þegar sú ákvörðun lá fyrir að Lýð-
heilsustöð yrði ekki staðsett á Ak-
ureyri var um það rætt að rann-
sóknastarf stofnunarinnar kynni að
verða staðsett hér. Þegar til kom
var rannsóknasvið Lýðheilsustöðv-
ar einnig sett á stofn innan veggja
stofnunarinnar í Reykjavík.
Bæjarráð mótmælir harðlega
þessum vinnubrögðum og beinir því
til þeirra er málið varðar að Há-
skólinn á Akureyri verði þátttak-
andi í samstarfsvettvangi um lýð-
heilsurannsóknir,“ segir í bókun
bæjarráðs. skapti@mbl.is
HA verði með
í lýðheilsu-
rannsóknum