Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 5
HEIMSKA SAMFÉLAGSINS ...
Lítil stúlka kemur að fertugum borgarstarfsmanni þar sem hann
er að laumast til að reykja sígarettu inni á salerni í vinnunni.
Hversdagslegt atvik sem þó er litið grafalvarlegum augum og
hrindir af stað hryllilega fyndinni atburðarás sem sagnameistarar
eins og Swift og Kafka hefðu verið fullsæmdir af.
Það sem hrífur mig mest í Litlu stúlkunni og sígarettunni er hvernig
sagan varpar ljósi á innbyggða heimsku nútíma samfélags; svartur
húmor sem snýr hreinasta hryllingi upp í töfrandi dauðadans.
– Milan Kundera
... háðsk ádeila á nútímasamfélagið ... pólitísk rétthugsun er
allsráðandi en heilbrigð skynsemi og góðvild má sín lítils ...
bráðskemmtileg bók og hressandi lesning í öllu því fári vondra bóka
sem nú ríður yfir veröldina.
– Jón Þ. Þór, DV
Frábær bók, alveg frábær bók!
– Kolbrún Bergþórsdóttir, Kiljunni
Perry er með greindarvísitöluna 76 en hann er ekki heimskur. Amma
hans kenndi honum allt sem hann þarf að vita til að komast af.
Þegar Amma deyr er Perry þrjátíu og tveggja ára, einn í heiminum
og allslaus. En þá vinnur hann tólf milljónir dala í Ríkislottóinu í
Washington og kemst að því að hann á fleiri skyldmenni en hann
hefur þörf fyrir. Í Lottó birtist skrautlegt samsafn fólks, gott og slæmt,
hetjur og skúrkar. Frábærlega skrifuð bók um traust og vináttu og um
það sem gerir okkur hæf til að lifa lífinu.
Hjartnæm, spennandi og merkileg saga um forríkan lítilmagna
sem sýnir okkur hve lítið greindarvísitalan segir til um gáfur
hans.
... athyglisverð og skemmtileg aflestrar, og á köflum bráðfyndin. Og hún
er flestum holl lesning. ... hinum sem láta stjórnast af ágirnd og græðgi
getur hún vonandi kennt að skammast sín. Umfram allt hefur hún þó
manngæsku og náungakærleik til vegs.
– Jón Þ. Þór DV
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - 101 Reykjavík
s. 552 8866 - skrudda@skrudda.is
www.skrudda.is
Höfundur bókarinnar, Benoit Duteurtre, kemur til landsins eftir helgi
og mun kynna bókina á bókmenntakvöldi hjá Alliance Francaice,
Tryggvagötu 8, þriðjudaginn 25. nóv. nk. kl 20.
HREINN GULLMOLI!
NÝJAR BÆ
KUR
GAMALT V
ERÐ!