Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Það var kom-inn tími tilað ríkis- stjórnin ákvæði að afnema þýðingar- mestu atriði eftir- launalaganna sem veittu þingmönnum, ráðherrum og embættismönnum ríflegri líf- eyrisréttindi en öðrum. Að því var stefnt samkvæmt stjórnarsáttmála ríkisstjórn- arinnar að koma á meira sam- ræmi milli eftirlauna ráða- manna og almennings. Afnám þessara sérréttinda núna sýnir að ríkisstjórnin er farin að hlusta betur á það sem almenningur hefur að segja. Það hefur verið hávær krafa á flestum baráttu- samkomum síðustu vikur að þessi réttindi verði færð í fyrra horf og nær því sem fólk á almennum vinnumarkaði nýtur. Ákvörðun ríkisstjórnar- innar sýnir líka að Samfylk- ingin, ekkert síður en Sjálf- stæðisflokkurinn, getur komið sínum áherslumálum á dagskrá og fengið þau í gegn. Í því ljósi er sérstaklega at- hyglisvert að tveir ráðherrar í ríkisstjórninni vilji hlaupa frá þeim björgunarleiðangri sem nú stendur yfir og boða til kosninga í upphafi endur- reisnarinnar. Það er eins og viðskipta- og umhverfis- ráðherra hafi ekki trú á þeim verkefnum sem ríkisstjórnin vinnur sameig- inlega að. Nú reynir á styrk Samfylking- arinnar. Þing- menn flokksins verða að sýna fram á að þeim sé treystandi til að leiða þjóð- ina áfram í gegnum erfiða tíma jafnt sem góða. Geti þeir það ekki bregðast þeir miklu frekar trausti kjósenda en samstarfsflokksins. Yfirlýs- ingar ráðherranna hafa rýrt dýrmætan trúverðugleika ráðamanna á ögurstund. Höggin eru mörg í miklum mótvindi hér á Norður- Atlantshafi. Stjórnmálamenn verða þá að hafa pólitískt þrek til að taka miðin og vísa fólki veginn. Geti þeir það ekki ber þeim að hætta í rík- isstjórn. Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir sýndi í gær að hún ætti að geta talið sínu fólki trú um að langtímaverkefnið sé að vinna að lausn þess vanda sem þjóð- in glímir nú við. Hér skipta flokkshagsmunir minna máli en hagsmunir fólks og fyr- irtækja í landinu. Vilji ríkisstjórnarinnar til að lækka laun þeirra sem heyra undir kjararáð og op- inberra hálaunamanna sýnir líka vilja ráðamanna til að deila kjörum með þjóðinni. Samkennd og samheldni eru mikilvægir ferðafélagar í erf- iðri vegferð framundan. Yfirlýsingar ráð- herranna hafa rýrt trúverðugleika } Sérréttindi afnumin Fjölsmiðjanveitir ungu fólki, sem af ein- hverjum ástæðum hefur ekki náð að fóta sig í námi eða starfi, þjálfun og þekkingu. Og þar með von. Fjölsmiðjan er afkvæmi Rauða kross Íslands, félags- málaráðuneytisins og sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu, auk þess sem náið samstarf er við Vinnumálastofnun og menntamálaráðuneytið. Í vinnusetrinu, eins og Fjöl- smiðjan er réttilega nefnd, er ungt fólk á aldrinum 16-24 ára. Sumir hafa hætt námi eða flosnað upp úr því af ýms- um ástæðum, aðrir þurft að glíma við fíkn og misst fót- anna um stund af þeim orsök- um. Starfsemi Fjölsmiðjunnar, sem er rekin að danskri fyrir- mynd, hefur ekki farið hátt. Þarna eru þó yfir 70 nemar hverju sinni og fást við hin fjölbreytilegustu verkefni. Fjölsmiðjan rekur trésmíða- deild, hússtjórnardeild, bíla- deild, rafdeild og sjávarútvegs- deild, tölvu- og prentdeild og hönnunardeild. Nemarnir fá ekki aðeins tilsögn í vinnubrögð- um og þjálfun í samskiptum á vinnustað, heldur taka að sér ýmis verkefni fyrir ein- staklinga, stofnanir og fyr- irtæki og fá þannig að kljást við raunveruleg viðfangsefni vinnumarkaðarins. Ef ekki væri fyrir Fjöl- smiðjuna ætti þetta unga fólk erfitt með að vinna upp glat- aðan tíma. Þessi hópur, sem á allt lífið framundan, væri þá dæmdur til að vera á skjön við samfélag sitt. Þess í stað veit- ir Fjölsmiðjan hópnum styrk og sjálfstraust, sem er grund- völlur þess að unga fólkið geti tekist á við nám eða vinnu. Aðsóknin hefur aukist dag frá degi og Þorbjörn Jensson forstöðumaður vill gjarnan fjölga í nemahópnum. Von- andi verður sú raunin, því starfið í Fjölsmiðjunni er gríðarlega mikilvægt. Fjölsmiðjan veitir nemum styrk og sjálfstraust } Gott starf í Fjölsmiðjunni Þ egar hringekjan sló í gegn í Evrópu var henni haldið leyndri innan kastalaveggja og enginn mátti sjá hana af því að hún var ekki bara leikfang heldur æfingatæki fyrir hermenn. Hringekjur voru ekki leyfðar í al- mennu opnu rými og það var ekki fyrr en löngu síðar að Gunna og Jón og þú og ég máttum vera með í hringekju í tívólí. Ég veit ekki hvenær fyrsta hringekjan kom til Íslands en ég veit hitt að við erum meistarar í nýtískulegum hringekjuleik sem virðist engan endi ætla að taka. Hver ber ábyrgð á hruninu er spurt, og hringekjan fer af stað. Ríkisstjórnin bendir á Seðlabankann sem bendir á ríkisstjórnina sem bendir á Fjármálaeftirlitið sem bendir á ríkis- stjórnina sem bendir á Fjármálaeftirlitið sem bendir á Seðlabankann sem bendir á ríkisstjórnina sem bendir á Seðlabankann. Og Bjarni Harðarson segir af sér. Hver ákvað hækkun stýrivaxta er spurt, og hringekjan gefur í. Ríkisstjórnin hrópar Ingibjörg, Seðlabankinn hrópar Össur, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hrópar Árni og allir fara glaðbeittir saman í næsta hring. Guðni Ágústs- son segir af sér. Hver sat þessa fundi alla þar sem varað var við og kall- að á aðgerðir er spurt, og hringekjan ætlar um koll að keyra. Ha, ég? Ekki ég, hver þá nei þú já þú, ekki satt! Hver þá? Og hringekjan fer hring eftir hring og óskar sjálfri sér til hamingju með nýja stóra lánið sem ungar axlir upprennandi kynslóða skulu bera. „Til hamingju,“ segja ráðherrar á þingi þegar lán Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er til umræðu, „til hamingju!“ Stjórnarráð Íslands eftir Dario Fo. Við eigum heimsmet í ráðherrafjölda miðað við höfðatölu og þeir sitja í hringekju innan kastalaveggja þar sem enginn má sjá eða heyra. Það var einmitt svona sem margrómuð útrás fór hring eftir hring í hringekju krosseignatengsla, leyndarmála, sýndarveruleika. Hin átakanlega, blákalda staðreynd er sú að engin uppstokkun fer fram: björgunarleið meðsekra stjórnvalda er hringekjan til glötunar. Ég segi NEI. Nei, ég treysti ekki þessu fólki, þessari hringekju sömu valdhafa ábyrgð- arleysis, ég treysti ekki Stjórnarráði Darios Fos til að fara með þúsund milljarða fyrir hönd ókominna kynslóða. Það er raunveruleg hætta að lánin sem nú eru tekin sturtist niður á mettíma og íslenskt samfélag sitji eftir enn skuldugra en áður. Það er verið að drepa at- vinnulíf og heimili með glæpsamlega háum vöxtum í firrtri stefnu. Á dagskrá er lokun fæðingardeilda, áframhaldandi náttúrueyðing. Ég segi nei. Er ég á móti öllu? Nei. En mér hugnast illa stjórnvöld sem firra sig ábyrgð og halda áfram að keyra okkur í kaf. Því fallegasta og besta við Ísland verður að bjarga, en kastalaveggi hringekjunnar verður að mylja til grunna ef hugsjón um betra samfélag á að eiga sér von. liljagretars@gmail.com Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Pistill Hringekjan sem aldrei hættir Séreignarsparnaður aftur til ársins 2006 FRÉTTASKÝRING Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is D æmi eru um að við- skiptavinir lífeyrissjóð- anna hafi tapað þriggja ára ávöxtun af séreign- arsparnaði sínum vegna hruns bankanna og lægra hlutabréfaverðs. Staðan er misjöfn. Bankamenn í Kaupþingi sem áttu séreignarsparnað sinn eingöngu í bréfum í bankanum hafa til dæmis glatað öllum sínum. Lífeyrissjóður verslunarmanna hefur tapað 23,4 prósentum af upp- söfnuðum sparnaði sínum, sem er með því mesta sem gefið hefur verið upp, Gildi lífeyrissjóður skerti tvær séreignarsparnaðarleiðir sínar um tólf prósent og allar séreignarleiðir Lífeyris, Sameinaða lífeyrissjóðsins, bera neikvæða ávöxtun frá áramót- um, frá 1,5 prósentum og upp í fjög- ur. Þeir þrettán þúsund virku sjóð- félagar sem lögðu viðbótarlífeyris- sparnað sinn í Almenna lífeyrissjóð- inn þurfa nú að sætta sig við að öll ávöxtun Ævisafns I frá ársbyrjun 2006 er horfin. Ævisafn II er nú í sömu stöðu og í ágúst 2006, Ævisafn III fór aftur til apríl 2006 og Ævisafn IV til ágúst 2007. Þessi staða er ekki einsdæmi. Við endurmetum stefnuna Gunnar Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Almenna lífeyrissjóðs- ins, sem rekinn er af Glitni, segir erf- itt að sætta sig við að erfiði og árangur síðustu ára sé fyrir bí, en staða sjóðsins sé sterk. „Eftir á að hyggja hefðum við viljað gera hlutina öðruvísi og dreifa eignum meira,“ segir hann en ítrekar: „Við gerðum alltaf það sem við töldum rétt og með hagsmuni sjóðsins að leiðarljósi. Við höfum alltaf verið innan stefnunnar og innan laga. En auðvitað lærum við af svona þróun.“ Hann segir að stað- an hefði verið þolanlegri hefði aðeins einn bankanna farið í þrot og hálfs til eins árs ávöxtun tapast. Áfallið við hrun þriggja banka sé of mikið og því verði lagt til að fjárfestingarstefn- unni verði breytt með það að mark- miði að auka áhættudreifinguna. „Við munum leggja til að eign í hverjum aðila verði aðeins fimm pró- sent en ekki tíu eins og lög heimila.“ Einnig sé í skoðun að sjóðurinn fjár- festi ekki bæði í hlutabréfum og skuldabréfum sama fyrirtækis. Þá verði sjóðnum óheimilt að fjárfesta í eignarhaldsfélögum sem byggi af- komu sína á hlutabréfum sem sjóð- urinn fjárfesti svo einnig í. Þar vísar hann til félaga eins og Stoða, Sam- sonar, Existu. „Við höfum líka verið að skoða að auka vægi ríkisskulda- bréfa.“ Þau tapist ekki þótt þau sveiflist í verði. Sjóðurinn verði alltaf að ná langtímamarkmiði sínu sem sé í það minnsta 3,5 til 5 prósenta raun- ávöxtun; það er ávöxtun umfram verðbólgu. Aðrir sjóðir endurmeti örugglega einnig stefnu sína. Enn eiga stórir lífeyrissjóðir eftir að gefa upp stöðu séreignarsjóða þeirra, þar á meðal sá stærsti, Lífeyr- issjóður starfsmanna ríkisins, en hann er ríkistryggður og skaði sjóð- félaga enginn heldur ríkisins. Fjöldi lífeyrissjóða hefur ekki reiknað upp hvort og þá hver skerð- ing verður. Stafir lífeyrissjóður og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, sem eru meðal þeirra stærstu, stefna á að gefa upp stöðuna í næstu viku. Þeir vildu ekki áætla tapið. Gylfi Jónasson, framkvæmdastjóri Festu, gerir það og segir áætlað að skaði deildarinnar vegna hruns bank- anna sé á bilinu níu til tólf prósent. „Miðað við þetta hefur eignastaða deildarinnar þrátt fyrir þetta vaxið um 12 til 16 prósent frá áramótum.“ Morgunblaðið/hag Áhugasamir sjóðfélagar Nærri 350 viðskiptavinir Almenna lífeyrissjóðs- ins mættu á stöðufund hans í lok október. Staða sjóðsins er sögð sterk. BÁÐAR séreignasparnaðarleiðir Stapa lífeyrissjóðs skila góðri ávöxtun það sem af er ári. Safn eitt hefur skilað 24,7 prósenta vexti síðustu tólf mánuðina og Safn tvö 21,7 prósenta. Hrun bank- anna hefur því lítil áhrif á á ávöxt- unina. Guðmundur Baldvin Guðmunds- son, skrifstofustjóri hjá Stapa líf- eyrissjóði, segir að lífeyrissjóð- urinn hafi verið búinn að selja nær öll innlend hlutabréf sín fyrir hrun bankanna. Sjóðurinn átti þó skuldabréf í bönkunum, sem enn sé óljóst um, en engin slík skuldabréf eru þó í séreignasjóðum Stapa. „Okkur óraði ekki fyrir því að svona færi [og bankanir hryndu] en við seldum innlendu hlutabréfin þar sem við töldum að lítil hækkun yrði á innlenda hlutabréfamark- aðinum.“ Stapi lífeyrissjóður er sameinaður lífeyrissjóður Norður- lands og Austurlands frá árinu 2007. Hann er sjötti stærsti sjóður landsins. Guðmundur segir Safn 1 nær ein- göngu byggjast á ríkisskuldabréfum en 70 prósent af Safni 2 séu rík- isskuldabréf og 30 prósent erlendar eignir: „Jafnvel þó að þær eignir hafi verið í niðursveiflu hefur gengi krónunnar vegið það upp og gott betur.“ ÖNNUR STEFNA SJÓÐUR Í GRÓÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.