Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 26
26 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Stjórnendur deCODE hafa ekki enn
leyst úr erfiðri lausafjárstöðu félags-
ins. Kári Stefánsson, forstjóri de-
CODE, sagði á símafundi með fjár-
festum fyrir tveimur vikum að hann
vonaðist til að tilkynna um vænt-
anlega lausn innan fjórtán daga. Sú
tilkynning hefur ekki borist.
Gísli Árnason, fjölmiðlafulltrúi de-
CODE, sagði í gær að ekki væri að
vænta tilkynningar þann dag. Að
öðru leyti gæti hann ekki talað efn-
islega um málið.
Laust fé sem deCODE ræður yfir
dugir ekki lengur en út þetta ár til
að standa undir rekstri félagsins.
Því þarf fljótt að finna lausn.
bjorgvin@mbl.is
Óljós staða deCODE
Morgunblaðið/Sverrir
Mótvindur Kári Stefánsson, forstjóri deCODE, vinnur nú að því í samvinnu
við erlent ráðgjafarfyrirtæki að endurfjármagna félagið.
Enn hefur ekki tekist að bæta
lausafjárstöðu deCODE
!"#
!!"
$ %
%
.
@ %
. #( %
'" #( %
1A %
-
1 (
6 )
B@ #( %
,( ' %
5 %
C*D/
'!+ 0+
%
E %
& '
. @ . F$
. @ C CG0
1 '
0H$ '
/2% %
$ )* !(+
,
I $ . I
-' # %
-( ! %
-
./
#
! (
! ,( 9
:;9999
;?;: ;?
?8=:>
8;<99=?
:=9=7<?
> 7<7>:
=>7>999
:K;?
9K?9
>K97
K:
:K 9
;=K<9
7;K99
;=K99
==9K99
:?K99
=79K99
<K>9
:K>>
;=K79
78K99
=78K99
:8K99
;99K99
9K99
0"
! (
?
>:
>
:
:
?
7
9
&
! !
>9 >998
> >998
> >998
: 9>998
> >998
>9 >998
> >998
: 9>998
: 9>998
> >998
; >998
> >998
>998
> >998
>9 >998
> >998
; >998
;:>998
.
.
.
.
.
.
D5L D5L
M
M
D5L 3 'L
M
M
&F N
/
M
M
0 &.L
M
M
D5L 4 ?
D5L )<9
M
M
ÞETTA HELST ...
● „Til stendur að
viðskiptabank-
arnir taki sína eig-
in gjaldeyrisreikn-
inga í notkun hjá
JP Morgan á allra
næstu dögum,
sem þýðir að
stutt er í að þeir
geti sinnt erlendri
greiðslumiðlun án
aðkomu Seðlabankans. Auk þess er
líklegt að krónunni verði fleytt innan
skamms, en þó munu áfram verða
einhverjar skorður á útstreymi fjár-
magns, a.m.k. til að byrja með. Í öllu
falli er ljóst að nú styttist í að ásætt-
anlegt ástand skapist á gjaldeyr-
ismarkaði,“ segir í fréttabréfi Við-
skiptaráðs sem sent var út í gær.
Eftir að bankarnir féllu stöðvuðust
greiðsluleiðir til útlanda í gegnum
þá. Undanfarið hafa nýju ríkisbank-
arnir fengið ný auðkenni til að setja á
svokallaðar Swift-greiðslur milli
landa. Um leið og bankar fara í þrot
er sjálfkrafa lokað öllum leiðum í
gegnum Swift. Því hefur það bara
verið á færi Seðlabanka Íslands að
færa fé á milli landa auk Sparisjóða-
bankans.
„Staðan á gjaldeyrismarkaði hefur
skánað nokkuð undanfarið og geng-
ur greiðslumiðlun nú betur fyrir sig
en áður. Temprun gjaldeyrisútflæðis
er samt sem áður enn við lýði og því
eru ennþá takmarkanir á gjaldeyr-
isviðskiptum,“ segir í fréttabréfi Við-
skiptaráðs.
bjorgvin@mbl.is
Bankar geti fært fé
Finnur Oddsson
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
SJÓVÁ átti fjárfestingareignir að andvirði 49 millj-
arðar króna samkvæmt ársreikningi félagsins 2007,
sem Morgunblaðið hefur undir höndum. Þessar
eignir eru samkvæmt upplýsingum Sjóvár erlendar
fasteignir sem Milestone, eigandi Sjóvár, hefur að
hluta lagt inn í Sjóvá til að jafna út viðskiptaskuld.
Aðrar eignir sem heyra undir þennan lið hefur
Sjóvá keypt af Askar Capital, sem er umsjónaraðili
fasteigna Sjóvár. Milestone hefur síðan séð um
þessar fjárfestingar í eignasafni Sjóvár.
Milestone er kjölfestufjárfestir í Askar Capital
og eigandi Sjóvár.
Skuldir í erlendri mynt
Vaxtaberandi skuldir Sjóvár voru rúmir 40 millj-
arðar króna um síðustu áramót samkvæmt árs-
reikningnum. Mikill meirihluti þeirra skulda var í
erlendri mynt. Þar sem gengisvísitala íslensku
krónunnar hefur tvöfaldast það sem af er þessu ári
hefur fjármagnskostnaður vegna erlendra skuldra
Sjóvár hækkað mikið.
Stærsti einstaki eignarliðurinn í ársreikningi
Sjóvár kallast „Investment properties“, eða fjár-
festingareignir, og er bókfært virði hans rúmir 49
milljarðar króna. Liðurinn hefur vaxið um 19 millj-
arða frá því í árslok 2006 þegar þessar fjárfesting-
areignir námu 30 milljörðum króna.
Þessi eignarliður var því hærri en vaxtaberandi
skuldir um síðustu áramót. Samkvæmt upplýsing-
um frá Sjóvá er að langmestu leyti um að ræða fast-
eignir í Belgíu, Þýskalandi og Frakklandi.
Tilheyra dótturfélagi
Fjárfestingareignirnar og vaxtaberandi skuldirn-
ar tilheyra dótturfélagi Sjóvár sem heitir SJ fast-
eignir. Þar sem SJ fasteignir eru dótturfélag Sjóvár
færast eignir og skuldir fyrirtækisins inn á sam-
stæðureikning Sjóvár. Samkvæmt upplýsingum frá
Sjóvá er hrein eign félagsins, eignir að frádregnum
skuldum, í SJ fasteignum bókfærð á um fimm millj-
arða króna í níu mánaða uppgjöri Sjóvár.
Eigið fé jákvætt
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvár, segir að þær er-
lendu fasteignir sem félagið á hafi hækkað til móts
við skuldirnar og því sé eigið fé Sjóvár jákvætt þó að
skuldir hækki.
„Eignirnar eru líka í erlendum gjaldmiðlum og
hækka því eins og lánin. Þær eru með gott tekju-
flæði á bak við sig. En áhætta okkar vegna þessa
liðar nemur einungis eigin fé og það eru ekki nema
um fimm milljarðar króna.“ Þór segir að miðað við
níu mánaða uppgjör ársins í ár, sem sé þó með var-
úðarniðurfærslum á eignum, sé eiginfjárstaða fé-
lagsins góð. „Við teljum okkur eiga ágætis eignir á
móti tjónaskuld félagsins. Við erum með góðan und-
irliggjandi vátryggingarekstur sem er með gott
jafnvægi milli tjóna og iðgjalda. Það á að vera
tryggt að hér séu eignir fyrir tjónaskuld okkar.“
Bótasjóður Sjóvár var samkvæmt ársreikningn-
um rúmir 23 milljarðar króna um áramót. Hann
samanstendur af tjónaskuld félagsins og fyrirfram-
greiddum iðgjöldum. Samkvæmt lögum er vá-
tryggingafélagi heimilt að nota allt að 40 prósent af
tjónaskuld í fasteignir.
Skráðu félögin færð
Sjóvá átti um síðustu áramót um helmingshlut í
tveimur fjárfestingarfélögum sem heita Þáttur ehf.
og Máttur ehf. Þáttur var eignarhaldsfélag um 5,59
prósenta hlut í Glitni banka áður en hann féll og
Máttur átti í ýmsum skráðum og óskráðum inn-
lendum félögum. Þór segir að þessar eignir hafi
verið færðar yfir til Milestone á þessu ári og því hafi
Sjóvá ekki tekið á sig áfall vegna þeirra þegar
bankarnir hrundu.
Milestone lagði til eignir
Sjóvá átti miklar fjárfestingareignir um síðustu áramót Milestone lagði hluta
þeirra inn í Sjóvá til að jafna út viðskiptaskuld Askar Capital sá um eignakaup
Í HNOTSKURN
» Eigið fé Sjóvár var 10 milljarðar krónaum síðustu áramót.
»Sjóvá skuldaði 40 milljarða krónavegna lánveitinga á þeim tíma. Þorri
skuldanna var í erlendum gjaldmiðlum.
» Stærstu einstöku eignir Sjóvár voru er-lendar fasteignir sem bókfærðar voru
að virði 49 milljarðar króna. Þær eru meðal
annars í Þýskalandi, Frakklandi og Belgíu.