Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.11.2008, Blaðsíða 45
Messur 45Á MORGUN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008 á sínum stað. Guðsþjónustunni verður útvarpað á ríkisútvarpinu. FÆREYSKA sjómannaheimilið | Möte kl. 17 á Sjómansheiminum. Eftir mötið verða kaffiveitingar. GRAFARHOLTSSÓKN | Messa í Þórð- arsveig 3 kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, organisti Hrönn Helgadóttir, kirkjukór Grafarholtssóknar syngur. Kaffi á eftir. Kirkjuskóli í Ingunnarskóla í dag, laugardaginn 22. nóv. kl. 11, umsjá Laufey Brá. GRAFARVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason, kór Grafarvogs- kirkju syngur, organisti Arnhildur Val- garðsdóttir. Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Guðrún Karlsdóttir, umsjón Hjörtur og Rúna, undirleikari er Stefán Birkisson. Borgarholtsskóli Messa kl. 11. Sr. Lena Rós Matthísadóttir, kór Vox populi, org- anisti er Guðlaugur Viktorsson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma, umsjón: Díana og Kristbjörg. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarf- inu. Messa kl. 11. Altarisganga og Sam- skot til Hjálparstarf kirkjunnar. Messu- hópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju leiðir söng, organisti Árni Arinbjarnarson og prestur er sr. Ólafur Jóhannsson. Kaffi á eftir. Tónleikar kirkjukórs Grens- áskirkju verða á sunnudag kl. 17. Stjórn- andi, orgel- og píanóleikari er Árni Ar- inbjarnarson. Kórinn flytur litla messu (Misse Brevis) í C dúr eftir Charles Gou- nod með undirleik á orgel og létta trúar- lega söngva eftir ýmsa höfunda. Ein- söngvarar eru úr röðum kórfélaga. Aðgangur er ókeypis. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12. Hversdagsmessa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18.10. GRINDAVÍKURKIRKJA | Messa kl. 14. Kvenfélag Grindavíkur verður 85 ára og af því tilefni munu kvenfélagskonur taka þátt í messunni. Margrét Gunnarsdóttir djákni predika. Eftir messu verða nokkr- ar félagskonur heiðraðar. Kvenfélagið býður upp á hátíðarkaffi í safnaðr- arheimili Grindavíkurkirkju. Sunnudaga- skóli kl. 11. Sr. Elínborg Gísladóttir GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. María Ágústs- dóttir messar, einsöngur Ari Gústafsson og organisti er Kjartan Ólafsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur Þórhallur Heim- isson, ræðuefni: „Ábyrgð og réttlæti“. Guðmundur Sigurðsson kantor leikur á orgel og Barbörukórinn syngur. Barn bor- ið til skírnar. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimilinu. Gregiorsk morgunmessa miðvikudag kl. 8. Prestur Þórhallur Heimisson. Safnað fyrir Mæðrastyrksnefnd. Morgunverður eftir stundina. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum, organisti Björn Steinar Sólbergsson og forsöngv- ari Margrét Sigurðardóttir. Barnastarfið í umsjá Rósu Árnadóttur. HÁTEIGSKIRKJA | Barnaguðsþjónusta og messa kl. 11. Erla Guðrún og Páll Ágúst sjá um barnaguðsþjónustuna, org- anisti Douglas A. Brotchie, prestur Tóm- as Sveinsson. Léttur hádegisverður eftir messu. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðsþjón- usta kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjón- AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan í Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag kl. 11, í Ingólfsstræti 19, hefst með biblíufræðslu fyrir börn, ung- linga og fullorðna. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12 með sérstöku sniði vegna org- elvígslu, Björgvin Snorrason prédikar. Tónlistar- og vígsluhátíð kl. 16, þar sem nýtt orgel verður vígt. Organistar spila verk af ýmsum toga og kór kirkjunnar flyt- ur Te Deum eftir Jón Þórarinsson undir stjórn Garðars Cortes. Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag kl. 10.30, á Brekastíg 17. Boðið verður upp á biblíu- fræðslu fyrir börn og fullorðna. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma á Eyravegi 67, Selfossi, í dag laugardag kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna. Guðsþjónusta kl. 10.45. Birgir Óskarsson prédikar. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Engin samkoma í dag. Sameiginleg guðsþjón- usta er með Aðventkirkjunni í Reykjavík. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Sólveig Halla Kristjánsdóttir. Fé- lagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, org- anisti er Petra Björk Pálsdóttir. Sunnu- dagaskóli í Safnaðarheimilinu kl. 11. Umsjón Jóna Lovísa, Guðmundur og Ingi- björg. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir þjónar fyrir altari og prédikar, kirkjukórinn leiðir almennan safnaðarsöng undir stjórn Krisztine K. Szklenár. Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðarheimili kirkjunnar. Tónleikar Gospelkórs Árbæjarkirkju kl. 20 sem jafnframt er upphaf afmælisvik- unnar. ÁSKIRKJA | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Elíasar og Hildar Bjargar. Messa kl. 14. Sr. Jón Helgi Þórarinsson, sókn- arprestur í Langholtskirkju, prédikar, kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragn- arsson. Kökubasar og flóamarkaður Safnaðarfélags Ásprestakalls hefst í safnaðarheimilinu að messu lokinni. Ým- islegt á boðstólum og rennur allur ágóði til gluggasjóðs Áskirkju. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í sal Álftanesskóla. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson og sunnudagaskólaleiðtogar leiða stundina. Biblíufræðsla, söngur og brúðuleikhús. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Börnin taka þátt í að leika söguna um ósýnilega vin- inn. Ása Björk héraðsprestur og Rann- veig Iðunn leiða stundina, en Palli org- anisti leikur. BREIÐHOLTSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Prestur sr. Bryndís Malla Elídóttir, yngri barnakór syngur og TTT 10-12 ára börn sýna helgileik. Hressing í safnaðarheimili á eftir. Tómasarmessa kl. 20. Orð Guðs, fyrirbæn, máltíð Drott- ins og Herbert Guðmundsson syngur. Kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Foreldrar eru hvattir til þátttöku með börnunum. Hljómsveit ungmenna leikur undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Dagur íslenskrar tungu. Kór Bú- staðakirkju syngur, organisti Renata Iv- an, prestur sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir. Kaffi eftir messu. Guðspjallið fjallar um endurkomu Mannsonarins. DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11. Prest- ur sr. Magnús Björn Björnsson, organisti Bjarni Þór Jónatansson, kór Digra- neskirkju A hópur. Sunnudagaskóli í kap- ellu á sama tíma. Veitingar í safnaðasal eftir messu. Sjá digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Anna Sigríður Pálsdóttir prédikar, Dómkórinn syngur, organisti er Örn Magnússon. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á messu stendur. Að lokinn messu er kaffi í safnaðarheimilinu. FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Þórhildur Ólafs, organisti Ásta Haraldsdóttir, kór Fella- og Hóla- kirkju leiðir almennan safnaðarsöng und- ir stjórn Ásdísar Arnalds. Sunnudaga- skóli á sama tíma í umsjá Sigríðar R. Tryggvadóttur. Meðhjálpari er Kristín Ing- ólfsdóttir. Sjá fellaogholakirkja.is FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudaga- skóli kl. 11. Æðruleysismessa kl. 20. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn samkoma kl. 14. Helga R. Ármannsdóttir prédikar, lofgjörð, barna- starf og brauðsbrotning. Á eftir er sam- vera og verslun kirkjunnar opin. Næsta sunnudag verður árlegur basar kirkj- unnar, á boðstólum verða kökur og ýmsir munir. Einnig verður happdrætti með vinningum á öllum miðum, veitingasala og lifandi tónlist. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta kl. 11. Ath. Breyttan tíma. Fjallað verður um stöðu Fríkirkjunnar og hennar fram- tíðarsýn í íslensku samfélag. Anna Sig- ríður Helgadóttir og Carl Möller leiða tón- list ásamt Fríkirkjukórnum. Barnastarfið ar. Barnakór úr Digranesskóla kemur í heimsókn, stjórnandi Þórdís Sævars- dóttir. Félagar úr kór Hjallakirkju leiða safnaðarsöng, organisti Jón Ólafur Sig- urðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Sjá hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN: Hjálpræðisherinn Akureyri | Samkoma kl. 11. Gestir frá Noregi tala og stjórna. Ath. breyttan tíma. Hjálpræðisherinn Reykjanesbær | Lof- gjörðarsamkoma fyrir alla fjölskylduna kl. 17. Anna og Daníel Óskarsson syngja og tala. Hjálpræðisherinn Reykjavík | Samkoma kl. 20. Umsjón hefur Harold Reinholdt- sen, gestur kvöldsins er brigader Ingi- björg (Imma) Jónsdóttir. Heim- ilasamband fyrir konur mánudag kl. 15. Bæn þriðjudag kl. 20. Fræðsla um Hjálp- ræðisherinn miðvikudag kl. 19. Hús- tónleikar fimmtudag kl. 20 með 4 manna hljómsveit frá Noregi. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Al- þjóðakirkjan kl. 13. Ræðumaður er Daní- el Steingrímsson. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður er Michael Fitzger- ald, lofgjörð. Barnastarf fyrir krakka frá 1 árs aldri. Verslunin Jata er opin eftir samkomuna. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl. 11. Fræðsla fyrir fullorðna á sama tíma. Ólafur H. Knútsson kennir. Samkoma kl. 20, lofgjörð, vitnisburður og fyrirbænir. Friðrik Schram predikar. Sjá kristur.is KAÞÓLSKA KIRKJAN: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru Reyðarf. | Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mánuði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laug- ardaga er messa á ensku kl. 18.30. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku- daga kl. 20. KEFLAVÍKURKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr kór Keflavíkurkirkju syngja, organisti Arnór Vilbergsson og prestur er sr. Sigfús B. Ingvason. KÓPAVOGSKIRKJA | Barnastarf kl. 11 í safnaðarheimilinu Borgum. Umsjón Sig- ríður Stefánsdóttir. Guðsþjónusta kl. 11, altarisganga. Prestur sr. Ægir Fr. Sig- urgeirsson, félagar úr kór Kópavogskirju syngja og leiða safnaðarsöng, organisti og kórstjóri Lenka Mátévoá kantor kirkj- unnar, Kaffi eftir messu. Landspítali | Guðsþjónusta í Fossvogi kl. 10.30 á stigapalli á 4. hæð. Prestur Gunnar Rúnar Matthíasson, organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Tekið við framlögum til Hjálparstarfs kirkjunnar. Magnús Hallur Jónsson syngur einsöng, prestur er sr. Jón Helgi Þórarinsson, organisti Jón Stef- ánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en fer síðanmeð Rut, Steinunni og Aroni í safnaðarheimilið. Kaffi eftir stundina. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sóknarprestur þjónar ásamt meðhjálpara, organista og kór kirkjunnar. Fulltrúar lesarahóps og ferm- ingarbarna taka þátt. Sunnudagaskólinn heldur sínu striki og messukaffið á eftir. Guðsþjónusta kl. 13, í sal Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Guðrún K. Þórs- dóttir djákni þjónar ásamt sóknarpresti, organista og hópi sjálfboðaliða. LINDASÓKN í Kópavogi | Guðsþjónusta og sunnudagaskóli í Salaskóla kl. 11. Þorvaldur Halldórsson tónlistarmaður leiðir safnaðarsöng. Sr. Guðni Már Harð- arson þjónar. Veitingar á eftir. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Kór Neskirkju syngur og leiðir safn- aðarsöng, organisti Steingrímur Þórhalls- son, sr. Dalla Þórðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Toshiki Toma. Messuhópur aðstoðar. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í safnaðarheim- ilið. Umsjón María, Sunna Dóra, Ari, Andrea og Alexandra. Samfélag á Torginu eftir messu. ÓHÁÐI söfnuðurinn | Ritmisk Guðsþjón- usta og barnastarf kl. 14. Safn- aðarfélögum og gestum þeirra er boðið til latin og djassveislu. Kór og kórstjóra til aðstoðar eru bassaleikarinn Ingólfur og trymbillinn Jón Óskar. Altarisganga. Meðhjálpari er Ragnar Kristjánsson. Barnastarfið er í höndum Hildar og Elías- ar og í móttökunni er Valur Sigurbergs- son. Um maulið sjá þeir Haraldur og Guðni. www.ohadisofnudurinn.is SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. Ræðumaður er Ragnar Gunnarsson. Lofgjörð, fyrirbæn og barnastarf. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar, kirkjukórinn leiðir sönginn, organisti Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11, altarisganga. Kór Menntaskólans í Reykjavík syngur undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar. Pavol Chekan syngur ein- söng, organisti er Friðrik Vignir Stef- ánsson. Bjarki Harðarson og Hildigunnur Hlíðar lesa ritningartexta og Bjarni Dagur Jónsson les inn- og útgöngubæn. Sunnu- dagaskólinn er á sama tíma og æsku- lýðsfélagið kl. 20. Prestur er Hans Mark- ús Hafsteinsson. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari, félagar úr kór Vídalínskirkju leiða söng undir stjórn Jóhanns Baldvins- sonar organista. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Ármanns H. Gunnarssonar djákna og leiðtoga sunnu- dagaskólans. Sýningu á verkum Þuríðar Sigurðardóttur myndlistamanns er í kirkjuskipinu. Hressing í safnaðarheim- ilinu eftir messu. Sjá gardasokn.is. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Guðs- þjónusta kl. 11. Frumfluttir verða nýir sálmar eftir Sigurð Flosason og Að- alstein Ásberg Sigurðsson. Kór Víði- staðasóknar syngur undir stjórn Arngerð- ar Maríu Árnadóttur, Sigurður Flosason leikur á saxófón. Sunnudagaskólinn kl. 11, í loftsal kirkjunnar. VÍKURPRESTAKALL í Mýrdal | Samvera Kirkjuskólans í Mýrdal er alla laugardaga kl. 11.15 í grunnskóla Mýrdalshrepps. Morgunblaðið/Ómar Ólafsvíkurkirkja. Orð dagsins: Þegar mannssonurinn kemur. (Matt. 25) starfs, urðum við vinir eftir þá sam- vinnu og fylgdust hvor með öðrum eftir það. Konurnar okkar störfuðu saman um lengri tíma og tengdust einnig vináttuböndum. Sambandið þéttist, fylgst var með börnum vaxa upp og þegar Helga og Úlfur dvöldust síðan langdvölum í útlöndum voru kær- komin tækifæri notuð til að hittast og alltaf nutum við samverunnar. Sem góður félagshyggjumaður bar Úlfur hag þýðenda fyrir brjósti og hann átti ekki lítinn þátt í að koma á samningum milli RSÍ og notenda þýddra texta. Við vorum báðir í samn- inganefndinni ásamt öðrum og vann hún þarft verk sem þótti afrek, það heyrðist að viðkomandi á Norður- löndum öfunduðu okkur! Úlfur horfði vökulum augum og björtum svip en dálítið háðskur á mannlífið í kringum sig og var mér ljúfur félagi á leiðinni. Við, ég og kona mín, þökkum honum samfylgdina. Við munum sakna hans. Við sendum Helgu, börnunum og allri fjölskyldunni okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þorvarður og Hilde Helgason. Úlfur Hjörvar var flókið sambland af heimsmanni og rótgrónum Reyk- víkingi, fæddur í Fjalakettinum við Aðalstræti, alinn upp í foreldrahúsum við Suðurgötu en menntaðist víða um lönd. Hann var málamaður, stílisti með afbrigðum fær, bókamaður fá- gætur, bókfróðari en flestir og fór um antikvaríöt evrópskra stórborga eins og köttur um búr. Úlfur var einstaklega vinfastur maður; vinur vina sinna á þann veg að þeir sem hann hafði bundist viku aldr- ei úr huga hans, hvort sem þeir um- gengust hann tíðum eða voru horfnir úr heimi. Alfreð heitinn Flóki er kannski besta dæmið um mann úr því persónugalleríi sem jafnan var í kringum Úlfinn. Úlfur var í senn maður djúprar al- vöru og leiftrandi kímni. Hann var maður andstæðna, bundinn liðinni tíð en kafaði jafnframt í nútímann. Hann var sérfróður um fæðingarborg sína en hugurinn leitaði stöðugt heim þótt hann væri langdvölum í burtu. Kaupmannahöfn var kannski ekki síður hans staður. Höfuðborg Dana varð með einhverjum hætti íslensk þegar maður gekk um hana með hon- um. Þau Helga bjuggu um sex ára skeið í Þórshöfn í Færeyjum þegar hún veitti Norðurlandahúsinu forstöðu. Þar naut hann sín vel, lærði færeysku og eignaðist vini úr öllum samfélags- hópum. Það var á við langt námskeið í persónufróðleik að ganga með Úlfi um Þórshöfn, Reykjavík og Kaup- mannahöfn. Hann tengdi saman menn, málefni og tíma af mikilli kúnst. Hver stund var eftirminnileg enda Úlfur fróðleikssjór, kunni þús- und sögur og skrítlur. Hann var snill- ingur samræðunnar og hafði lag á að koma manni á einhvers konar flug. Úlfur var í senn miðpunktur um- hverfis síns og á leið burt frá því í leit að einhverju sem hann varð að skoða. Stundum fannst manni hann ævin- lega vera á förum, einkum fyrr á ár- um, en samt var hann rótfastur þar sem hann bjó, rótfastur við hlið Helgu sinnar. Hann var eins og einfari sem þreifst ekki án félagsskapar. Kunningsskapur okkar breyttist í vináttu á síðustu árum. Hann hafði samband við mig frá Færeyjum og gerði mér tilboð sem ég gat ekki hafn- að: að leyfa sér að sýna mér Fær- eyjar. Það urðu ógleymanlegir dagar. Úlfur lauk upp fyrir mér menningu og sögu Færeyja, kynnti mig fyrir merku fólki úr pólitík og listum. Fyrir ekki svo löngu heimsóttum við Hildur þau Helgu á Vester- brogade í Kaupmannahöfn. Þótt Úlfurinn væri þá orðinn veikur iðaði allt í kringum hann af skondnum sög- um. Við trúðum því ekki þá að hann væri senn á förum og trúum því ekki enn. Hann var hreinræktað afsprengi gamallar menningar – og fer þess vegna aldrei, heldur gengur í þann flokk eða persónugallerí sem hefur jafnan umlukið hann. Ætli þeir Flóki sitji ekki á skrafi á þessari stundu? Við Hildur sendum Helgu og börn- unum samúðarkveðjur. Gunnar Gunnarsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.