Morgunblaðið - 22.11.2008, Side 49
Krossgáta 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
LÁRÉTT
3. Höfuðborg Tsjad. (8)
7. Lítil sneið af hálfleiðara sem í eru samtengdir rafrás-
arbútar. (10)
10. Umhverfisverndarsinni. (8)
11. ________ verða þegar mikið vatn kemst að goskviku í
gosrásinni. Gosefnin eru að miklu eða öllu leyti
gjóska (8)
12. Regína ___Óskarsdóttir, söngkona (3)
13. Líffæri í kviðar- og brjóstholi. (7)
14. Botn í vatnsfalli. (6)
16. Hart kalkkennt efni sem kóraldýr mynda og hlaða
utan um sig. (6)
19. ________ er mæling á því hvað blóð sekkur um
marga mm á einni klukkustund, gefur vísbendingu
um bólgur. (8)
20. Þrír dagar, miðvikudagur, föstudagur og laug-
ardagur, sem koma fjórum sinnum á ári, á eftir ösku-
degi, á eftir hvítasunnudegi, á eftir krossmessu og á
eftir Lúcíumessu. (10)
23. Ábyrgðarmaður víxils. (9)
26. Daglegt heiti natríumkarbónats. (9)
27. Efsta söngrödd konu. (6)
28. Hljóðfæri hannað árið 1835 af prússneska hljóm-
sveitarstjóranum Wieprecht og hljóðfærasmiðnum
Moritz í Berlín. (4)
30. Krydd unnið úr beiskri plöntu af engifersætt sem vex
á Indlandi og víðar og gefur gulan lit. (8)
33. Hættulegur smitsjúkdómur sem berst með sýklum í
vatn og matvæli. (10)
35. Tíarma lindýr af ættbálkinum Decapoda sem lifir í
sjó og sprautar bleki. (11)
37. Úfið hraun sem verður til í flæðigosum með basískri
hraunkviku. (9)
39. Ítalskt tónskáld, sem var uppi á endurreisnartím-
anum, afkastamikið messu- og mótettutónskáld. (10)
40. Kosning þar sem atkvæðahlutfall hvers lista ræður
fulltrúatölu hans. (16)
LÓÐRÉTT
1. Lýsing á holdsveikum manni. (7)
2. Japönsk eldunaraðferð þar sem matur er steiktur
eða grillaður í sætri sojasósu. (8)
4. Líffæri í dýrafrumum sem sjá um að aðgreina litn-
inga við kjarnaskiptingu. (9)
5. Frumuskipting þar sem tvílitna fruma skiptir sér
tvisvar og útkoman verður fjórar einlitna frumur
sem hafa hver um sig eitt litningapar (6)
6. Silfurhvítur málmur sem að tekur á sig mikinn gljáa,
mikið notaður í mynt og til málmhúðunar. (6)
8. Form. (5)
9. Brúða Geppetto í þekktri sögu Carlo Collodi. (4)
15. Lágfættur en sterkbyggður hundur, með stutt trýni,
og húðfellingar á andliti, og á ættir að rekja til Eng-
lands. (9)
17. Bein með glerungshúð í munni. (4)
18. Fótabúnaður til að renna sér á ís (et.). (6)
21. Höfuðstaður Líberíu, nefndur eftir James Monroe,
Bandaríkjaforseta. (8)
22. Háskólakennari sem er ekki jafn háttsettur prófess-
or en hærra settur en lektor. (6)
24. „En nú varir trú, von og ________, þetta þrennt …“
(Fyrra Korintubréf 13:13) (9)
25. Mjótt og flatt bein sem sjö efstu rifbeinin eru tengd
við. (10)
29. Búnaður settur á höfuð hesti til að stjórna honum. (6)
31. Hlutfallið á milli aðlægrar skammhliðar og langhliðar
í rétthyrndum þríhyrningi. (7)
32. Afrískur mannapi með lágt enni og gisinn feld. (8)
33. Ferhyrningur þar sem tvær mótlægar hliðar eru
samsíða. (7)
34. Efri-______ var nafn Búrkína Fasó til 4. ágúst 1984.
(5)
36. Brauð notað í altarisgöngu. (6)
38. Knapaknattleikur. (4)
ÍSLENSKA karlasveitin á Ólymp-
íumótinu í Dresden siglir engan beiti-
vind þessa dagana og er þegar þetta
er ritað í 49. sæti að loknum sjö um-
ferðum af ellefu með 8 stig. Mögu-
leikar á að ná einu af tíu efstu sæt-
unum, sem þótti hógvært markmið
hér í eina tíð, virðast ekki vera fyrir
hendi. Á Ólympíumótinu fylgjast
Norðurlandaþjóðirnar grannt hver
með annarri. Í þeirri óopinberu
keppni eru okkar menn nú í 4. sæti á
undan Dönum og Færeyingum.
Miklar breytingar hafa verið gerð-
ar á keppnisfyrirkomulagi frá Ólymp-
íumótum síðustu 30 ára. Stig eru látin
gilda. Armenar sem sigruðu í Torínó
fyrir tveim árum eru nú með flest stig
og einnig flesta vinninga:
1. Armenía 13 stig. 2. Þýskaland 12
stig 3. Ísrael 12 stig 4. Frakkland 12
stig 5. Rússland 11 stig 6. Úkraína 1
stig 7. Kína 11 stig 8. Víetnam 11 stig
9. Bandaríkin 11 stig 10. Aserbaid-
sjan 11 stig.
Íslenska karlaliðið náði sér ágæt-
lega á strik eftir naumt tap í fyrstu
umferð og vann í næstu umferðum
Jemen, Angóla og Brasilíu og gerði
jafntefli við Moldavíu. Að loknum frí-
degi kom svo tækifæri til að skjótast
upp á eitt af efstu borðunum, viður-
eign við Víetnam sem við unnum
örugglega í Torínó 2006. Tafl-
mennska Hannesar, Henriks Daniel-
sen og Þrastar var hinsvegar skelfi-
lega léleg miðað við mikilvægi
þessarar viðureignar sem tapaðist
1:3.
Samantekt um frammistöðu
manna gefur til kynna að einungis
Hannes og Héðinn tefli á eðlilegum
styrkleika en Stefán hefur verið að
sækja í sig veðrið. Á fimmtudaginn
varð jafntefli gegn Kólumbíu 2:2 en
þar varð hálfgert slys er Þröstur Þór-
hallsson gleymdi klukkunni og féll á
tíma í jafnteflisstöðu. Í gær átti liðið
að tefla við sveit frá Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum. Þrátt fyrir allt
er of snemmt að afskrifa íslenska lið-
ið, á Ólympíumótinu í Bled 2002 vann
íslenska liðið fimm síðustu viðureign-
ir sínar þ.á m. sterkar skákþjóðir á
borð við Indverja og Rúmena og varð
efst Norðurlandaþjóða. En þá var
Gunnar Eyjólfsson með í för.
Ekki verða gerðar sömu kröfur til
kvennaliðsins sem er nú í 67. sæti af
114 þátttökuþjóðum með 7 stig. Sú
frammistaða gæti batnað á loka-
sprettinum en sveitin hefur verið
fremur ófarsæl í ýmsum viðureignum
sem sumpart skrifast á reikning
reynsluleysis. Þannig hafa nýliðarnir
Hallgerður Helga og Elsa María báð-
ar misst gjörunnar stöður í tap.
Lenka Ptacnikova hefur unnið fjórar
skákir í röð sem veit á gott.
Kínverjar eru efstir í kvenna-
flokknum og kemur ekki á óvart.
Rússar eru í 2. sæti, Úkraína í 3. sæti,
þá Bandaríkjamenn og Ungverjar
eru í 5. sæti.
Hannes Hlífar Stefánsson hefur
margoft staðið sig frábærlega á Ól-
ympíumótum og í viðureigninni gegn
Moldóvíu kom hann sterkur inn þeg-
ar hann lagði hinn öfluga stórmeist-
ara Bologan með svörtu. Hannes
byggði upp trausta stöðu en þá
skyndilega lagði Bologan allt undir
með óvæntri peðsfórn 23. f5. Vandi
Bologans í framhaldinu var sá að
hann var með ómögulega kóngsstöðu
sem að lokum varð honum að falli.
Alls kyns pyttir voru við hvert fótmál,
t.d. 42. Df2 Hh3+! Hannes fann öfl-
ugan leik, 41. .. g5 og Bologan stefndi
í drottningaruppskipti með 44. Dg3
en fékk þá á sig 44. … Ha2, 45. Dxh2
er þá svarað með 45. … Hxc2+! 46.
Kg3 Hxc3+ og vinnur. Kóngurinn
hraktist síðan út á mitt borð og átti
þaðan ekki afturkvæmt.
Ólympíumótið; 4. umferð:
Victor Bologan – Hannes Hlífar
Stefánsson
Ítalskur leikur
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Bc5 4. c3
Rf6 5. d3 a6 6. O-O Ba7 7. Bb3 d6 8.
He1 O-O 9. h3 h6 10. Rbd2 He8 11.
Rf1 Be6 12. Bc2 d5 13. exd5 Bxd5 14.
Rg3 Bc5 15. b4 Bf8 16. a4 b5 17. Bd2
Hb8 18. De2 Dd7 19. Rh2 Be6 20. Df3
Bd5 21. Dd1 Be6 22. f4 Bd6 23. f5
Bxf5 24. Rxf5 Dxf5 25. Rg4 Rxg4 26.
hxg4 Dd7 27. He4 Rd8 28. g5 hxg5
29. Bxg5 Be7 30. Be7 Dxe7 31. axb5
axb5 32. d4 Dg5 33. Df3 Hb6 34. Hg4
Dh6 35. He1 Dd2 36. He2 Dc1+ 37.
Kh2 Hh6+ 38. Kg3 Dg1 39. Df5 Re6
40. Hxe5 Kf8 41. Df3 g5 42. De3
Dh2+ 43. Kf2 Ha8 44. Dg3
44. … Ha2 45. He2 Hf6 46. Ke3
Dg1+ 47. Ke4 Df1 48. Ke3 Rf4
- og hvítur gafst upp.
Á brattann að
sækja í Dresden
Morgunblaðið/Gunnar Finnlaugsson
Fjórir sigrar Stefán Kristjánsson hefur staðið fyrir sínu í Dresden.
Helgi Ólafsson | helol@internet.is
SKÁK
Dresden, Þýskalandi
Ólympíuskákmótið
12. – 25. nóvember 2008
, ,magnar upp daginn