Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 52
52 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
MIKIÐ verður um dýrðir í Gerðu-
bergi á morgun, í dagskrá sem
stendur frá kl. 13 til 16.
Tvær myndlistarsýningar verða
opnaðar í húsinu, Ungblind, ljós-
myndasýning Björns Sigurjóns-
sonar af blindum ungmennum, og
Utan-garðs, málverkasýning Hall-
dóru Helgadóttur, en hún málar
jurtir sem vaxa utangarðs.
Um 30 konur kynna bækur sínar
með ýmsum hætti undir yfirskrift-
inni Kellíngabækur, á þremur stöð-
um í húsinu – skáldsögur, ljóðabæk-
ur, ævisögur, barnabækur og
fræðibækur. Meðal kvennanna má
nefna Álfrúnu Gunnlaugsdóttur,
Auði Jónsdóttur, Þórunni Valdi-
marsdóttur og Sigurbjörgu Þrast-
ardóttur.
Góðæri í
Gerðubergi
Sýningar og kellíngabækur
BLÁSARAOKTETT-
INN Hnúkaþeyr býður
upp á franska tónlist á
tónleikum á Kjarvals-
stöðum á morgun kl. 17.
Fljúgandi fimi, sprell-
fjörugir smellir og lit-
ríkar lokkur einkenna
verk tónskáldanna þriggja sem flutt verða á tón-
leikunum. Flutt verða tvö verk fyrir blásara eftir
Jean Françaix, þar sem ólíkur karakter hljóðfær-
anna fær að njóta sín. Þá verður flutt Octanfónía
eftir Eugène Bozza og hinn sívinsæli blásara-
kvintett eftir Jacques Ibert, Trois pièces brèves.
Frítt fyrir yngri en 21, 500 kr. fyrir fullorðna.
Veitingar í boði Alliance Francaise.
Tónlist
Frönsk stemning
hjá Hnúkaþey
Hnúkaþeyr.
TÓNLEIKAR í Krist-
alnum, kammertónleika-
röð Sinfóníuhljómsveitar
Íslands, fara fram í dag í
Þjóðmenningarhúsinu
kl. 17. Það er slagverks-
deild hljómsveitarinnar
sem mundar kjuða sína
að þessu sinni og spilar spennandi tónlist sem
sækir innblástur á framandi slóðir. Leikin verða
verk eftir tvö amerísk tónskáld, Lou Harrison og
Carlos Chavez, sem sækja innblástur sinn í tónlist
indjána Mið- og Suður-ameríku.
Þátttakendur eru þeir Árni Áskelsson, Eggert
Pálsson, Frank Aarnink, Kjartan Guðnason, Pét-
ur Grétarsson og Steef van Oosterhout.
Tónlist
Sinfóníuhljómsveit-
in á Indjánaslóðum
Sinfóníuhljómsveit Íslands.
LISTVINAFÉLAG og
Mótettukór Hallgríms-
kirkju bjóða vinum, gest-
um og gangandi til lista-
stundar kl. 13.30 í dag á
degi heilagrar Sesselju,
verndardýrlings tónlist-
arinnar. Dagskráin er
þríþætt, kynning í tali og tónum á óratóríunni Ce-
cilía eftir Áskel Másson, kynning á nýjum geisla-
diski Mótettukórsins og dagskrá 27. starfsárs
Listvinafélags Hallgrímskirkju. Sýningu Páls á
Húsafelli og Thors Vilhjálmssonar í forkirkju
Hallgrímskirkju, sem staðið hefur síðan í sept-
ember, lýkur í næstu viku.
Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.
Tónlist
Listafagnaður
heilagrar Sesselju
Thor og Páll á Húsafelli.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
KÓRINN Vox Academica hefur 13.
starfsár sitt með flutningi á Carmina
Burana eftir Carl Orff. Tónleikarnir
verða í Grafarvogskirkju klukkan 20 í
kvöld, laugardaginn 22. nóvember.
Hljómsveit Jóns Leifs Camarata flyt-
ur verkið ásamt kórnum og unglinga-
kór Grafarvogskirkju. Einsöngvarar
eru Þóra Einarsdóttir, Þorgeir J.
Andrésson og Alex Ashworth.
Rokkað verk
Stjórnandi og stofnandi Vox Aca-
demica er Hákon Leifsson sem er
hljómsveitarstjóri á tónleikunum
ásamt stjórnanda unglingakórsins
Oddnýju Þorsteinsdóttur.
„Þetta er verk um ástir, vorið og
lífsins gang, það sem öllum er kært
og allir hafa unun af. Það er allt í lagi
að muna eftir því þegar dimmir jafn-
mikið og þessa dagana,“ segir Há-
kon. „Áhersla okkar hefur að mestu
verið á kirkjuleg verk og kórinn hef-
ur flutt mikið af sálumessum, til
dæmis eftir Verdi, Brahms og Moz-
art. Ástæðan er sú að flest meistara-
verk stóru tónskáldanna sem eru
skrifuð fyrir kóra eru kirkjuverk. Nú
fannst okkur kominn tími til að taka
léttara verk og auk þess er fínt að
vera með fjölbreytni. Carmina
Burana er nokkuð rokkað verk og er
þess vegna vinsælt og höfðar til sam-
tíðar okkar þar sem mikið rokk er í
gangi.“
Hákon stofnaði Vox Academica
fyrir þrettán árum en hann stjórnaði
Háskólakórnum í áraraðir. „Sá kór er
þannig að menn vaxa meira og minna
upp úr honum þegar þeir klára há-
skólanám, fara utan eða til starfa og
stofna fjölskyldu og hverfa frá skóla-
lífinu. Ég var þarna með sterkan
kjarna af fólki og ákvað að reyna að
halda hópnum saman og nýta uppeld-
ið í Háskólakórnum til frekara kór-
starfs. Þetta módel virkaði ekki alveg
og inn kom mikið af öðrum kröftum,
meira að segja atvinnuhljóðfæraleik-
arar og tónlistarmenn sem fást við
kennslu og líka mikið af reyndu kór-
fólki héðan og þaðan. Þetta er kröft-
ugur hópur sem er gaman að vinna
með.“
Vox Academica flytur Carmina Burana
Verk um ástir
og lífsins gang
Morgunblaðið/RAX
Hákon Leifsson „Carmina Burana er nokkuð rokkað verk og er þess vegna
vinsælt og höfðar til samtíðar okkar þar sem mikið rokk er í gangi.“
Í HNOTSKURN
»Vox Academica er bland-aður 60 manna kór.
»Markmið kórsins er aðvinna stærri verk tónbók-
menntanna með íslenskum
tónlistarmönnum og reyndum
kórsöngvurum.
»Auk flutnings á CarminaBurana mun Vox Academ-
ica vera með jólatónleika í
desember og á vordögum
verður flutt Elijah eftir Felix
Mendelssohn.
HAMSKIPTIN eftir Franz Kafka
hafa hlotið tilnefningu í Englandi
sem besta alþjóðlega sýning ársins.
Sviðsetningin er samstarfsverkefni
Vesturports og Lyric Hammer-
smith-leikhússins í London. Gísli
Örn Garðarsson leikstýrði sýning-
unni ásamt David Farr. Nick Cave
og Warren Ellis sömdu tónlistina
við verkið og Börkur Jónsson hann-
aði leikmyndina.
Verðlaunin sem Hamskiptin eru
tilnefnd til eru virt og kallast MEN
Awards, en þau eru veitt fyrir
framúrskarandi leiksýningar á
Bretlandi. Að verðlaununum standa
leikhúsið Royal Exchange í Man-
chester og dagblaðið Manchester
Evening News. Hamskiptin hlutu
Grímuna 2008 sem sýning ársins og
fyrir leikmynd. Sýningin hefur ver-
ið sýnd hátt í 150 sinnum víða um
heim með blönduðum hópi ís-
lenskra og enskra leikara.
Kafka Vesturport var tilnefnt fyrir
sýningar Hamskiptanna í Lyric-
Hammersmith-leikhúsinu í London.
Hamskiptin
tilnefnd
Eftir Einar Fal Ingólfsson
efi@mbl.is
ÞETTA er alstærsta sýning sem ég hef sett upp,“ segir
myndlistarmaðurinn Tolli Morthens, sem í raun opnaði
ekki eina sýningu í gær heldur tvær; í Reykjavík Art
Gallery og galleríinu Listamenn, við hliðina. Á báðum
sýningunum verður efnt til uppboðs á einu verki sem
Tolli gefur til styrktar ABC barnahjálp.
Tolli byrjar að segja frá búddamyndunum í Lista-
mönnum, sem kunna að koma einhverjum á óvart. „Þar
er ég að spinna kringum tíbetskar helgimyndir sem kall-
ast thonka,“ segir hann. „Þetta er sama stefið; hringur í
miðjunni og minni hringir út frá honum og svo Búdda í
miðjunni. Ég tek á þessu með norðurevrópskum ab-
strakt-expressjónískum töktum.“
Elsta landslagsmyndin í Reykjavík Art Gallery er frá
2000. „Þetta eru myndir sem ég hef getað haldið hjá mér
í „blessaðri“ útrásinni,“ segir Tolli og hlær.
Mikil orka að sækja í
„Á þessari sýningu birtist tilbeiðsla til landsins, til
náttúrunnar. Þetta viðfangsefni speglar það sem mér
finnst eitthvað það dýrmætasta í mínu lífsviðhorfi: sam-
band manns og náttúru. Rauði þráðurinn í þessum
myndum er birtan.
Í myndefninu þvælist ég vestur á Strandir, inn á há-
lendið og í nafnlausar þúfur, en oftar en ekki koma fyrir
þessi eyðibýli sem mér finnst alveg mögnuð. Þau eru
ótrúleg minnismerki um 20. öldina og um þessa endur-
reisnarkynslóð sem byggði upp Ísland.
Náttúra þessa lands og orkan næra mann. Ég vil ekki
fara á mis við það – þótt mér kynni að vera boðið betra
veraldlegt öryggi annars staðar.
Þetta er auðvitað rómantískt viðhorf, en rómantíkin er
líka „essens“ sem maður þarf að nota. Hún er vanmetinn
kraftur.“
Tolli opnaði tvær sýningar
á um 100 verkum sínum
Rómantíkin er vanmetin
Morgunblaðið/RAX
Tolli „Ég tek á þessu með norðurevrópskum abstrakt-
expressjónískum töktum,“ segir listamaðurinn.
SEINNI hátíðarsýning Kvikmynda-
safns Íslands á kvikmyndinni Fjalla-
Eyvindi, Berg-Ejvind och hans
hustru, eftir leikriti Jóhanns Sig-
urjónssonar, sem Victor Sjöström
leikstýrði árið 1918, verður í Bæj-
arbíói í Hafnarfirði í dag klukkan
16.
Atli Heimir Sveinsson hefur að
beiðni Kvikmyndasafnsins samið
nýja tónlist við myndina sem félagar
úr Kammersveit Hafnarfjarðar
flytja undir stjórn Guðna Franzson-
ar. Þá hafa jafnframt verið sett ný
textaspjöld með íslenskum texta á
myndina, þýdd af Jóni Viðari Jóns-
syni.
„Kvikmyndasafnið á 30 ára af-
mæli á þessu ári og í tilefni af því
vildum við efna til hátíðarsýningar,“
segir Erlendur Sveinsson, safnvörð-
ur og kvikmyndagerðarmaður. „Í
Fjalla-Eyvindi má segja að sé snerti-
punktur Íslands við alheimskvik-
myndasöguna. Þessi mynd hafði
talsverð áhrif á þróun myndmálsins
á þessum tíma; náttúran er komin
inn í dramað og farin að endur-
spegla hugarheim fólksins. Við vit-
um eftir Jóhanni Sigurjónssyni að til
stóð að taka myndina á Íslandi, en
það var ekki hægt vegna heimsstyrj-
aldarinnar fyrri. Hún var því tekin í
mögnuðu umhverfi í Norður-
Lapplandi, sem passar vel við.“
Erlendur segir að undirbúning-
urinn að þessu hátíðarverkefni hafi
staðið yfir í nokkuð langan tíma. Í
framhaldinu verða síðan sýndar aðr-
ar tvær kvikmyndir eftir Sjöström.
„Þetta hefur verið metnaðarfull há-
tíðardagskrá allt árið og við erum
stolt af henni,“ segir Erlendur.
efi@mbl.is
Hátíðarsýning
á Fjalla-Eyvindi
Kammersveit Hafnarfjarðar leikur
tónlist Atla Heimis undir kvikmyndinni