Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„ÞETTA byrjaði sem hugmynd, fyr-
ir 13 árum. Þá lagði ég fram hug-
mynd við Sinfóníuhljómsveit Íslands
og Ulf Adåker um að hann semdi
konsert fyrir mig og hljómsveitina,“
segir Sigurður Flosason, sem nú er
búinn að gefa út plötu með tveimur
einleikskonsertum fyrir saxófón og
hljómsveit þar sem spuninn er.
Taka tvö heppnaðist vel
„Konsertinn eftir Adåker var
fluttur á tónleikum 1996 en það var
ekki mjög farsælt upphaf því stjórn-
andinn hafði ekki eytt miklum tíma í
æfingar. Ríkisútvarpið tók svo verk-
ið upp árið 2003 með frábærum ár-
angri sem ég var mjög ánægður
með. Þá var farið að spá í hvað gæti
verið með á diski, og það endaði með
því að Veigar Margeirsson samdi
konsert fyrir mig og hljómsveitina.“
Ekki tókst Sigurði að fá Útvarpið
til að taka seinni konsertinn upp, en
hann vildi ekki gefast upp, og lagði
því sjálfur út fyrir kostnaði við að
leigja hljómsveitina, hljómsveit-
arstjóra og hljóðmeistara til að
hljóðrita hann í stúdíói.
„Ég tók þann slag. Það er gífur-
lega dýrt en það bað mig enginn að
gera þetta. Verkefnið er því orðið
mjög stórt. Ég er móður eftir alla
þessa vinnu, en fyrst og fremst glað-
ur að hafa komið því í höfn. Það er
stórkostlegt að standa fyrir framan
hljómsveitina og spila og allir hafa
verið jákvæðir og velviljaðir þótt að-
dragandinn hafi verið langur.“
Stefnumót við hljómsveit
Spuni Sigurðar er stór þáttur í
báðum verkunum. „Þetta gengur út
á það að setja minn spuna inn í hið
sinfóníska samhengi. Ég vildi líka að
þetta yrði beint og milliliðalaust mót
mín og hljómsveitarinnar og vildi því
ekki hafa rytmasveit.“
Konsert Ulfs Adåkers er fyrir
strengi, en verk Veigars fyrir full-
skipaða hljómsveit. Hann byggir sitt
verk að hluta á þjóðlögum og stefj-
um eftir sjálfan sig í þjóðleum anda.
„Karakter verkanna er ólíkur, þótt
erfitt sé að festa fingur á það ná-
kvæmlega í hverju það felst.“
Sigurður kveðst ekki hafa und-
irbúið spunann. Hann einsetti sér
líka að nota alla sína þekkingu í tón-
listinni, en ekki að einskorða spun-
ann við djass. „Fyrir spunakaflana
undirbý ég mig best með því að vera
í sjálfur góðu forpmi spila- og spuna-
lega.“ Það er Dimma sem gefur
diskinn út.
Einleikari, hljómsveitarstjóri og tónskáld
Móður, en glaður
Morgunblaðið/RAX
Sigurður Flosason „Það bað mig enginn að gera þetta.“
„Geðveikin ríður ekki við ein-
teyming,“ segir Sigurður
spurður um enn eitt verkefni
sitt. Í messu í Víðistaðakirkju
í fyrramálið, verða frumfluttir
eftir hann þrír sálmar fyrir
blandan kór, við ljóð eftir Að-
alstein Ásberg Sigurðsson. „Í
síðustu ljóðabók hans, Hjarta-
borg, eru nokkur ljóð með
trúarlegum tón. Þau hittu mig
vel fyrir og ég fann þau rata í
fremur klassískan búning. Ég
prófaði að útsetja eitt þeirra
fyrir kór og fannst það mjög
gaman. Í framhaldi réðist ég
á fleiri og það er aldrei að
vita hvar þetta endar,“ segir
Sigurður Flosason, einleikari,
hljómsveitarstjóri og tón-
skáld.
Kórverk
frumflutt
á morgun
„Þessi músík er í kjarna stór-
sveitatónbókmenntanna þetta
er eins og Beethoven og
Brahms fyrir klassíkina,“ segir
Sigurður um tónleika Stór-
sveitar Reykjavíkur á Rosen-
berg kl. 20 á sunnudagskvöld
þar sem leikin verður tónlist
eftir Thad Jones, einn helsta
meirstara big band-tónlistar
síðustu áratuga. Þar stjórnar
Sigurður Stórsveitinni í fyrsta
sinn á heilum tónleikum. „Ég
kann bara ágætlega við mig í
stjórnandahlutverkinu. Annars
er hlutverk stjórnandans í stór-
sveitum fyrst og fremst að æfa
bandið og vera eins konar um-
ferðarstjóri á tónleikunum sjálf-
um.“
Stórsveitin
spilar Thad
Jones
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Brauðristar-
gæðaeftirlit
Framleiðendur bresku Rowlett brauðristanna
hafa aldrei verið sammála því að brauðristar eigi
að vera ódýrar, ónákvæmar og ónýtar alltof
snemma. Þær hafa verið handsmíðaðar í 60 ár
og hvert einasta tæki er prófað áður en það fer
úr húsi. Það hlýtur að vera öfundsvert starf að
sjá um gæðaeftirlitið með öllu þessu ristaða brauði.
25
pr
en
tu
n
Jólin koma ...
... um leið og þessi bók er dregin fram!
Sígildar vísur jóhannesar úr kötlum
um jólasveinana, Grýlu, jólaköttinn
og jólahátíðina.
Ómissandi á aðventunni.