Morgunblaðið - 22.11.2008, Síða 64
LAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 327. DAGUR ÁRSINS 2008
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 250 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SKOÐANIR»
Staksteinar: Saga af klappstýru
Forystugreinar: Sérréttindi afnum-
in| Gott starf í Fjölsmiðjunni
Pistill: Hringekjan sem aldrei hættir
Ljósvakinn: Í eltingaleik
UMRÆÐAN»
Vaxtarsprotarnir leynast víða
Breytum LÍN
Grænir skattar
Dýrmætt forskot fyrir ímynd Íslands
Börn: Jólasögusamkeppnin
Framúrskarandi tök á íslenskri
tungu
Lesbók: Af æði sem rennur á hópa
Fánar í íslenskum mótmælum
BÖRN | LESBÓK»
#4 #4
4' #4 4 '4#
'4 5
&
-6!($
!,$-
7$
$
$!!"!$%)& ! 4
#
4 #4
4
4'
/
82 (
4#
4#
4 #4# 4 9:;;<=>
(?@=;>A7(BCA9
8<A<9<9:;;<=>
9DA(8!8=EA<
A:=(8!8=EA<
(FA(8!8=EA<
(3>((A"!G=<A8>
H<B<A(8?!H@A
(9=
@3=<
7@A7>(3,(>?<;<
Heitast 7 °C | Kaldast 0 °C
Suðlæg átt, víða 8-15
m/s. Slydda og síðan
rigning suðvestan- og
vestanlands en snjó-
koma annars staðar. »10
Rapparinn Ká Eff
Bé stendur fyrir
baráttutónleikum til
að styðja við bakið á
fólki sem berst við
krabbamein. »54
TÓNLIST»
Baráttu-
tónleikar
LEIKLIST»
MR vann Leiktu betur í
fyrsta skipti. »60
Í Dýrunum kemur
fram að aðeins þrjú
prósent af dýrum
jarðar eru hrygg-
dýr, 97 prósent eru
hryggleysingjar. »56
AF LISTUM»
Fróðleikur
um dýrin
FÓLK»
John Cleese er kven-
samur kappi. »61
KVIKMYNDIR»
Brolin er í óskarsham í
myndinni W. »57
Menning
VEÐUR»
1. Íþróttaálfurinn lét Jackie Chan …
2. Vantrauststillaga komin fram
3. Kynþokkafyllsta konan naflalaus
4. Óska eftir launalækkun
»MEST LESIÐ Á mbl.is
VIÐ hlýðum hverri þinni bend-
ingu gætu Dimma, Neró og Tyson
verið að hugsa þar sem þau horfa
sem dáleidd á vinkonu sína og
húsbónda, Heiðrúnu Villu Ingu-
dóttur.
Hún ætti einmitt að kunna að
kenna hundunum sínum, því hún
hefur skrifað fyrstu bókina á ís-
lensku um hundaþjálfun.
Þegar Heiðrún Villa var þrett-
án ára eignaðist hún sinn fyrsta
hund en vegna vankunnáttu við
þjálfunina neyddist hún til að láta
svæfa hann. „Mér fannst það al-
veg rosalega erfitt og var alveg
ónýt eftir það,“ segir hún.
Dimmu eignaðist Heiðrún Villa
sextán ára gömul, en þá tók hún
hana að sér þegar átti að svæfa
hana. Í dag á Heiðrún Villa þessa
þrjá hunda, rottweiler-blending-
inn Neró, franska bolabítinn Ty-
son og poodle terrier-tíkina
Dimmu.
Heiðrún Villa hefur opnað síðu
þar sem fram fer fjarþjálfun,
123.is/gerdubestavininnbetri. Það
ætlar hún að dunda sér við á
meðan hún er í fæðingarorlofi.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kyrr! Öll eru þau miklir vinir, Heiðrún Villa skipar Dimmu, Neró og Tyson
að bíða réttrar bendingar frá sér. Þau hlýða hverju orði og bíða spennt.
Heiðrún Villa
Ingudóttir kennir
hundakúnstir
Besti vinurinn bættur
Íslensku óperunni
Janis
Joplin
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
Í NÝJU áliti umboðsmanns Alþingis segir að veru-
legur vafi sé á því að þær lagaheimildir sem við geta
átt um að fella kostnað ÁTVR á viðskiptavini vín-
búðanna séu fullnægjandi miðað við þær kröfur
sem leiða af stjórnarskrá og reglum um töku þjón-
ustugjalda hjá ríkinu.
Þegar áfengi er selt í smásölu út úr ÁTVR leggur
stofnunin ákveðna prósentu á hverja flösku sam-
kvæmt reglugerð sem fjármálaráðherra setur, t.d.
13% ef um er að ræða venjulega rauðvínsflösku.
Þetta er ekki áfengisskatturinn, heldur á þessi
álagning að standa undir rekstri ÁTVR og skila
arði af rekstrinum.
Er það álit umboðsmanns að ákvæði reglugerðar
um að álagning á áfengi í smásölu skuli ákveðin
þannig að ÁTVR skili arði sem telst hæfilegur m.a
með tilliti til þeirra eigna sem bundnar eru í rekstri
ÁTVR hafi ekki fullnægjandi lagastoð. Eins og seg-
ir í áliti umboðsmanns: „Geri ég athugasemdir við
að nægjanlegar lagaheimildir hafi staðið til þess
fyrirkomulags sem fjármálaráðherra hefur viðhaft
við ákvörðun álagningar við smásölu áfengis hjá
ÁTVR á grundvelli 3. gr. laga nr. 63/1969, um versl-
un með áfengi og tóbak, og nánar er mælt fyrir um í
[reglugerð] um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins.“
Böðvar Jónsson, aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra, segir að vegna álits umboðsmanns verði tek-
ið til sérstakrar athugunar í ráðuneytinu hvort ekki
sé þörf á að skjóta traustari stoðum undir álagn-
inguna hjá ÁTVR. Athuga verði hvort breyta þurfi
lögum í því samhengi.
Álagning ÁTVR ólögmæt
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Vínbúð Umboðsmaður Alþingis segir að álagn-
ingu á vínflöskurnar skorti lagastoð.
ÁTVR leggur ákveðna prósentu á hverja flösku samkvæmt reglugerð
Umboðsmaður Alþingis segir reglugerð skorta lagastoð Laganemi kvartaði
MÖRG álit umboðsmanns eru tilkomin
vegna kvartana almennra borgara sem
efast um gildandi réttarreglur, t.d. lögmæti
opinberrar gjaldtöku eins og hér um ræðir.
Tilurð álits umboðsmanns um lögmæti
álagningar hjá ÁTVR er kvörtun Andrésar
Þorleifssonar, laganema við Háskóla Ís-
lands. Andrés hafði keypt sér rauðvíns-
flösku og kvartaði yfir álagningu á áfengi
samkvæmt 20. gr. reglugerðar um ÁTVR,
en þar er kveðið á um að álagningin skuli
ákveðin með tilliti til kostnaðar við smá-
söludreifingu.
Efni kvörtunarinnar laut aðallega að því
að sú gjaldtaka sem færi fram á grundvelli
ákvæðis reglugerðarinnar fæli í sér skatt-
lagningu og að sem slík ætti hún ekki full-
nægjandi lagastoð. Andrés hafði áður sent
ÁTVR tölvupóst með fyrirspurn um álagn-
inguna, sem ekki var svarað.
Úrræði borgarans
Skoðanir
fólksins
’Það verður að horfast í augu við aðverðmæti hafa tapast út úr hag-kerfinu. Til viðbótar við það munum viðtaka á okkur skell þegar krónunni verð-ur fleytt vegna vantrúar á gjaldmiðl-
inum og peninga- og efnahags-
málastjórn landsins. » 38
SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR
’En líklega fara jökulárnar fyrr aðrenna upp í mót en að þessi rík-isstjórn láti menn sæta ábyrgð fyrirsmávægilegar yfirsjónir svo sem aðkoma landi sínu á vonarvöl. Og þjóðin
„kóar með“ eins og fyrri daginn. » 38
ÖRNÓLFUR ÁRNASON
’Eiga bara eigendur bankanna réttá að fá að vita að það stefnir íóefni, en ekki þeir sem missa vinnunaog aleiguna, og hefðu kannski getaðkomið í veg fyrir það ef þeir hefðu haft
upplýsingar frá seðlabankanum og FME
um yfirvofandi hættu? » 40
ANDRÉS MAGNÚSSON
’Davíð verður að fara! Hvernig máþað vera að þú verð gjörðir hansGeir? Hann er að tæta fylgið af flokkn-um þínum. Hann hefur heyrt 90 pró-sent þjóðarinnar segja: „Farðu.“
Sögurnar eru endalausar um bræði
hans. » 40
ÍSLENSKA
landsliðið í
knattspyrnu
vann jafnmarga
leiki undir stjórn
Ólafs Jóhann-
essonar á árinu
2008 og það
hafði gert sam-
anlagt und-
anfarin fjögur
ár. Í fyrsta sinn í
fimm ár náði liðið 50% heildar-
árangri en niðurstaða ársins er
fimm sigrar, tvö jafntefli og fimm
töp. | Íþróttir
Landsliðið
er á uppleið
Ólafur
Jóhannesson
GRÍÐARLEGT
álag er á fremstu
handknattleiks-
mönnum heims
og hafa margir
leikmenn áhyggj-
ur af þróun mála.
„Silfurdreng-
urinn“ Guðjón
Valur Sigurðsson
mun væntanlega
leika 84 leiki á
þessu ári og fær hann varla frí frá
íþróttinni fyrr en 22. júní á næsta
ári. „Við erum engin vélmenni,“ seg-
ir Guðjón Valur.| Íþróttir
„Við erum eng-
in vélmenni“
Guðjón Valur
Sigurðsson