Fréttablaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 20
MARKAÐURINN 29. APRÍL 2009 MIÐVIKUDAGUR4 F R É T T I R „Eins og stjórnvöld hafa verið að nálgast viðræður við erlenda kröfuhafa, þá ótt- ast ég að það sé verið að kalla yfir okkur ábyrgð sem við höfum ekki efni á að borga. Skuldir bankanna eru okkur ofviða,“ sagði Haraldur H. Haraldsson, hagfræðingur og framkvæmdastjóri Nýsis, í erindi sínu á hádegisverðarfundi Félags viðskiptafræð- inga og hagfræðinga sem haldinn var á Grand Hóteli í gær. Fundurinn var haldinn undir yfirskriftinni „Hver er staða þjóðar- búsins? Er Ísland gjaldþrota?“. Haraldur hóf erindi sitt á að furða sig á þeirri umræðu að skortur sé á töluleg- um upplýsingum um skuldir þjóðarbús- ins. Flestar upplýsingar hans væru að- gengilegar á vef Seðlabankans, þar sem þær væru uppfærðar ársfjórðungslega. Haraldur segir þessar upplýsingar leiða í ljós að erlendar skuldir landsins hafi frá 2004 og fram í árslok 2008 hækkað úr 1.663 milljörðum króna í 12.887 milljarða, sem jafngildir 675 prósenta aukningu. Til samanburðar bendir hann á að verg lands- framleiðsla hafi á sama tímabili aukist úr 915 milljörðum króna í 1.514 milljarða, eða um 65,3 prósent. Því sé ekkert samhengi í þessari aukningu. Ennfremur telur Har- aldur að strax í árslok 2007 hefði mátt ljóst vera að íslenskt þjóðfélag gæti ekki staðið undir þessum miklu skuldbindingum. Um heildarskuldir þjóðarbúsins varar Haraldur við að reikna eignir á móti skuld- um og fá þannig út nettó tölu, eins og oft er gert í umræðum um þessi mál. Vill Har- aldur meina að sú aðferð sé notuð til eins konar réttlætingar fyrir því að almenn- ingur taki á sig hinar miklu skuldir, eða tæplega 3.000 milljarða króna í lok síð- asta árs. „Slík uppsetning minnir dálítið á bankana sem hrundu. Þeir settu eign- ir á móti skuldum, en þessar eignir voru að hluta til háðar huglægu mati, og þeir djörfustu bættu viðskiptavild inn í efna- hagsreikninginn. Þannig fengu þeir út já- kvætt eigið fé sem þýddi að þeir gátu tekið fleiri lán. Ég vara eindregið við slíkri upp- setningu,“ sagði Haraldur. Haraldur segir einnig að erlendar skuld- ir ríkissjóðs og annarra aðila en bank- anna, til viðbótar við lántöku vegna halla á ríkissjóði, Seðlabanka Íslands og nýju bankanna, nemi tæpum 2.650 milljörðum króna. Vaxtakostnaður af þeirri upphæð væri 132,5 milljarðar, miðað við 5 prósenta vexti. Kostnaður af vöxtum væri því nán- ast sá sami og fjárlög þessa árs áætli að ríkið hafi í tekjur af virðisaukaskatti. „Ég tel að við eigum að endurskoða að- komu okkar að þessum málum. Við eigum að fara í formlegar viðræður við þessar þjóðir sem bankarnir störfuðu í og leggja allar upplýsingar á borðið. Ég trúi ekki öðru en menn hafi skilning þar á,“ sagði Haraldur. „Þetta hljómar svo svart hjá Haraldi að ég veit ekki hvort ég legg í þetta,“ sagði Tryggvi Þór Herbertsson, hagfræðingur og nýkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokks í Norðausturkjördæmi, sem einnig hélt er- indi á hádegisverðarfundinum í gær, „en ég hef ekki tekið undir þá áskorun Har- aldar að telja ekki eignir á móti skuldum í þessari umræðu.“ Tryggvi segir erfitt að henda reiður á skuldum þjóðarbúsins vegna þess að upp- gjör milli gömlu og nýju bankanna liggi ekki fyrir. Samkvæmt útreikningum hans nema hreinar innlendar skuldir ríkisins um 280 milljörðum króna. Erlendu skuld- irnar, þær sem okkur ber að hafa mest- ar áhyggjur af, séu um 567 milljónir doll- ara. Hann segir nettóskuldir vegna Ice- Save nema um 72 milljónum dollara, sem falla á íslenska ríkið. 2.100 milljarða lán frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem fari í gjaldeyrisvarasjóð landsins. Sú upphæð sé því hrein peningaleg eign því ekki sé ætlunin að nota þá peninga í neitt annað en gjaldeyrisvarasjóðinn. Lánalínur utan efnahags nemi 2.900 milljónum dollara. Hins vegar hafi einungis brot af lánum sem reiknuð séu inn í þá upphæð þegar verið tekin. Eignir á móti skuldum séu að megninu til hreinar peningalegar eignir sem liggja inni á reikningi í bandaríska seðlabankanum. Sé miðað við dollara sem 127 krónur séu hreinar skuldir því 351 milljarður. Hlut- fall skulda í erlendum gjaldmiðlum sé 20 prósent og 80 prósent í krónum. Tryggvi lauk máli sínu á að hvetja stjórnvöld til að einhenda sér í aðgerðir til að berjast gegn vanda fyrirtækja og heim- ila. Ýmsar leiðir væru færar í því efni. „Ég ætla ekki að gefa ráð. Ég hef gert það áður og ekki hefur verið hlustað á þau hing- að til,“ sagði Tryggvi og uppskar hlátur fundargesta að launum. Segir skuldir bankanna vera þjóðinni ofviða „Hver er staða þjóðarbúsins? Er Ísland gjaldþrota?“ var yfirskrift hádegisverðarfundar félags viðskipta- fræðinga og hagfræðinga sem fram fór á Grand Hóteli í gær. Kjartan Guðmundsson fylgdist með umræðunum. HEIMILI OG FYRIRTÆKI Tryggvi Þór Herbertsson sagði á hádegisverðarfundi viðskipta- og hagfræðinga í gær að staða heimila og fyrirtækja væri mjög slæm en staða ríkissjóðs væri þó viðunandi. VAXTABYRÐI Haraldur L. Haraldsson telur vaxtakostnað af erlendum skuldum þjóðarbúsins nægan til að sliga efnahaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON UMRÆÐUR Pallborðsumræður fóru fram að fundi loknum. FJÖLMENNI Vel var mætt á fundinn og fylgdust menn af áhuga með erindum þeirra Haraldar og Tryggva.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.