Fréttablaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 41
BÍÓDAGAR 2009
17. APRÍL - 4. MAÍ Í HÁSKÓLABÍÓI
Me & Bobby Fischer
„Sjálfur sýnir Fischer lúmskan húmor þegar
sá gállinn er á honum, síðan keyrir um
þverbak í ofstækinu. Kaflinn með honum og
Kára Stefánssyni er rúsínan í pylsuendanum.
Hér mætast stálin stinn og skákin lífleg...“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Bigger Stronger Faster
„Bigger Stronger Faster er ekki aðeins
heimildarmynd um intressant efni, heldur
heimild um ákveðið lífsviðhorf. Vöðva-
draumurinn. Muscle Beach í Kaliforníu,
Golds-Gym. Afhjúpanir á lyfjanotkun
bandarískra íþróttamanna. Sjáið þessa, hún
er illa feit á því. Og djöfull langar mig að
dæla í mig testa, deka, HGH, you name it.“
- Dóri DNA, DV
Die Welle
"Athyglisverð mynd sem fjallar um
tilraunastarfsemi í síðasta bekk menntaskóla
í Berlín....Bylgjan nýtur góðs af traustum leik
Vogels í aðalhlutverki kennarans og nemenda-
hópurinn er ekki síður sannfærandi og túlkar
þverskurð þjóðfélagsins af sannfæringarkrafti.“
- Sæbjörn Valdimarsson
Man on Wire
„Ein margra fjaðra í hatti Bíódaga er hin breska
Man on Wire, nýkrýndur Óskarsverðlaunahafi
sem besta heimildarmynd ársins. Flest hjálpast
að til að gera veg hennar sem mestan....Marsh
kemur spennunni óhugnanlega vel til skila,
byggir myndina sterklega upp með því að gefa
undirbúningnum og félagsskapnum góðan tíma.
Það sem meira er, hann kemur til skila þeirri
ólýsanlegu ástríðu sem fær mann til að arka út
í opinn dauðann.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Young @ Heart
„...með afbrigðum upplífgandi...Ég vil því í
upphafi hvetja unga sem aldna og alla þar á
milli til að missa ekki af þessari einstöku
skemmtun, hún er sannkölluð vítamín-
sprauta fyrir líkama og sál...Ung í anda
stendur undir nafni, full af uppbyggilegum
og jákvæðum boðskap og sýnir og sannar
hvað roskið fólk getur afkastað og notið
lífsins ef það fær tækifæri til þess.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Frozen River
„Leo var tilnefnd til Óskarsverðlaunanna í
vetur og hefði sannarlega verið vel að þeim
komin, er ekkert annað en stórkostleg sem
hin lífsreynda Ray sem gefst aldrei upp þó á
móti blási. Frozen River er ein besta mynd
ársins, frumleg, falleg og grimmúðleg en
fyrst og fremst dagsönn nærskoðun á
kjörum þeirra sem bjarga sér á hverju sem
gengur, hvað sem það kostar.“
- Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið
Garbage Warrior
„Hinn arkitektamenntaði Reynolds hefur
verið vakinn og sofinn í þessari köllun sinni
í hátt í fjörutíu ár, rekst endalaust á hindranir
og gerir mistök trekk í trekk, en það segir
hann líka forsendu árangurs og framfara,
mannkyninu og plánetu okkar til heilla.
Heimildarmyndin Garbage Warrior, sem nú
er sýnd á Bíódögum Græna ljósins, gefur
níutíu mínútna innsýn í líf þessa mikla
hugsjónamanns.“
- KHG, DV
Gomorra
„Gómorra er ólík öðrum mafíumyndum
hvað varðar djúpa innsýn í samfélagslegar
skírskotanir skipulagðrar glæpastarfsemi,
og hún er gerð af listfengi á öllum sviðum.“
- Heiða Jóhansdóttir, Morgunblaðið
HÖRKUSPENNANDI
OG BRÁÐFYNDNAR
VIÐ VITUM AÐ KOSNINGAUMRÆÐURNAR ERU...
EN AÐ MATI GAGNRÝNENDA ERU ÞESSAR KVIKMYNDIR JAFNVEL ENNÞÁ BETRI
Græna ljósið
er á
Kynntu þér dagskrána
á www.graenaljosid.is
ÞESSAR OG FLEIRI KVIKMYNDIR Á BÍÓDÖGUM 2009 Í HÁSKÓLABÍÓI