Fréttablaðið - 29.04.2009, Blaðsíða 29
MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 29. APRÍL 2009
F R É T T I R
Veturinn endaði vel í Kauphöll-
inni en heildarveltan á miðviku-
dag fyrir viku nam 15,3 milljörð-
um króna. Þetta var þriðji veltu-
mesti dagur ársins, samkvæmt
upplýsingum úr Kauphöllinni.
Velta á skuldabréfamarkaði
nam 15,2 milljörðum króna en 71
milljón króna á hlutabréfamark-
aði.
Mest var veltan 21. janúar síð-
astliðinn þegar hún nam átján
milljörðum króna.
Fyrir hrun bankanna í október í
fyrra var mikið líf í Kauphöllinni.
Meðalvelta á fyrstu níu mánuðum
ársins nam 25 milljörðum króna á
dag. Hápunktinum náði veltan 20.
maí sama ár þegar hún nam 108
milljörðum króna. - jab
ÚR KAUPHÖLLINNI Veturinn endaði
vel í Kauphöllinni í gær. Veltan nam
15,2 milljörðum króna í lok dags.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vetur kvaddi
með stæl
Að óta byggðta ygg
...með áherslu á lífsgæði
„Þetta var mjög óvenjulegur fjórðungur,“ segir Jón
Sigurðsson, forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Öss-
urar. Hann bendir á að fyrsti mánuður ársins hafi
verið afar erfiður í skugga alþjóðlegra efnahags-
þrenginga. Það hafi svo snúist við í mars. Hann segir
mikla óvissu um horfur sökum hræringa í heims-
hagkerfinu, ekki síst sökum gengisáhrifa.
Össur hagnaðist um 7,6 milljónir Bandaríkjadala,
jafnvirði 995 milljóna króna á núvirði, á síðasta árs-
fjórðungi miðað við 6,7 milljónir dala á sama tíma
í fyrra.
Sala á tímabilinu nam 77,2 milljónum dala sem er
fjögurra prósenta samdráttur í staðbundinni mynt.
Framlegð (EBITDA) nam 12,9 milljónum dala sem
er rétt rúmlega fjórðungi minna en í fyrra.
Fyrirtækið náði stórum áfanga í Bandaríkjunum á
tímabilinu í kjölfar viðamikilla breytinga á sölustarfi
þar, en þær hafa gert Össuri kleift að selja stoðtæki
til bandarískra sjúkrahúsa. Jón segir skrefið mikil-
vægt og bindi hann miklar vonir við það. - jab
JÓN SIGURÐSSON Forstjóri stoðtækjafyrirtækisins Össurar segir
erfitt að spá fyrir um næstu mánuði. MARKAÐURINN/VILHELM
Óvenjulegur fjórðungur að baki
Stjórnvöld í Japan hafa fært efna-
hagsspá sína fyrir árið úr núlli í
samdrátt upp á 3,3 prósent. Fjár-
lagaárið þar í landi hófst um mán-
aðamótin.
Þetta er nokkuð í takti við
væntingar en efnahagur í Japan
er mjög knúinn af útflutningi,
ekki síst á bílum og tæknibúnaði.
Bílaiðnaðurinn hefur hins vegar
hrunið víða um heim auk þess sem
færri kaupa dýr raftæki en áður.
Þetta hefur valdið einu snarpasta
samdráttarskeiði sem sést hefur
í landi hinnar rísandi sólar frá
tímum seinni heimsstyrjaldar,
að sögn bandaríska dagblaðsins
New York Times.
Þetta er talsvert undir spá Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins en hann
gerði ráð fyrir 6,2 prósenta sam-
drætti. - jab
Samdráttur í
Japan
KÁTÍNA Í KAUPÆÐI Útflytjendur í Japan
brosa ekki jafnt breitt og áður því mjög
hefur dregið úr sölu á leikjatölvum á borð
við PS3 í kreppunni. MARKAÐURINN/AP
Mary Schapiro, forstjóri banda-
ríska fjármálaeftirlitsins, segir
ekki útilokað að greitt fyrir þær
upplýsingar sem leiða til þess að
efnahagsbrot verða upprætt.
Þetta sagði forstjórinn á ráð-
stefnu með viðskiptablaðamönn-
um í Denver í Colorado-ríki í
Bandaríkjunum á mánudag.
Hún gerir ráð fyrir að um á
bilinu 750 þúsund til 1,5 milljón
ábendingar geti skilað sér í hús
verði greiðsla í boði. Embættið
búi hins vegar hvorki yfir tækj-
um né tólum til að taka við svo
miklu magni og verði að vinna að
því að keyra upplýsingar saman
frá gervöllum Bandaríkjunum til
að gaumgæfa einstök mál.
„Þetta gæti gefið okkur kost á
að einbeita okkur að einstökum
málum,“ sagði Schapiro og bætti
við að hún vilji koma í veg fyrir
að mál á borð við svikamyllu
Bernie Madoffs renni úr hönd-
um embættisins.
Bandaríski skatturinn greið-
ir fyrir upplýsingar í tengslum
við skattalagabrot auk þess sem
fjármálaeftirlitið greiðir fyrir
uppljóstrun um innherjasvik á
hlutabréfamarkaði. - jab
Greitt fyrir uppljóstrun