Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 2
2 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
www.ms.is/gottimatinn
gerir allt betra!
nýjarumbúðirmatreiðslurjómihefur fengiðnýtt útlit
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
STJÓRNSÝSLA Dómsmálaráðuneytið
hefur óskað eftir tilboðum í rekst-
ur bílamiðstöðvar lögreglunnar.
Til stendur að semja við einkaaðila
um að taka miðstöðina í Skógarhlíð
yfir ásamt öllum lögreglubílum á
landinu. Munu þeir sjá um rekstur
bílanna og annars sérstaks búnað-
ar, viðhald og endurnýjun í sex ár.
Viðsemjandinn á að geta tekið við
verkinu í síðasta lagi 1. október á
þessu ári.
Kostnaðarmat liggur ekki fyrir,
en ljóst er að kostnaðurinn við
rekstur miðstöðvarinnar og bílanna
hleypur á tugum ef ekki hundruð-
um milljóna á ári. Miðstöðin hefur
verið stærsta einstaka verkefni
Ríkislögreglustjóra og kostnaður
við hana numið allt að þriðjungi af
heildarrekstrarkostnaði – var til
dæmis 330 milljónir árið 2005 og
um 90 milljónir árið 2007.
Flotinn, alls 165 bílar og vélhjól,
er metinn á 550 milljónir króna. Til
stendur að ríkið láni fyrir kaupum
á öllum ökutækjunum með verð-
tryggðu láni sem greitt skal upp að
fullu á samningstímanum. Embætti
ríkislögreglustjóra er síðan skuld-
bundið til að kaupa flotann aftur
endurverðmetinn að samningstím-
anum liðnum. Húsnæðið í Skógar-
hlíð verður leigt viðsemjanda.
Gerð er krafa um að viðsemjand-
inn stofni sérstakt félag um rekstur
bílamiðstöðvarinnar og jafnframt
að sérstakt eignarhaldsfélag verði
undir því sem sjái um bílana.
Félaginu er meðal annars falið
að endurnýja bílaflotann eftir þörf-
um lögreglu í samræmi við reglur
og kröfur um aldur og ástand öku-
tækjanna. Viðgerðar- og viðhalds-
kostnaður umfram 110 milljónir
á ári verður hins vegar í höndum
dómsmálaráðuneytisins. Þar sem
lögregluembætti eru á landsbyggð-
inni þarf félagið að hafa samning
við löggilt bifreiðaverkstæði.
Bílamiðstöðin var sett á fót árið
2000 til þess að rekstur allra lög-
reglubíla væri á einni hendi. Rík-
islögreglustjóri leigði lögregluemb-
ættum síðan bílana. Fjórir starfa
nú við bílamiðstöðina.
Árið 2006 gerði Ríkisendurskoð-
un stjórnsýsluúttekt á embætti
Ríkislögreglustjóra þar sem fram
kom að stofnun Bílamiðstöðvarinn-
ar verið framfaraskref í bílamál-
um lögreglunnar, en hún ætti hins
vegar rekstrarvandræði að stríða
og stæði ekki undir sér eins og til
var ætlast. Það bitnaði á getu henn-
ar til að endurnýja flotann eins og
þurfti. Þann vanda þyrfti að leysa.
stigur@frettabladid.is
Bílafloti lögreglu
allur einkavæddur
Rekstur alls bílaflota íslensku lögreglunnar hefur verið boðinn út. Ríkið hyggst
lána hæstbjóðanda fyrir kaupum á flotanum og bílarnir verða síðan leigðir lög-
reglunni. Ríkisendurskoðun taldi þörf á að endurskoða reksturinn árið 2006.
ÚTIVIST Siglingamenn telja sig ofsótta og hafa risið
til varnar almenningsáliti og meintum neikvæðum
viðhorfum innan lögreglu, tollgæslu og Landhelgis-
gæslunnar samkvæmt pistli á heimasíðu siglinga-
klúbbsins Brokeyjar. Pistillinn er undir fyrirsögn-
inni „Skútufólk ofsótt“ og segir að ekki megi hreyfa
seglbát án þess að tollurinn mæti á staðinn.
„Þetta er farið að minna illilega á það viðhorf sem
birtist eftir títtnefnt slys fyrir nokkrum árum þar
sem ölvun átti þátt í að hraðbátur steytti á skeri með
skelfilegum afleiðingum,“ segir í pistlinum. „Þegar
rætt var við fólk sem starfaði hjá lögreglu og Land-
helgisgæslu var augljóst að flestir töldu skemmti-
bátasiglara alltaf dauðadrukkna á ferð í bátum
sínum og full ástæða til að sýna þessum lýð í tvo
heimana. Nú virðist alveg ljóst að skútusiglarar eru
allir stimplaðir dópsmyglarar og skal fylgjast náið
með þeim hvar sem til þeirra næst. Staðreyndin er
hins vegar sú að skútusiglarar eru íþróttafólk og
fjölskyldufólk“ segir í pistlinum „að stunda íþrótt
sína í keppni eða á rólegheitasiglingu um sundin“.
Sigurður Skúli Bergsson aðstoðartollstjóri kann-
ast ekki við neikvæð viðhorf, ofsóknir eða meira eft-
irlit með siglingamönnum nú en áður. Hvorki Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, né
Halldór Nellet, framkvæmdastjóri hjá Landhelgis-
gæslunni, kannast við neikvæð viðhorf eða aukið
eftirlit. Halldór segir að farið sé í eftirlit á sumrin
en ekkert óvenjulegt hafi komið upp. - ghs
Siglingamenn í Reykjavík telja sig ofsótta af yfirvöldum í kjölfar smyglmála:
Allir stimplaðir dópsmyglarar
Þorbjörg, eigið þið fyrir salti í
grautinn?
„Já, og svo höfum við alltaf
vegasaltið.“
Boðið verður upp á hafragraut þrisvar
í viku í leikskólum Reykjavíkurborgar í
hagræðingarskyni. Þorbjörg Helga Vigfús-
dóttir er formaður leikskólaráðs.
MÁ EKKI HREYFA BÁT Siglingamenn hjá Brokey telja að skútu-
menn séu ofsóttir því að ekki megi hreyfa seglbát án þess
að tollurinn mæti á staðinn, samkvæmt pistli á heimasíðu
Brokeyjar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Íslensk lögregluyfirvöld eiga 165
ökutæki. Þau eru:
■ 85 merktir fólksbílar
■ 30 ómerktir fólksbílar
■ 16 stærri sendibílar
■ 15 jeppar
■ 15 bifhjól
■ 4 minni sendibílar
Búnaðurinn sem er um borð í
bílunum og nýju einkafélagi verður
falið að annast, endurnýja og halda
við, er margs konar. Meðal annars
(athugið að búnaðurinn er ekki
endilega í öllum bílum):
■ Ratsjár
■ Upptökubúnaður
■ Talstöðvar
■ Leiðsögutæki
■ Farsímar
■ Tölvubúnaður
■ Forgangsljós
■ Hjartastuðtæki
■ Vopnabúnaður
ÖKUTÆKIN OG BÚNAÐURINN
BRÁTT Í EINKAEIGU Einkaaðilinn sem tekur við verkinu þarf að sinna öllu viðhaldi
á bílunum, meðal annars vegna skemmda, og endurnýja flotann ef þörf krefur.
FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
SJÁVARÚTVEGUR HB Grandi hefur
sett upp rafskautaketil í fiski-
mjölsverksmiðju sinni á Vopna-
firði og framvegis verður innlend
raforka notuð til þess að knýja
vélar verksmiðjunnar. Kemur hún
í stað svartolíu sem notuð hefur
verið fram að þessu.
Vilhjálmur Vilhjálmsson,
deildarstjóri uppsjávarsviðs HB
Granda, segir um merkan áfanga
að ræða. „Það er ekki nóg með
að orkukostnaður lækki veru-
lega við þessa breytingu, heldur
mun draga gríðarlega úr losun
gróðurhúsalofttegunda við fram-
leiðslu á fiskmjöli og lýsi. Undan-
farin ár hefur þurft að brenna um
3,3 milljónum lítra af svartolíu á
ári til þess að keyra verksmiðj-
una með tilheyrandi losun gróð-
urhúsalofttegunda. Nú heyrir sú
losun vonandi að mestu leyti sög-
unni til.“
Kolmunnavinnslu er lokið á
Vopnafirði en tækifærið til að
keyra rafskautaketilinn var notað
síðustu vinnsludagana. Enn gæti
þó orðið einhver bið á því að fram-
leiðsla á fiskmjöli og lýsi með inn-
lendum orkugjafa hefjist af krafti
á Vopnafirði. Tvö af uppsjávar-
veiðiskipum HB Granda eru á til-
raunaveiðum á laxsíldartegund-
um, en laxsíld hefur ekki fundist
enn í veiðanlegu magni. Síldveið-
ar úr norsk-íslenska síldarstofn-
inum hefjast væntanlega í júní.
- shá
HB Grandi hefur tekið nýjan rafskautaketil í notkun í verksmiðju á Vopnafirði:
Spara 3,3 milljónir lítra af olíu
FRÁ VOPNAFIRÐI Fiskimjölsverksmiðjan
á staðnum hefur verið gerð umhverf-
isvæn.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest þriggja ára fangelsisdóm yfir
síbrotamanni á fertugsaldri fyrir
fjölda brota. Maðurinn, Már Ívar
Henrysson, var ákærður í alls 25
liðum og sakfelldur í öllum til-
vikum. Hann réðst meðal annars
nokkrum sinnum á lögregluþjóna
og stal 21 sjónvarpstæki úr gámi
við verslun Byko.
Þá er hann sakfelldur fyrir
fjölda annarra þjófnaðarbrota og
umferðarlagabrota. Hann er einn-
ig sviptur ökurétti í fimm ár. Þá
segir í dómnum að hann hafi af
fremsta megni reynt að hylja slóð
sína. Maðurinn á sakaferil sem
nær aftur til ársins 1994. - sh
Réðst á lögreglumenn:
Síbrotamaður
fer inn í þrjú ár
EFNAHAGSMÁL Sparifjáreigendur
í Hollandi, sem hafa tapað fé á
Icesave-reikningum Landsbank-
ans, hafa fengið boð um að hitta
sendiherra Íslands gagnvart Hol-
landi um miðjan mánuðinn. Þetta
segir Gerard van Vliet, forsvars-
maður hópsins, í samtali við Vísi.
Hópurinn telur að neyðarlögin
frá 6. október, sem verja innstæð-
ur Íslendinga, mismuni sparifjár-
eigendum eftir þjóðerni. Þetta
brjóti gegn EES-samningnum.
-kóþ
Sparifjáreigendur í Hollandi:
Ræða Icesave
við sendiherra
LÖGREGLAN Fríbúð hústökufólks
við Vatnsstíg 4 var opnuð að nýju
í gær, en lögregla aðhafðist ekki
vegna þess.
„Við höfum ákveðið að gera
ekkert í bili allavega,“ segir
Sveinn Erlendsson, varðstjóri hjá
lögreglunni. Hann telur að beðið
verði eftir beiðni frá eiganda
hússins um að það verði rýmt, en
það hefur staðið autt í nokkur ár.
Í tilkynningu frá hústökufólk-
inu segir að opnun búðarinnar sé
yfirlýsing um staðfestu og and-
spyrnu. Borgin sé fyrir fólkið,
en ekki auðjöfra og verktaka. Í
Fríbúð megi gefa og þiggja ver-
aldlega hluti og er öllum boðið að
vera með. - kóþ
Hústökufólk á Vatnsstíg:
Fríbúð fær að
vera opin í bili
Í FRÍBÚÐINNI Tónlist, bækur og fatnaður
er meðal þess sem má fá ókeypis í
Fríbúð hústökufólksins. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
LÖGREGLUFRÉTTIR Fimm menn voru
handteknir eftir ryskingar á stiga-
gangi fjölbýlishúss við Kríuhóla
í Reykjavík skömmu eftir hádegi
í gær. Tveir voru fluttir á slysa-
deild, annar með höfuðáverka en
hinn minna slasaður.
Að sögn lögreglu lítur út fyrir að
hinir fimm handteknu hafi ráðist
að hinum slösuðu í húsinu. Rann-
sókn lögreglunnar á vettvangi stóð
enn yfir síðdegis í gær. Til stóð að
yfirheyra mennina í gærkvöldi. Að
sögn lögreglu eru þeir af austur-
evrópskum uppruna. - kg
Átök í Breiðholti:
Fimm teknir
eftir ryskingar
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á Eski-
firði upprætti í gær kannabisverk-
smiðju á sveitabæ í Berufirði á
Austurlandi. Ræktunin var stutt á
veg komin en fullkomnum tækja-
búnaði hafði verið komið upp til
framleiðslunnar.
Lögreglan eystra vinnur að
rannsókn málsins í samstarfi við
fíkniefnadeild lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu. Enginn hefur
verið handtekinn en tveir hafa
verið yfirheyrðir og hafa réttar-
stöðu sakbornings.
Að sögn lögreglunnar eystra
hefur verið fylgst með mannlaus-
um sveitabæjum vegna frétta um
kannabisræktun að undanförnu.
Fylgst hafði verið með bænum þar
sem ræktunin fannst í þrjár vikur
vegna gruns um að þar færi eitt-
hvað misjafnt fram. - shá
Kannabisræktun í Berufirði:
Tóku ólöglegt
gras á sveitabæ
KANNABIS Ræktunin var stutt á veg
komin í Berufirðinum.
SPURNING DAGSINS