Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 6
6 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
FJÖLMIÐLAR Fréttablaðið hefur mikla yfirburðastöðu
á íslenskum dagblaðamarkaði samkvæmt nýrri
lestrarkönnun Capacent. Hvern dag má gera ráð
fyrir að rúmlega 50 þúsund fleiri landsmenn lesi
Fréttablaðið að meðaltali en Morgunblaðið.
Meðallestur á hvert tölublað Fréttablaðsins
mælist nú 61,9 prósent. Það er örlítið minni lestur
en mældist í síðustu könnun, en þá lásu 63,7 pró-
sent Íslendinga blaðið.
Lestur Morgunblaðsins minnkar einnig milli
kannana, en þó heldur meira, lækkar úr 42,7 pró-
sentum í 40,1 prósent. Lestur DV og Viðskipta-
blaðsins er ekki kannaður af Capacent
Yfirburðastaða Fréttablaðsins á dagblaðamark-
aði er enn meira afgerandi ef litið er eingöngu til
lesenda á aldrinum 18 til 49 ára. Meðallestur á
hvert tölublað í þeim hópi mælist 63,2 prósent hjá
Fréttablaðinu, en 31,1 prósent hjá Morgunblaði.
Lestur Fréttablaðs í aldurshópnum umfram Morg-
unblaðið er því 103 prósent, eða ríflega tvöfaldur.
Lestur Fréttablaðsins minnkar á landsbyggðinni.
Má rekja það til samdráttar á upplagi og dreifing-
arsvæði blaðsins, en til þeirra aðgerða var gripið í
hagræðingarskyni síðla vetrar.
Staða Fréttablaðsins er hins vegar ákaflega
sterk á höfuðborgarsvæðinu, og styrkist milli
kannana. Að meðaltali lesa 73 prósent íbúa höf-
uðborgarsvæðisins Fréttablaðið en 44,2 prósent
Morgunblaðið.
Í aldurshópnum 12 til 54 ára er Fréttablaðið með
að meðaltali ríflega tvöfalt fleiri lesendur á höfuð-
borgarsvæðinu en keppinauturinn.
Könnun Capacent var gerð í síma og nær yfir
tímabilið 1. febrúar til 1. maí. Niðurstöðurnar eru
byggðar á svörum 2.554 manns á aldrinum 12 til
80 ára.
Ný könnun Capacent á lestri dagblaða:
Sterk staða Fréttablaðsins
150
120
90
60
30
0
Lesendur 12-80 ára allt landið.
Heimild: Capacent
14
4.
08
9
93
.3
97
Þú
su
nd
Fréttablaðið Morgunblaðið
SVEITARSTJÓRNARMÁL „Framgang-
ur þessarar hugmyndar er meira
og minna háður því hvað ný rík-
isstjórn mun gera varðandi sveit-
arfélögin og við munum því vænt-
anlega taka ákvörðun um þetta
seinna í þessum mánuði,“ segir
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar-
stjóri á Akureyri, um niðurskurð
hjá sveitarfélaginu með launanið-
urskurði gegn frítöku.
Samband íslenskra sveitarfélaga
leitar nú leiða til að forðast upp-
sagnir vegna yfirvofandi niður-
skurðar hjá sveitarfélögunum.
Vill stjórn sambandsins því veita
þeirri hugmynd brautargengi
að laun verði lækkuð hjá starfs-
mönnum sveitarfélaganna í land-
inu um fimm prósent á móti tíu
til tólf frídögum á ári. Miklum
sparnaði má ná með þessari leið
og koma í veg fyrir uppsagnir.
Hugmyndin verður tekin fyrir á
samráðsfundi sveitarfélaganna í
næstu viku þar sem fjárhagsstaða
sveitarfélaganna verður rædd.
Hugmyndin er sprottin frá
sveitarstjórnarfólki á Akureyri.
„Við kynntum hugmyndina fyrir
okkar stjórnendum fyrir páskana
og þeir aftur kynntu hana á meðal
starfsmanna. Viðbrögðin voru heilt
yfir góð,“ segir Sigrún. Hún segir
að stórar ákvarðanir verði ekki
teknar hjá sveitarfélögum lands-
ins fyrr en ný ríkisstjórn sýnir á
spilin. Upphaflega hugmyndin var
að frítökuleiðin tæki gildi í haust
hjá afmörkuðum hópi starfsfólks
en annars í upphafi næsta árs.
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
í Vestmannaeyjum, segir að frí-
tökuleiðin verði tekin alvarlega
til skoðunar ef vilji sveitarfélag-
anna verður í þá átt. „Við stönd-
um frammi fyrir sömu rekstrar-
forsendum og önnur sveitarfélög,
en það skal þó sagt að ekki kemur
til greina að lækka lægstu laun hjá
Vestmannaeyjabæ.“
Hanna Birna Kristjánsdótt-
ir borgarstjóri segir hugmynd-
inga um fimm prósent leiðina
hafa verið rædda á vettvangi SÍS
eins og margar aðrar hugsanleg-
ar leiðir til sparnaðar. Hins vegar
hafi engin afstaða verið tekin til
hennar á vettvangi borgarstjórn-
ar Reykjavíkur. „Það liggur fyrir
hvað við hyggjumst gera í starfs-
mannamálum hjá okkur á þessu
ári og kemur fram í aðgerðaáætlun
Reykjavíkurborgar. Allar frekari
ákvarðanir verða unnar í þverpól-
itískri sátt og í samráði við starfs-
fólk okkar og stéttarfélög þeirra.“
Hanna Birna sér ekki fyrir sér að
gripið verði til skerðingar á laun-
um gegn frítöku á þessu ári, enda
myndi slík ákvörðun ekki sam-
ræmast gildandi fjárhagsáætlun
borgarinnar.
svavar@frettabladid.is
Sparnaðarleið háð
aðgerðum stjórnar
Viðbrögð við launalækkun gegn frítöku voru jákvæð, að sögn bæjarstjóra Ak-
ureyrar. Borgarstjóri sér ekki fyrir sér að gripið verði til launaskerðingar gegn
frítöku á þessu ári. Laun þeirra lægst launuðu verða ekki lækkuð.
FRÁ HÚSAVÍK Hugmynd um launalækkun gegn frítöku næði ekki til þeirra lægst
launuðu. FRÉTTABLAÐIÐ/KK
SIGRÚN BJÖRK
JAKOBSDÓTTIR
HANNA BIRNA
KRISTJÁNSDÓTTIR
PAKISTAN, AP Þúsundir skelfingu
lostinna Pakistana flúðu átaka-
svæðin í Swat-dal, þar sem tali-
banar berjast við hersveitir rík-
isstjórnarinnar. Fólkið streymdi
inn í yfirfullar flóttamannabúð-
ir og sjúkrahús með örþreytt og
svöng börn. Margir höfðu þurft
að fara krókaleiðir til að komast
fram hjá vegatálmum talibana.
Þriggja mánaða gamall friðar-
samningur ríkisstjórnarinnar við
talibana rann út í sandinn í síð-
ustu viku. Ríkisstjórnin virðist
staðráðin í að vinna fullnaðarsig-
ur á talibönum, þótt það geti kost-
að langt stríð í dalnum. - gb
Hörð átök í Pakistan:
Þúsundir flýja
átakasvæðin
BÖRN Á FLÓTTA Flóttamannastraumur-
inn eykst hratt. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Telur þú að stjórnarmyndunar-
viðræður taki of langan tíma?
Já 79,4
Nei 20,6
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Hefði gengi krónu þolað frekari
stýrivaxtalækkun?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
LÖGREGLUFRÉTTIR Fjórir menn voru
handteknir eftir að lítill skemmti-
bátur sem þeir voru um borð í
strandaði við Geirsnef um hálf-
þrjúleytið í gærdag. Til stóð að
yfirheyra mennina í gærkvöldi,
en þeir voru grunaðir um ölvun.
Neyðarlínu barst tilkynning
um strandið og gerði Landhelg-
isgæslunni viðvart. Að sögn lög-
reglu sakaði engan við strandið
en báturinn mun hafa skemmst
töluvert. Engir aðrir bátar urðu á
vegi þess sem strandaði.
Eigandi bátsins var um borð og
var handtekinn. - kg
Grunaðir um ölvun:
Strönduðu bát
við Geirsnef
HEILBRIGÐISMÁL „Miðað við síðustu ár hafa þess-
ir fyrstu mánuðir ársins verið með rólegasta móti
hjá okkur,“ segir Halldóra Ólafsdóttir, yfirlæknir á
bráðamóttöku og göngudeild geðdeildar Landspít-
alans. Tölur yfir komur á deild-
ina fyrstu fjórtán vikur þessa árs
sýna að þeim hefur fækkað tals-
vert frá fyrri árum.
Halldóra segir starfsfólk deild-
arinnar stöðugt fylgjast með
fjölda sjúklinga og álagi á starfs-
fólk. „Nákvæmar tölur yfir komur
fyrstu fjórtán vikur ársins sýna
fram á töluverða fækkun. Síðustu
tvö til þrjú árin hefur ekki verið
óalgengt að komurnar á þessum
árstíma hafi verið á bilinu 160 til
200 á viku og jafnvel rúmlega það. Fyrstu fjórtán
vikur þessa árs voru komurnar frá 110 og upp í 160
talsins. Við höfum ekki nákvæmar tölur yfir kom-
urnar síðustu tvo mánuði eða svo, en mér sýnist að
fleiri hafi sótt til okkar á þeim tíma en var í byrj-
un árs. Sú fjölgun er þó ekkert yfirgengileg,“ segir
Halldóra.
Að sögn Halldóru er ekki vitað hverju þessi fækk-
un í byrjun sætir. „Hugsanleg ástæða gæti verið sú
að fólk telji sig ekki lengur hafa efni á að koma til
okkar. Maður heyrir það sums staðar, bæði frá sjúk-
lingum og öðrum. En það gætu líka verið einhverj-
ir aðrir þættir sem koma þar inn í. Þetta er auðvit-
að fremur lítil bráðamóttaka og miklur sveiflur í
þessu,“ segir Halldóra Ólafsdóttir. - kg
Yfirlæknir á geðdeild segir fyrstu mánuði ársins með rólegasta móti:
Komum á geðdeild fækkar
HALLDÓRA
ÓLAFSDÓTTIR
GEÐDEILD Yfirlæknir segir hugsanlega ástæðu fyrir fækkun
sjúklinga vera þá að fólk hafi ekki efni á að leita til geðdeildar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Tveir refsifangar á
Litla-Hrauni hafa verið ákærð-
ir fyrir hafa smáræði af kanna-
bisefnum og e-töfludufti í fórum
sínum í fangelsinu. Annar fang-
anna, Einar Jökull Einarsson,
hlaut níu og hálfs árs dóm fyrir
að flytja 40 kíló af fíkniefnum til
landsins í Pólstjörnumálinu svo-
kallaða. Hann var höfuðpaurinn
í því máli.
Hinn fanginn er Guðmund-
ur Freyr Magnússon, sem hlaut
þriggja og hálfs árs fangelsi árið
2007 fyrir nokkur brot, meðal
annars fyrir að fara ránshendi
um hús í Þorlákshöfn og kveikja
síðan í því. Kona og tvö börn
sváfu í húsinu en sluppu ómeidd.
- sh
Fangar ákærðir fyrir afbrot:
Pólstjörnufangi
með fíkniefni
STJÓRNMÁL Sjálfstæðisflokkurinn
mun í mánuðinum endurgreiða
Landsbankanum og FL-Group að
mestu þá styrki
sem flokkurinn
þáði fyrir síð-
ustu kosning-
ar. Þetta segir
Bjarni Bene-
diktsson, for-
maður flokks-
ins.
Alls fékk
flokkurinn 60
milljónir frá
fyrirtækjunum og mun endur-
greiða Landsbanka 25, en FL-
Group þrjátíu.
„Við erum að vinna í því í sam-
ræmi við getu okkar að endur-
greiða þeim,“ segir Bjarni, spurð-
ur um fjárhagsstöðu flokksins.
Peningarnir fari til þeirra lögað-
ila sem halda utan um fyrirtæk-
in, en þau eru bæði komin í þrot.
- kóþ
Styrkir til Sjálfstæðisflokksins:
Verður skilað
fyrir 1. júní
BJARNI
BENEDIKTSSON
KJÖRKASSINN