Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 8
8 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
1. Hver er þingflokksformaður
Sjálfstæðisflokksins?
2. Hver skoraði sigurmark
Barcelona í meistaradeildar-
leiknum gegn Chelsea?
3. Á hvað mörgum af hundrað
bestu plötum Íslandssögunnar
kemur Tómas Tómasson við
sögu?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 42
Ásdís Jana Ólafsdóttir, 7 ára, frá Akureyri, hreppti vinninginn
í Borgarlitakeppni Icelandair; flugfar fyrir tvo til einhvers af
áfangastöðum Icelandair í Evrópu. Hana langar að fara til
Parísar með foreldrum sínum og stóru systur og lenda
í ævintýrum með þeim í Disneylandi.
Um leið og við óskum Ásdísi Jönu til hamingju
með vinninginn þökkum við öllum börnunum sem
tóku þátt í leiknum í Mín barnaborg, 25. apríl, og sendu
okkur svo fallega litaðar myndir.
VINNINGSHAFINN Í
BORGARLITAKEPPNI ICELANDAIR
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
61
7
3
0
5/
0
9
BRETLAND, AP Atvinnuleysi og
fátækt er frekar uppspretta
spennu milli múslima á Vestur-
löndum og annarra íbúa þar en
ólíkar trúarskoðanir. Þetta er nið-
urstaða nýrrar skoðanakönnunar,
sem gerð var hjá Gallup á afstöðu
múslima í 27 ríkjum á vesturhveli
jarðar.
Skoðanakönnunin er sögð vera
sú stærsta sinnar tegundar síðan
árásirnar á Bandaríkin voru gerð-
ar haustið 2001.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
að Vesturlandabúar, aðrir en mús-
limar, hafi misskilið hrapallega
afstöðu múslima til samfélagsins,
og það hafi hamlað tilraunum til að
bæta samskiptin.
Könnunin sýnir að múslimar á
Vesturlöndum eru tryggari búsetu-
landi sínu, umburðarlyndari og lík-
legri til að hafna ofbeldi en aðrir
Vesturlandabúar telja þá vera.
Hins vegar finnst múslimum,
einkum í Bretlandi, Þýskalandi og
Frakklandi, þeir vera utangarðs í
samfélaginu. Ástæða þess er eink-
um sú að þeim finnst þeir eiga erf-
iðara með að fá atvinnu en aðrir
landsmenn, og eru yfirleitt tekju-
lægri.
Samkvæmt þessari könnun telja
aðeins tíu prósent múslima í Bret-
landi sig hafa aðlagast samfélag-
inu vel, en 35 prósent múslima í
Þýskalandi og 46 múslima í Frakk-
landi.
Aftur á móti segjast 77 prósent
múslima í Bretlandi hafa sterka
breska þjóðerniskennd, þótt aðeins
um helmingur annarra íbúa Bret-
lands segi þjóðerniskennd sína
sterka. Í Frakklandi er þetta hlut-
fall um helmingur, jafnt meðal
múslima sem annarra landsmanna,
en í Þýskalandi eru hlutföllin svip-
uð og í Bretlandi.
Þýskir múslimar treysta líka
dómskerfi, fjármálastofnunum og
kosningaframkvæmd mun betur
en aðrir Þjóðverjar. Franskir
múslimar bera aftur á móti minna
traust til stofnana samfélags-
ins, þar á meðal lögreglunnar, en
almenningur í Frakklandi.
Höfundar könnunarinnar segja
niðurstöðurnar sýna að ekkert sé
hæft í því að múslimar taki trú
sína fram yfir tryggð við sam-
félagið sem þeir búa í. Ekkert sé
heldur hæft í því að harðar aðgerð-
ir, sem stjórnvöld hafa víða á Vest-
urlöndum gripið til gegn herskáum
múslimum, hafi orðið til þess að
draga úr tryggð múslima almennt
við samfélagið sem þeir búa í.
„Þessi könnun sýnir að margar
af þeim skoðunum sem fólk hefur
á múslimum og aðlögun þeirra að
samfélaginu gætu ekki verið fjær
lagi,“ segir Dalia Mogahed, fram-
kvæmdastjóri rannsóknarmið-
stöðvar Gallups, sem gerði þessa
könnun. „Evrópskir múslimar vilja
vera þátttakendur í samfélaginu og
leggja sitt af mörkum.“
gudsteinn@frettabladid.is
Múslimar í
Evrópu telja
sig utangarðs
Ný skoðanakönnun á afstöðu múslima á Vesturlönd-
um til samfélagsins leiðir í ljós að þeir vilja tengjast
þjóðfélaginu betur. Atvinnuleysi og fátækt einangra
þá frekar frá samfélaginu en trúarskoðanir.
LEIÐTOGAR MÚSLIMA Í FRAKKLANDI Almenningur á Vesturlöndum hefur ýmsar
ranghugmyndir um afstöðu múslima til samfélagsins. NORDICPHOTOS/AFP
LÖGREGLUMÁL Ræðismaður Svíþjóð-
ar í Recife í Brasilíu hitti kóka-
ín smyglarann Ragnar Erling Her-
mannsson í Cotel-fangelsinu í gær
fyrir atbeina íslenskra stjórnvalda.
Hann lét Ragnar hafa peninga og
ætlar að aðstoða við að útvega
honum lögmann.
„Hann er í þokkalegu yfirlæti
strákurinn núna,“ segir Hermann
Þór Erlingsson, faðir Ragnars, sem
hefur verið í sambandi við fangels-
isstjórann í Cotel-fangelsinu og
setið fundi vegna málsins í utanrík-
isráðuneytinu. „Hann hefur feng-
ið lyf við þessari magakveisu sem
hann fékk, þessari matareitrun, og
líður þannig séð bara vel miðað við
aðstæður.“
Ragnar, sem
var handtekinn
á flugvellinum í
borginni með 5,7
kíló af kókaíni í
fórum sínum,
þarf enn að
dúsa við daprar
aðstæður í fjöl-
mennum fanga-
klefa. „Mark-
miðið er að fá góðan lögmann í
þetta strax þannig að það sé hægt
að reyna að koma honum sem fyrst
yfir í skárra fangelsi,“ segir Her-
mann, og á þar við sérstakt útlend-
ingafangelsi þar sem aðstæður eru
yfirleitt betri. „Það var gott að fá
þessar góðu fréttir af honum þótt
við hefðum auðvitað viljað tala við
hann sjálf,“ segir faðir hans. - sh
Sænski ræðismaðurinn í Recife hitti íslenska kókaínsmyglarann í gær:
Ragnar fékk lyf og peninga
RAGNAR ERLING
HERMANNSSON
Ekki eru í gildi samningar á milli
íslenskra og brasilískra stjórnvalda
um fullnustu refsidóma og flutn-
ing fanga. Slíkur samningur hefur
verið í burðarliðnum en ekki liggur
fyrir hvenær þeirri vinnu lýkur.
Ekki er hægt að aðhafast nokk-
uð í máli Ragnars fyrr en hann
hlýtur dóm. Þess getur hins vegar
verið langt að bíða.
ENGIR SAMNINGAR UM
FANGAFLUTNINGA
VIÐSKIPTI Kaupþing og Glitnir
lækkuðu þegar hjá sér vexti í kjöl-
far ákvörðunar peningastefnu-
nefndar Seðlabankans í gær um
að lækka stýrivexti.
„Þetta er skref í rétta átt en það
er ljóst að margir hefðu viljað sjá
meiri lækkun,“ segir Birna Einars-
dóttir, bankastjóri Íslandsbanka,
og bendir á að þar á bæ hafi verið
tekið að lækka vexti þegar í janúar.
„Enda höfum við talið brýnt að fyr-
irtækjunum í landinu yrðu tryggð
lífvænleg rekstrarskilyrði og að
greiðslubyrði heimilanna lækkaði.
Í því sambandi er mjög jákvætt að
peningastefnunefnd Seðlabankans
boði frekari og umtalsverða lækk-
un vaxta á næsta vaxtaákvörðun-
arfundi sínum í byrjun júní.“
Í tilkynningu Nýja Kaupþings er
lækkun stýrivaxta einnig fagnað
og hún sögð „mikilvægt skref í að
lækka vaxtabyrði hjá heimilum og
fyrirtækjum í landinu“.
Báðir bankar lækka vexti frá og
með næsta mánudegi, 11. maí. Nýja
Kaupþing lækkar innlánsvexti um
2,5 til 4,0 prósent og útlánsvexti
um 3,0 til 4,0 prósent.
Lækkun vaxta hjá Íslandsbanka
á óverðtryggðum inn- og útlánum
nemur 1,0 til 6,4 prósentustigum
og á verðtryggðum inn- og útlán-
um nemur 0,95 til 1,0 prósentu-
stigs.
Landsbankinn brást ekki sér-
staklega við lækkun stýrivaxta
í gær, en í tilkynningu peninga-
stefnunefndar voru bankarnir sér-
staklega hvattir til að lækka vexti.
- óká / sjá einnig síðu 18
Bankavextir lækka í kjölfar lækkunar stýrivaxta:
Jákvætt að boðuð
sé meiri lækkunEFNAHAGSMÁL Ólíklegt er að mikl-ar breytingar verði á gengi krón-unnar á næstunni, og líklegast að
bandaríkjada-
lur verði á bilinu
110 til 130 krón-
ur næstu árin.
Þetta kom
fram í máli Ingj-
alds Hanni-
balssonar,
prófessors við
viðskiptafræði-
deild Háskóla
Íslands, á opnum
fundi um samkeppnishæfni í gær.
Hann sagði veikt gengi krónunnar
henta útflutningsfyrirtækjum vel.
Til að komast út úr kreppunni
þurfi Íslendingar að beina sjónum
sínum að útflutningi, og byggja
á sjávarútvegi, orkufrekum iðn-
aði, almennum iðnaði og þjónustu,
sagði Ingjaldur. - bj
Prófessor í viðskiptafræði:
Gengi krónu
áfram veikt
HEILBRIGÐSMÁL Fagdeild geðhjúkr-
unarfræðinga hvetur ráðamenn og
stjórnendur í geðheilbrigðismál-
um til að standa vörð um þær for-
varnir og meðferðarúrræði sem
þegar eru í boði. Einnig að leita
allra leiða til að styðja og efla geð-
heilbrigði landsmanna á þessum
erfiðu tímum. Þetta kemur fram í
ályktun frá fagdeildinni.
Í ályktuninni segir að reynsl-
an sýni að samfélagslegt ástand
eins og nú er á Íslandi reyni mjög
á andlega heilsu landsmanna. For-
varnir og meðferðarúrræði séu
nauðsynleg til að draga úr þeim
samfélagslega skaða sem gæti
orðið í kjölfarið. - kg
Skorað á ráðamenn:
Meðferðarúr-
ræði séu varin
INGJALDUR
HANNIBALSSON
VEISTU SVARIÐ?