Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 12
12 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR „Þetta eru að mjög
miklu leyti reiknaðir liðir sem
snúa að gengistapi sem auðvitað
eru eðlilegar vonir til að snúist
við,“ segir Árni Sigfússon, bæj-
arstjóri Reykjanesbæjar, um 8,1
milljarðs króna tap sveitarfélags-
ins á síðasta ári.
Í yfirliti frá Reykjanesbæ kemur
fram að neikvæð staða sveitarfé-
lagsins byggist á fjórum þáttum;
skráðu tapi vegna eignarhluta í
Hitaveitu Suðurnesja, framkvæmd-
um í Helguvík, fjármagnskostnaði
bæjarsjóðs og í fjórða lagi auknum
útgjöldum vegna verklegra fram-
kvæmda í lok árs og aukinnar fjár-
hagsaðstoðar og húsaleigubóta.
Sé tapinu deilt niður á alla fjór-
tán þúsund íbúa Reykjanesbæjar
lenda 580 þúsund krónur á hverj-
um einstaklingi. Það svarar einnig
til tveggja ára útsvarstekna sveit-
arfélagsins.
Árni segir tölurnar vissulega
ekki hljóma vel en bendir á að
gengistap og fjármagnsliðir séu
sjö og hálfur milljarður af upphæð-
inni. Útkoman byggi á óhagstæðu
gengi krónunnar í árslok. „Ef það
snýst við hreinsast þetta auðvitað
út að stórum hluta,“ segir hann.
Í skýringum Reykjanesbæjar
segir að stærsti einstaki áhrifa-
valdurinn á neikvæða stöðu sé
rúmlega fjögurra milljarða króna
reiknað tap vegna 35 prósenta
eignarhlutar í Hitaveitu Suður-
nesja, sem tapaði 11,7 milljörðum
í fyrra. Árni segir þessa tölu ekki
snerta bæjarsjóð beint. Bærinn
þurfi hins vegar að standa skil á
eigin fjármagnskostnaði.
„Við erum fyrst og fremst að
leggja áherslu á að greiða og semja
um okkar skuldir og það hefur
gengið ágætlega. Það er ekkert
sem veldur okkur miklum vand-
ræðum. Það er gríðarleg vinna
alla daga að halda utan um þessi
verkefni og fjármagna þau en það
er ekkert öðruvísi hjá okkur en
hjá öðrum sveitarfélögum,“ segir
Árni.
Þrátt fyrir allt segir Árni
ástæðu til bjartsýni vegna mikill-
ar og margvíslegrar atvinnuupp-
byggingar sem sé langt komin á
veg. Hann nefnir þar meðal ann-
ars álver, kísilver, gagnaver og
uppbyggingu í heilsuþjónustu og
skólastarfsemi. Reykjanesbær hafi
bundið mikið fé í höfn í Helguvík
sem eigi eftir að skila sér.
„Það vantar lokahnykkinn en við
þurfum að finna fyrir því að ríkis-
stjórn, hver sem hún er, standi með
okkur og fylgi þessu verkefni eftir,
sérstaklega í landi sem er nánast
lokað fyrir fjármagni. Ég hef enga
ástæðu til að ætla annað en að það
verði gert,“ segir bæjarstjórinn í
Reykjanesbæ. gar@frettabladid.is
Reykjanesbær tapar
tveggja ára útsvari
Rúmlega átta milljarða tap hjá Reykjanesbæ í fyrra byggist meðal annars á tapi
Hitaveitu Suðurnesja og kostnaði vegna hruns krónunnar. Bæjarstjórinn segir
ríkisstjórnina þurfa að standa með Reyknesingum í mikilli atvinnuuppbyggingu.
SVARTNÆTTI? Þrátt fyrir gríðarlegt gengistap segist bæjarstjórinn í Reykjanesbæ
bjartsýnn þar sem atvinnuuppbygging muni skila miklu til samfélagsins.
LEIKSKÓLAR Öllum börnum fæddum árið 2007 stend-
ur leikskólapláss til boða í haust. „Við erum búin
að senda bréf til foreldranna um að það er til pláss
fyrir þessi börn, þó kannski ekki í þeim leikskólum
sem eru efst á óskalista foreldranna,“ segir Ragn-
hildur Erla Bjarndóttir, sviðsstjóri leikskólasviðs
hjá Reykjavíkurborg.
Fullmannað er í öllum leikskólum Reykjavíkur,
sem þýðir að öll leikskólaplássin nýtast. Ragnhild-
ur segir mörg ár síðan tekist hafi að gefa foreldrum
vilyrði fyrir plássi svona snemma að vori; undanfar-
in ár hafi alltaf reynst nauðsynlegt að slá varnagla
vegna manneklu á leikskólum. „Þetta er allt önnur
staða en á sama tíma í fyrra, þá vantaði svo mikið af
starfsfólki.“
Auk þess að taka inn 2007-börnin fá börn fædd
snemma á árinu 2008 pláss í sumum tilvikum, auk
þess sem börn með sérþarfir komast að. Ástandið er
að sögn Ragnhildar aðeins mismunandi eftir hverf-
um. Hún segir Breiðholtið og Grafarvoginn aðeins
vera að eldast sem hverfi en í Grafarholti geti þurft
að setja börn í leikskóla utan heimahverfis. Það sé
svo misjafnt hvort foreldrar þiggi það eða velji dag-
mömmu í hverfinu.
Þrátt fyrir aukið atvinnuleysi segist Ragnhildur
ekki sjá merki þess að börn séu tekin af leikskólum
vegna minni tekna foreldra.
Um 5.900 börn eru á leikskólum Reykjavíkurborg-
ar, 900 á einkareknum leikskólum og 740 hjá dagfor-
eldrum. Þjónustutrygging er greidd til foreldra 700
barna sem nýta sér ekki aðra dagvistun. - sbt
Foreldrar fá öruggari svör um leikskólapláss en áður:
2007-börnin fá öll leikskólapláss
LEIKSKÓLABÖRN Öll pláss á leikskólum borgarinnar eru nýtt
um þessar mundir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANNA MARGRÉT
SAMGÖNGUMÁL Vinna við Bolungar-
víkurgöng, einnig nefnd Óshlíðar-
göng, gengur vel og er samtals búið
að sprengja 3.152 eða rúmlega 60
prósent af heildarlengd ganganna.
Í síðustu viku voru sprengdir 60
metrar Hnífsdalsmegin og heildar-
lengdin þar 1.540 metrar, Bolung-
arvíkurmegin voru einnig sprengd-
ir 60 metrar og er heildarlengdin
þeim megin orðin 1.612 metrar.
Göngin verða fullkláruð með
vegskálum um 5,4 kílómetrar að
lengd og er áætlað að starfsmenn
Ósafls ehf., sem sér um gröft Bol-
ungarvíkurganga, slái í gegn í okt-
óber næstkomandi.
Rúnar Ágúst Jónsson, staðar-
stjóri Ósafls, segir vinnuna ganga
samkvæmt áætlun. Bergið sem
verið er að sprengja sé viðráðan-
legra en á tímabili þegar farið var
í gegnum setlög. Átti það sérstak-
lega við um göngin Hnífsdalsmeg-
in. Á þeim tíma var verkhraðinn
um 45 metrar á viku. Ósafl er með
60 starfsmenn við gangavinnuna
um þessar mundir. - shá
Búið er að sprengja rúmlega 60 prósent af Bolungarvíkurgöngum:
Slá í gegn í byrjun október
STAÐA VERKSINS Göngin á milli Ísafjarðar og Bolungarvíkur eru mikil samgöngubót
fyrir íbúa Vestfjarða. MYND/VEGAGERÐIN
Við erum
fyrst og
fremst að leggja
áherslu á að greiða
og semja um okkar
skuldir og það hefur
gengið ágætlega.
ÁRNI SIGFÚSSON
BÆJARSTJÓRI Í REYKJANESBÆ
SÍÐASTI STÖÐUMÆLIRINN Síðasti
stöðumælirinn í London var tekinn
niður í gær við hátíðlega athöfn, meira
en hálfri öld eftir að sá fyrsti var settur
upp. Nú eru menn farnir að borga fyrir
stæði með farsímum eða krítarkortum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DÓMSMÁL Ríflega tvítugur maður
hefur verið dæmdur í hálfs árs
skilorðsbundið fangelsi fyrir
tvær líkamsárásir, þar af aðra
sérlega hættulega, að því er segir
í ákæru.
Maðurinn sló annan hnefa-
höggi í andlitið á Akureyri í
júní í fyrra og hlaust nefbrot af
árásinni. Þá sló hann rúmlega
þrítuga konu í höfuðið með gler-
flösku og hlaut konan af því átta
sentimetra skurð á höfuðið.
Unnt þykir að skilorðsbinda
refsinguna vegna þess að mað-
urinn kveðst hafa bætt ráð sitt,
hann sé hættur að drekka áfengi
og eigi nýfætt barn. - sh
Ofbeldismaður á skilorð:
Dæmdur fyrir
tvær árásir
FJÁRMÁL Seðlabanki Íslands
ætlar að gera rannsókn á áhrif-
um fjármálakreppunnar á heim-
ili landsmanna. Í þessu skyni
hefur Seðlabankinn fengið heim-
ild Persónuverndar til að sam-
keyra upplýsingar um tekjur
einstaklinga frá Ríkisskattstjóra
við upplýsingar sem bankinn
hafði áður fengið frá Íbúðalána-
sjóði, bönkum, fjármögnunar-
fyrirtækjum og sparisjóðum í
sama tilgangi.
Persónuvernd segi Seðlabank-
ann ætla að fá upplýsingar frá
Ríkisskattstjóra um tekjur skatt-
skyldra einstaklinga. Öll vinnsla
persónuupplýsinga fari fram
undir eftirliti tilsjónarmanns
Persónuverndar og persónuupp-
lýsingar verði dulkóðaðar áður
en þær verði samkeyrðar. - gar
Seðlabankinn skoðar heimili:
Fá aðgang að
sköttum fólks
SVEIN HARALD ØYGARD Seðlabanka-
stjóri og starfsfólk hans metur áhrif
kreppunnar á heimilin.
Viðbrögð við auglýsingu Borgar-
byggðar um matjurtagarða til leigu á
Hvanneyri og í Borgarnesi voru svo
góð að frestur til að sækja um garð
var framlengdur til dagsins í dag,
föstudaginn 8. maí. Leiguverð er á
bilinu 1.000 til 5.000 krónur eftir
stærð garðsins.
BORGARBYGGÐ
Ásókn í matjurtagarða
STJÓRNMÁL Þinghópur Borgara-
hreyfingarinnar telur að þrjár
forsendur verði að vera til staðar
til að fallast megi á þingsályktun-
artillögu um aðildarviðræður við
Evrópusambandið. Þetta kemur
fram í tilkynningu frá Borgara-
hreyfingunni.
Forsendurnar eru að tryggð
verði gagnsæ og hlutlaus miðlun
fræðslu frá sérstakri upplýsinga-
stofu á vegum Alþingis sem skuli
skipuð fagfólki og taka mið af
reynslu nágrannaþjóða við þjóð-
aratkvæðagreiðslur. Endanleg-
ur samningur verði almenningi
aðgengilegur. Samninganefndin
verði skipuð á faglegum forsend-
um og njóti ráðgjafar tveggja
óháðra erlendra sérfræðinga og
loks að tryggt verði jafnt vægi
atkvæða allra landsmanna við
þjóðaratkvæðagreiðslu um samn-
inginn. - ghs
Borgarahreyfingin:
Þrjár forsendur
fyrir ályktun