Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 24
Á Heilsuhvoli er hægt að leita sér
ýmiss konar óhefðbundinna lækn-
inga. Þar starfa sextán meðferð-
araðilar sem bjóða upp á þrett-
án mismunandi meðferðir. Má þar
nefna grasalækningar, nálastungur,
hómópatíu, höfuðbeina- og spjald-
hryggs meðferð, Alexandertækni,
osteópatíu, nudd, fótaaðgerðir og
fleira.
Á morgun, milli klukkan ellefu
og tvö, verður heilsumiðstöðin, sem
hefur verið starfrækt í átta ár og er
til húsa að Borgartúni 33, opin þeim
sem vilja kynna sér starfsemina.
„Meðferðaraðilarnir, sem allir hafa
lokið námi og útskrifast í sínu fagi,
verða á staðnum og þar gefst fólki
tækifæri til að koma og kynna sér
möguleikana en afar einstaklings-
bundið er hvað hentar hverjum og
einum,“ segir Anna Rósa Róberts-
dóttir grasalæknir.
Hún segir það gefast afar vel að
hafa meðferðarúrræðin öll undir
sama hatti. „Við vísum oft á milli
og vinnum auk þess saman með
fólk sem leitar til okkar enda er
það kjarninn í öllum óhefðbundn-
um lækningum að horfa á líkamann
í heild í stað þess að einblína á einn
ákveðinn sjúkdóm. Við reynum að
kafa í gegnum yfirborðið og komast
að rót vandans. “ Anna Rósa leggur
þó áherslu á að meðferðaraðilarnir
séu þjálfaðir til að leggja mat á það
hvort fólk þurfi að leita hefðbund-
inna lækninga og fara í rannsóknir.
Hún segir mikla hugarfarsbreyt-
ingu hafa orðið hjá fólki á undan-
förnum árum í garð óhefðbundinna
lækninga og þykja þær sjálfsagðari
en áður. „Ég útskrifaðist fyrir sautj-
án árum og þá þótti ég voða skrýtin.
Í dag þyki ég hins vegar ekki alveg
eins skrýtin,“ segir hún og hlær.
Anna Rósa mun brugga te fyrir
gesti og gangandi á morgun en hún
tínir jurtir sínar sjálf auk þess sem
hún flytur inn lífræn grös. Einn-
ig verða léttar og meinhollar veit-
ingar á boðstólnum. Þá mun Gunn-
ar Hersveinn flytja fyrirlesturinn
Hamingjuspik sálarinnar, Edda Elín
Ásmundsdóttir frá Hlutverkasetr-
inu tala um Bjargráð eða geðveiki
og Héðinn Unnsteinsson flytja fyr-
irlesturinn Tilbrigði við tvíhyggju.
„Í tilefni dagsins verður svo 20 pró-
senta afsláttur af öllum bókunum.
Það er gert til að gefa fleirum kost á
að sækja þau úrræði sem við höfum
upp á að bjóða enda veitir ekki af,“
segir Anna Rósa og leggur áherslu á
að atvinnulausir eru sérstaklega vel-
komnir. vera@frettabladid.is
Sjálfsagðara að leita sér
óhefðbundinna lækninga
Heilsuhvoll kynnir starfsemi sína með opnu húsi á morgun en þar er hægt að leita sér alls kyns óhefð-
bundinna lækninga. Fyrir mörgum eru þær framandi og því tilvalið að líta inn og taka starfsfólk tali.
Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir og Dagný E. Einarsdóttir hómópati bregða á leik. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KVÖLDSKÓLI KÓPAVOGS verður með opið hús og vorsýningu
í Snælandsskóla á sunnudaginn milli klukkan 13 og 17. Á sýningunni er
starfsemi skólans kynnt meðal annars með því að sýna afrakstur af vinnu
nemenda í verklegum námskeiðum frá liðnum vetri.
Englaraddir er smábarnakór sem Nat-
alía Chow Hewlett stofnaði fyrir fimm
árum. Í dag syngja í honum um fjöru-
tíu börn á aldrinum þriggja til níu ára.
Til að fagna fimm ára afmæli kórs-
ins var ráðist í stórt verkefni, söng-
leikinn Hósíanna eftir Julian Hewlett
sem er eiginmaður Natalíu og und-
irleikari kórsins. Söngleikurinn verð-
ur fluttur laugardaginn 9. maí klukkan
19 í Kópavogskirkju. Þar munu börn-
in syngja og leika íklædd búningum
við undirleik fjögurra manna atvinnu-
hljómsveitar.
Verkið Hósíanna fjallar um líf Jesú
frá fæðingu til dauða og upprisu
hans. Á milli laga er lesið úr Biblíunni.
Söngleikurinn samanstendur af þrem-
ur köflum með samtals 15 lögum.
Lögin hafa flest grípandi laglínu og
fjörugan takt, auk þess sem þau eru
öll á íslensku. Helst má líkja verkinu
við Jesus Christ Super Star nema það
er ætlað börnum. Lögin eru samin
fyrir barnakór með tvo einsöngvara
sem syngja hlutverk Jesú og Pílatusar.
Englaraddir hljóma í Kópavogskirkju
BARNAKÓRINN ENGLARADDIR FLYTUR SÖNGLEIKINN HÓSÍANNA Á MORGUN
Natalía Chow stofnaði smábarnakór-
inn Englaraddir fyrir fimm árum.
Vorganga styrktarfélagsins
Göngum saman á að vekja
athygli á styrktargöngu félagsins
í september.
Styrktarfélagið Göngum saman
efnir til vorgöngu í Reykjavík
og vísindarölts á Akureyri fyrir
alla fjölskylduna á mæðradaginn,
sunnudaginn 10. maí. Í Reykjavík
verður lagt af stað frá Skautahöll-
inni í Laugardalnum klukkan 11
og gengið um dalinn í um klukku-
stund. Á Akureyri verður lagt af
stað frá Eyrarlandsstofu í Lysti-
garðinum klukkan 11.
Styrktarfélagið Göngum saman
hefur það að markmiði að styrkja
grunnrannsóknir í brjóstakrabba-
meini. Félagið leggur áherslu á
mikilvægi hreyfingar til heilsu-
eflingar og til að afla fjár í styrkt-
arsjóð félagsins. Í október ár
hvert úthlutar félagið styrkjum til
grunnrannsókna á brjóstakrabba-
meini.
Göngunni á mæðradaginn er
ætlað að vekja athygli á Stóru
styrktargöngu félagsins sem hald-
in verður í þriðja sinn 6. septemb-
er næstkomandi, en hún er aðal
fjáröflunarleið félagsins.
Nú á sunnudaginn verða gengn-
ar þrjár vegalengdir, 3, 5 og 10
kílómetrar. Ekkert þátttökugjald
er í vorgönguna en frjáls framlög
eru vel þegin.
Nánari upplýsingar á www.gong-
umsaman.is
Gengið saman
á mæðradaginn
Það er gaman að ganga saman. MYND/ÚR EINKASAFNI
teg.21369 - frábærlega mjúkir og
flottir herraskór úr leðri í stærðum
41-46 á AÐEINS kr. 6.585,-
teg.34364 - mjög fallegir herra-
skór með innleggjum í stærðum
41-46 á AÐEINS kr. 6.785.-
Auglýsingasími
– Mest lesið