Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 25
FÖSTUDAGUR 8. maí 2009 3
Vaxandi sport er að aka fjar-
stýrðum bílum um torfærubraut
en Íslandsmót í því verður hald-
ið um helgina.
Fyrsta umferð af fimm í Íslands-
móti fjarstýrðra torfærubíla verð-
ur haldin sunnudaginn 10. maí.
Mótið er haldið á vegum Tóm-
stundahússins og Smábílaklúbbs
Íslands á brautarsvæði klúbbsins
í Gufunesi í Grafarvogi. Öflugir
fjórhjóladrifnir bensínbílar keppa
þar í þremur flokkum, Monster-
trukkar, Buggý og Truggý.
Monster-trukkar eru eftirmynd
af amerískum
torfærutröll-
um líkt og
Big Foot.
Buggý-
bí lar eru
sérgerð-
ir fyrir braut-
arakstur og er mikið keppt í
slíku erlendis. Truggý-bílar eru
svipaðir og Buggý fyrir utan að
þeir eru með svipuð dekk og Mon-
ster-trukkar.
Fjarstýrðir bensínbílar eiga
auknum vinsældum að fagna og er
Smábílaklúbburinn kominn með
varanlega aðstöðu í Gufunesi. Þar
er hann með 600 metra torfæru-
braut en einnig stendur til að mal-
bika braut í náinni framtíð.
Smábílaklúbburinn var stofn-
aður árið 1994 af áhugamönnum
um kappakstur fjarstýrðra bíla
og hefur
síðan
þá staðið fyrir keppnishaldi bæði
innanhúss á veturna og utandyra
á sumrin. Í sumar verður, auk
Íslandsmeistaramóts fjarstýrðra
torfærubíla, haldið íslandsmeist-
aramót í On-road með rafmagns-
og bensínbílum. Að auki verða
haldin þolakstursmót í torfæru
en þá er ekið stanslaust í eina
klukkustund.
Frekari upplýsingar má finna á
www.sbki.is - sg
Íslandsmót fjarstýrðra tor-
færubíla haldið á sunnudag
Sýningin Ferðalög og frístundir
verður haldin í Laugardalshöll
um helgina.
Á sýningunni Ferðalög og frí-
stundir sameinast á einum stað allt
sem snertir ferðalög og frístund-
ir, innanlands og utan. Sýningin
Golf 2009 verður haldin samhliða
Ferðalögum og frístundum – og
kjarninn í ferðasýningunni verður
Ferðatorgið, þar sem ferðamála-
samtök og markaðsstofur lands-
hlutanna kynna ferðaþjónustu á
sínu svæði. Á Matartorginu verða
haldnar þrjár matreiðslukeppn-
ir á vegum Klúbbs matreiðslu-
meistara, ásamt því að fyrirtæki
í matvæla- og veitingageiranum
kynna starfsemi sína. Keppnirnar
eru Matreiðslumaður ársins, Mat-
reiðslumeistari Norðurlanda og
landshlutakeppnin Íslenskt eld-
hús 2009. Þá fer fram á sýning-
unni úrslitaviðureign í keppninni
Delicato vínþjónn Íslands 2009,
sem haldin er af Vínþjónasamtök-
um Íslands.
Fjölmargir sýnendur úr öllum
landshlutum hafa skráð sig til leiks
og hafa ferðaþjónustufyrirtæki í
ákveðnum landshlutum tekið sig
saman um að kynna starfsemi sína
undir sameiginlegum merkjum.
Á sýningunni verða kynntir þeir
fjölbreyttu möguleikar sem í boði
eru og bent á nýjar og spennandi
leiðir til að upplifa og kynnast
landinu; auk þess sem framboð á
ferðum til útlanda verður kynnt.
Á sýningunni Golf 2009 verður
hægt að nálgast á einum stað allt
það nýjasta um golfíþróttina – og
þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér golfið í fyrsta sinn finna líka
eitthvað við hæfi því golfkennar-
ar verða á staðnum til að ráðleggja
þeim um fyrstu skrefin. Þar verð-
ur einnig sérstakt krakkagolf-
svæði með kylfum og boltum ætlað
börnum með öryggi þeirra að leið-
arljósi.
Sýningin verður haldin í Íþrótta-
og sýningarhöllinni í Laugardal
dagana 8.-10. maí en nánari upp-
lýsingar er að finna á www.ferda-
logogfristundir.is. - sg
Allt um ferðalög,
golf og frístundir
Ísland hefur upp á margt að bjóða. Nátt-
úrufegurðin í Breiðavík er til að mynda
heillandi. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Taílensk menningardagskrá
verður í Háskólabíói á morgun.
Gimsteinn austursins er yfirskrift
taílenskrar menningardagskrár
sem fram fer klukkan 14 í sal 3 í
Háskólabíói á morgun.
Taílensk menning hefur sett
sterkan svip á íslenskt samfélag
undanfarin ár enda búa hér á landi
um 1.300 íbúar af taílensku bergi
brotnir.
Í dagskránni verður varpað nán-
ara ljósi á sérstæða sögu og menn-
ingu þessa lands. Fjallað verður
um sögu þess, stjórnmálafram-
vindu, tungumál og matargerð-
arlist. Nokkur erindi verða flutt
bæði á íslensku og ensku. Milli
fyrirlestra verða sýndir dansar
og lifandi tónlist. Að fyrirlestrum
loknum verður gestum boðið að
bragða á taílenskum mat sem er í
boði veitingahúsanna Núðluhúss-
ins, Krua Thai og Thai Shop.
Stofnun Vigdísar Finnbogadótt-
ur og Asíusetur Íslands standa að
dagskránni í samvinnu við Taí-
lensk-íslenska félagið og sendiráð
Taílands í Danmörku og á Íslandi.
- sg
Gimsteinn
austursins
Stúlkur í taílenskum búningum á taí-
lenskri hátíð í Ráðhúsi Reykjavíkur.
www.eirberg.is • 569 3100
Stórhöfða 25
Ný sending
af sundfatnaði
komin
Keppni fjarstýrðra bensín torfærubíla verður haldin
sunnudaginn 10. maí á brautasvæði SBKÍ í Gufunesi, Grafarvogi.
Hægt er að skrá sig í keppni á heimasíðu sbki.is eða á staðnum.
Frekari upplýsingar á www.sbki.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki