Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 30
4 föstudagur 8. maí
núna
✽ tíska og hönnun
V efsíðan Reykjavik Looks fetar í fótspor The Sartorialist og
The Face Hunter með því að birta
skemmtilegar myndir af fólki úti á
götu eða í veislum sem allt hefur
það sameiginlegt að búa yfir ein-
stökum stíl og smartheitum. Það
eru hinar smekklegu Elísabet Alma
Svendsen, Togga Tolladóttir og Saga
Sigurðardóttir sem leita uppi sval-
asta fólkið í bænum og mynda. Hér
gefur að líta nýjar myndir af vefn-
um sem sýna að vortískan er litrík,
fjölbreytt og frumleg. http://reykja-
viklooks.blogspot.com/ - amb
Tíðarandinn á Reykjavík Looks
Vorið á götum Reykjavíkur
Vorboðinn heitir nýjasta vara Tinnu Gunnars-
dóttur iðnhönnuðar. Vörur hennar, svo sem
skordýramotturnar vinsælu sem meðal ann-
ars hafa verið seldar í Kokku og má nota á gólf
eða borð, hafa notið mikilla vinsælda og seljast
eins og heitar lummur. Tinna hannaði líka Blað-
bera Fréttablaðsins sem nýtist undir dagblöð á
leið í endurvinnslu. Vorboðinn er skemmtilegt
handhnýtt fyrirbæri sem hægt er að nota til að
fá líf í íslensk tré og runna. Það er oft löng bið
eftir blómstrandi trjám hér á landi og Vorboð-
inn er leið til að hafa blómstrandi tré og runna
allt árið um kring ef vill. Í Vorboðann er notuð
lituð strútsfjöður og hann er hnýttur af flugu-
hnýtingamanni. Þar sem efnið er svo fislétt
bærist fjöðrin í trjánum við minnsta andvara og hverfur svo næstum
í rigningu. En nær svo fyrra lagi og lífi þegar styttir upp. Gaman að
geta lífgað upp á garðinn eða heimreiðina og glætt lit í tilveruna með
þessari fallegu hönnun Tinnu. - amb
Ný vara frá Tinnu
Gunnarsdóttur
Þolir veður og vind
Í regni leggst vorboð-
inn saman en lifnar svo
aftur við þegar þornar
og vindur fer að blása.
Gert úr strútsfjöðrum
Kraum á Skólavörðustíg
hóf í vikunni sölu á nýjustu
vöru Tinnu, Vorboðanum.
LAURA ASHLEY
Faxafeni 14 108 Reykjavík sími 5516646
Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-14
EF HÁRIÐ ER ÞURRT og skortir gljáa er nýja hárlínan frá L‘Occitane tilvalin.
Í henni eru seyði úr ólífutrénu, en eiginleikar trésins hafa verið þekktir í margar kyn-
slóðir. L‘Occitane notar lífrænt seyði úr ólífulaufum, lífrænt ólífuvatn og AOC Baux de
Provence-ólífuolíu í nýrri hárlínu sinni.